<$BlogRSDUrl$>

föstudagur, desember 31, 2004

Gleðilegt nýtt ár....... 

Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir það gamla.


Langar að vekja athygli á að SBA var að opna nýja heimasíðu.

Kveðja ritstjóri

P.S . MUNA EFTIR AÐ KVITTA Í GESTABÓKINA

|

þriðjudagur, desember 28, 2004

Halló Halló Halló Halló Halló Halló Halló  

BARA AÐ MINNA Á

GESTABÓKINA


|

laugardagur, desember 25, 2004

Stórt  

Gleðileg jól.

jæja þá er það smá jólapistill.

Var að skoða heimsmetabók Guinness og sá þar að SBA á langt í land með að verða stærsta rútufyrirtæki heims, en það mun vera ríkisáætlunarflutningafélag Andhra Pradesh (Indlandi) en það stafrækir 18900 áætlunarbíla sem aka á 8678 leiðum og flytja 13 milljónir farþega dag hvern.
----------------------
Stærsti áætlunarbíll heims er liðskiptur DAF Super CityTrain strætisvagnarnir í Alþýðulýðveldinu Kongó eru 32,2 metra langir og geta með góðu móti flutt 350 farþega. Hver þeirra vegur 28 tonn.

kveðja ritstjóri

|

fimmtudagur, desember 23, 2004

GLEÐILEG JÓL 

Kæru vinnufélagar og aðrir lesendur.
.
..
....
......
.........
.............
...................
.........................
...............................
......................................
.............................................
...................................................
Gleðileg jól og farsælt komandi ár
þakka allt liðið.
Og hafið það sem allra best um jólin, og munið að vera dugleg að borða.
Kveðja Siggi Hjartar.

|

miðvikudagur, desember 22, 2004

Frá ritstjóra 

Kæri Maggi þakka þér fyrir kveðjuna, og ég segi bara það sama við þig.

Jólakveðja Ritstjóri.

|

LEIÐRÉTTING 

Samkvæmt mjög áræðanlegum heimildum þá var það BERGÞÓR sem hannaði og setti upp nýja tölvukerfið en ekki STOLTI, beðist er velvirðingar á þessum mistökum. Enda fannst ritstjóra það frekar undarlegt að Stolti væri að setja upp tölvukerfi þar sem hann veit varla hvernig tölva lýtur út hvað þá hvernig hún virkar (samkvæmt myndum af kerfinu þá hefur ritstjóri ekki trú á að það geti virkað).

Þar sem ritstjórinn er í "sumarfríi" þá hefur hann ekki hugmynd um hvað er að gerast hjá fyrirtækinu, allar ábendingar eru vel þegnar.

Kveðja ritstjóri.

|

mánudagur, desember 20, 2004

Að norðan 

Eins og flestir vita þá er verið að græja nýja aðstöðu fyrir SBA á Akureyri, og er ætlunin að flytja alla starfssemi fyrirtækisins á sama stað. Og var ákveðið að endurnýja tölvubúnaðinn, og er þeirri vinnu lokið og búið að setja tölvukerfið upp í nýju höfuðstöðvunum, ritstjórinn náði nokkrum myndum að búnaðinum, og verð ég nú að segja að betra hefði nú verið að hafa bara gamla dótið. (frétti að Stolti vinur minn hefði gert tilboð í kerfið og sett það upp.)

Það eru myndir í möppunni ÝMISLEGT í kaflanum TÖLVUBÚNAÐUR.

Kveðja ritstjóri.

|

laugardagur, desember 18, 2004

Að norðan 

Var að fatta að það eru engar myndir úr haustferð SBA 2004 inni, redda því eins fljótt og nokkur kostur er, og mun þá birta ALLAR myndir sem ég hef undir höndum og einnig í tölvunni, ég mun einfaldlega birta allar þær myndir sem ég mun finna úr haustferðinni.

kv ritstjóri.

|

Frá ritstjórn 

Kæru gestir á þessari síðu, okkur langar til að benda ykkur á að það getur verið fróðlegt og gaman að skoða GESTABÓKINA, einnig viljum við benda á að ef þið skrifið eitthvað þar þá munum ritstjórinn leitast við að svara því sem þar mun koma fram. Einnig er hægt að gefa comment á greinarnar.

Stefanía ekki er vitað til að það leynist nokkurt skáld í Sigurði.

Tóta það verður að viðurkennast að ritstjórinn hefur ekki verið nógu duglegur að skrifa á síðuna, og hefur honum verið veitt ákúra fyrir það.

kveðja ritstjórn staffssba.


Frá ritstjóra.

Í dag var steypt síðasta steypa í Hjalteyrargötu, og í því tilefni bauð Gunnar M. til BJÓRS þar, og kunnum við honum bestu þakkir fyrir BJÓRINN.

Kveðja ritstjóri staffssba.




|

föstudagur, desember 17, 2004

Að norðan 

Kæri Björn M.

Ég hélt að þú værir vitiborinn maður og vissir að starfsmenn SBA væru bindindismenn upp til hópa það er einna helst að það náist fyllirísmyndir af AUKAMÖNNUM sem eru annars slagið fengnir til að keyra þegar föstu mennirnir hafa ekki undan að sinna verkefnunum sem BERGÞÓR skaffar okkur, og er það einlæg von okkar starfsmanna SBA að þú sýnir þessu skilning hér eftir.

kv. ritstjóri.

|

Að norðan 

Blessaður Maggi.

Það er alltaf gaman að sjá að til eru heljarmenni sem þora að tjá sig í GESTABÓKINNI.

Miðað við þá tvo möguleika sem þú veltir upp varðandi 12 ára drenginn og kennslukonuna, þá er ég sammála þér um fyrri kostinn.

Kv ritstjóri.

|

Frá ritstjórn 

MUNA EFTIR GESTABÓKINNI.
Kveðja frá ritstjórn.

|

fimmtudagur, desember 16, 2004

Að norðan 

Héðan af norðurslóðum er það helst að frétta að unnið er hörðum og linum höndum í Hjalteyrargötunni og stefnt er að flutningi 15. jan 2005.
Er alltaf að bæta við myndum og skipta út eldri myndum.

Kv ritstjóri.

|

sunnudagur, desember 12, 2004

Ja flest getur nú gerst 

12 ára drengur kærður fyrir að nauðga kennslukonu sinni.

12 ára drengur í Durham-sýslu á Englandi hefur verið kærður fyrir að nauðga kennaranum sínum. Drengnum er gefið að sök að hafa ráðist á konuna í einkakennslutíma í hádeginu og síðan stolið bifreið hennar, sem síðar fannst yfirgefin. Drengurinn kom fyrir dóm 30. nóvember og eiga réttarhöld að fara fram 30. desember.

tekið af mbl.is


kv. ritstjóri.

|

föstudagur, desember 10, 2004

Að norðan 

Jæja þá er að skrifa smá.
Á föstudaginn var fóru norðanmenn á jólahlaðborð á hótel KEA, byrjað var á að hittast heima hjá Eggerti Sigurjóns svo var farið með rútubíl á KEA. Og ekki er hægt að segja annað en maturinn hafi verið mjög góður, og að sjálfsögðu fór þetta allt vel fram og held ég að menn og konur hafi bara skemmt sér vel.


p.s. setti inn myndir sem voru teknar þetta kvöld.

Kveðja ritstjórinn

|

fimmtudagur, desember 02, 2004

Frá ritstjórn 

Í fréttum er það helst að ekkert er að frétta. Annað kvöld (föstudagskvöld) ætla norðanmenn að skella sér á jólahlaðborð á hótel KEA, og er ekki útilokað að eitthvað verði skrifað um það og jafnvel birtar myndir.

p.s. Stefanía það kemur ekki til greina að taka myndina af þér af myndasíðunni.

Eitt að lokum ENDILEGA kvitta í gestabókina.

Kveðja ritstjóri.

|

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com