sunnudagur, janúar 29, 2006
Von á um 60 skemmtiferðaskipum næsta sumar

Útlit er fyrir að 59 skemmtiferðaskip muni hafa viðkomu á Akureyri næsta sumar, nokkru fleiri en var á liðnu sumri þegar 56 slík skip sigldu inn Eyjafjörðinn. "Það er langt komið að bóka skipin," segir Pétur Ólafsson, markaðs- og skrifstofustjóri Hafnarsamlags Norðurlands. Nú fyrir helgi duttu tvö skip út, en önnur gætu komið í staðinn. Hann segir því spáð að 8-9% aukning verði á þessum vettvangi á næstu árum, þ.e. farþegum mun fjölga um þessi tæpu 10% á komandi árum. Farþegar á skipunum á liðnu sumri voru um 44-5 þúsund talsins og í áhöfnum skipanna um 22 þúsund manns.
Heimild: mbl.is (Innlent Morgunblaðið 26.1.2006 05:30)
miðvikudagur, janúar 25, 2006
Að reykja eða ekki reykja............
Eftir Silju Björk Huldudóttur silja@mbl.is
ÁRVEKNI og snör handtök Björns Björnssonar trésmiðs björguðu átta raðhúsum frá stórbruna í Palm Springs í Kaliforníu um síðustu helgi. "Það má eiginlega segja að reykingar mínar hafi bjargað málum," segir Björn kíminn og útskýrir í framhaldinu: "Ég var nefnilega úti við sundlaug að drekka morgunkaffið og reykja. Það var rétt að birta af degi, enda klukkan rétt um sex um morguninn, þegar ég skyndilega sá rosalegan reykmökk stíga upp skammt frá mér. Ég hljóp strax á staðinn og byrjaði að berja á allar hurðir og öskra að eldur hefði kviknað," segir Björn sem því næst greip vatnsslöngu sem hann fann í garðinum og fór að sprauta vatninu inn um glugga hússins sem brotnað hafði í hitanum frá eldinum. "Þá var byrjað að loga í þakskeggi þannig að þetta var mikill eldur. Teppið var allt logandi og húsgögn og rúm," segir Björn. Þegar honum hafði tekist að minnka eldinn sparkaði hann útidýrunum upp, lagðist á gólfið og hélt áfram að beina vatnsgusunni að eldinum við erfiðar aðstæður því loftklæðningin var þá byrjuð að hrynja niður. Björn slapp þó algjörlega ómeiddur þó svo að skósólar hans hafi sviðnað í hitanum frá eldinum og dúnúlpa sem hann klæddist jafnframt gjöreyðilagst.
.
Heimild mbl.is
.
Þarna sést að reykingar geta bjargað mannslífum!!!!!!!!!!!!!
Þannig að ég ætla ekki að hætta strax.
Kv ritstjóri.
p.s er að dunda við að setja inn myndir í "myndir að austan"
fimmtudagur, janúar 19, 2006
Tímamót hjá SBA
Þau merku tímamót urðu í dag (gær) að verkstæðisbíllinn var seldur okkar ástkæra samstarfsmanni Jóa ................
og var bíllinn afhentur með viðhöfn. .


Lyklarnir afhentir með viðhöfn. Og ekki var laust við að sumið kæmust við, en stundin sú arna var afskaplega hjartnæm.
.
.
Kær kveðja
Ellert Kárason
ellertk@mmedia.is
miðvikudagur, janúar 18, 2006
Sameining
Kynnisferðir og SBK í Keflavík sameinast
Kynnisferðir ehf. keyptu um áramótin 60% hlutafjár í SBK hf. í Keflavík, en fyrir áttu Kynnisferðir 40% hlutafjár í félaginu. Í tilkynningu frá Kynnisferðum segir að með sameiningu þessara tveggja félaga er þess vænst að sú góða þjónusta, sem SBK hafi veitt Suðurnesjabúum hingað til, verði ekki minni en hún hafi verið. SBK muni áfram annast akstur strætisvagna, skólabíla og sérleyfisbifreiða milli Keflavíkur og Reykjavíkur.
SBK var stofnað árið 1930, þegar áætlunarferðir hófust milli Keflavíkur og Reykjavíkur. Félagið annast rekstur strætisvagna á Reykjanesi, sérleyfisferða milli Reykjavíkur og Keflavíkur, leigu á rútum fyrir hverskonar hópferðir og skólaakstur fyrir Fjölbrautaskóla Suðurnesja.
Kynnisferðir voru stofnaðar árið 1968 og hafa sérhæft sig í rekstri dagsferða fyrir erlenda ferðamenn, sérleyfisakstri um Suðurland allt til Hafnar í Hornafirði og í rekstri Flugrútunnar til Keflavíkurflugvallar. Auk þess reka Kynnisferðir ýmis konar sérferðir og leigja út rútur fyrir stóra og smáa hópa.
Heimild mbl.is
Kv ritstjóri
Betra er seint en aldrei...................

Fékk bílinn sinn eftir 37 ár
Fyrir 37 árum var Alan Poster 26 ára og stoltur eigandi nýrrar Corvette bifreiðar. Hann hafði einungis átt bílinn í nokkra mánuði þegar honum var stolið úr bílastæðahúsi í New York. Þann dag var lögreglunni í New York tilkynnt um 215 stolna bíla og það árið voru rúmlega 78 þúsund bílar tilkynntir stolnir. Posters var því nokkuð hissa þegar lögreglan í Carson í Kaliforníu tilkynnti honum að bíllinn væri fundinn.
Fréttavefur New York Times greindi frá því að eigandi og bíll væru nú sameinaðir á ný. Bíllin hefur allur verið yfirfarinn og var á leið úr landi til kaupanda í Svíþjóð. Af einhverjum ástæðum vantaði skiptinguna í bílinn en að öðru leyti var hann í fullkomnu ástandi.
1968 árgerð af Corvette í toppstandi kostar í dag á bilinu 20 til 60 þúsund Bandaríkjadali (1,2 til 3,6 milljónir kr.), en það fer eftir vélarstærð og ýmsu öðru, sum eintök hafa farið á 100 þúsund dali (6,1 milljónir kr.).New York Times
.
Kv ritstjóri
laugardagur, janúar 14, 2006
Bílum fjölgar hjá SBA, en fækkar hjá Malarvinnslunni
Í velheppnaðari ferð sem að farin var til Þýskalands í sl. viku voru pantaðir 5 bílar sem að bætast við flota SBA á næstu mánuðum. Fyrir voru í pöntun 4 nýjir bílar og stækkar þá flotinn sem um munar þegar allir bílarnir verða komnir til Íslands. Bílarnir sem að voru pantaðir núna eru þrír bíla framleiddir af Bova í Hollandi, einn Mercedes Benz O 404 13-RH og einn Mercedes Benz Atego sem að settur verður undir Ernst Auwärter Clubstar yfirbyggingu. Fyrir voru í pöntun þrír nýir Mercedes Benz Sprinter 416 CDi sem að verða í 20 manna útfærslu og svo einn 42 manna bíll frá Bova verksmiðjunum. SBA á í dag 3 bíla frá Bova og verða þá amk. 7 Bova bílar í rekstri hjá fyrirtækinu í sumar.
.
Fréttir að austan.
Tveir steypubílar fuku út af veginum yfir Fjarðarheiði milli Fljótdalshéraðs og Seyðisfjarðar um kvöldmatarleytið í dag. Atvikin urðu með stuttu millibili. Annar bíllinn valt en bílstjórar bílanna sluppu ómeiddir. Mikil hálka og hávaðarok var á heiðinni í gær að sögn lögreglunnar á Egilsstöðum. Bíllinn sem valt er töluvert skemmdur.
.
Kveðja ritstjóri
þriðjudagur, janúar 10, 2006
Fréttir af Birni flugmanni
Guðjón ég vona að þú sért einhverju nær núna ?
.
Kveðja ritstjóri.
sunnudagur, janúar 08, 2006
Frá austurvígstöðvunum
Héðan er allt gott að frétta. Bjössi búinn að athuga hvort hann geti flogið og komst að því að hann getur það (þarf bara að æfa lendinguna betur) var dálítið skakkur og útlitsgallaður eftir lendinguna.
Kv ritstjóri
