<$BlogRSDUrl$>

laugardagur, júlí 30, 2005

Að norðan 

Jæja ég held að það sé alveg hellingur að frétta en ég hef bara ekki hugmynd um hvað það er.
ER farinn að hafa áhyggjur af ökukennaranum sennilega er hann farinn aftur til steinaldar þar sem engar tölvur eru.
Setti inn eina mynd hér að neðan og spyr HVAR ER HÚN TEKIN ?

|

fimmtudagur, júlí 28, 2005

GLÓÐVOLG FRÉTT 


Samkvæmt mjög áræðanlegum heimildum fréttum við að SBA hafi tekið upp samstarf við Hrinrás um að hreinsa brotajárn af þjóðvegum landsins, og hófst þetta samstarf í gær með hreinsun á vegum í þingeyjarsýslu og voru fjarlægð nokkur tonn. Reiknað er með að þetta verkefni skapi 2-3 störf á háannatíma.
Kv ritstjóri

|

þriðjudagur, júlí 26, 2005

Að norðan 

Tveir flottir, eða var það einn HROLLUR og einn TÖFFARI.
En hvað um það Jói var svo hamingjusamur að fá að fara á STÓRA HROLLI í Mývóið, að hann fór í frí eftir ferðina og höfum heyrt að hann hafi óskað eftir að fá bílin lánaðan til að fara með fjölskylduna í ferðalag.
Bílstjórar SBA eru farnir að óttast að það eigi ekki að skila þessu ökutæki.
kv ritstjóri

|

sunnudagur, júlí 24, 2005

Að norðan 

OLÍUVERÐ
Hópur atvinnubílstjóra ráðgerir að loka gatnamótum Vesturlands- og Suðurlandsvegar á fimmtudag eða föstudag fyrir verslunarmannahelgi til að mótmæla verðhækkunum á dísilolíu, að sögn Sturlu Jónssonar vörubílstjóra. Hann segir að mikil óánægja ríki á meðal atvinnubílstjóra með þessa hækkun dæmi séu um að vörubílstjórar geti þurft að kaupa olíu fyrir 30-50 þúsund krónur á dag eftir hækkunina.
Hann segir að ráðgert sé að loka vegunum í tvo til fjóra tíma og búast megi við mikilli umferðarteppu. Þá hafi komið upp hugmyndir um að loka Reykjanesbrautinni til að trufla millilandaflug.

Heimild mbl.is
Kv ritstjóri

|

laugardagur, júlí 23, 2005

Frá ritstjóra 

TILKYNNINGTILKYNNINGTILKYNNINGTILKYNNINGTILKYNNING

SUNNUDAGINN 24 JÚLÍ 2005 VERÐUR HANN SJÓÐRÍKUR 34 ÁRA.

Og sendir ritstjórnin eins og hún leggur sig honum hugheilar hamingjuóskir af því tilefni, eins er vonast til að sem flestir sendi honum heillaóskir í síma 8969993

Fyrir þá sem ekki vita hver Sjóðríkur er þá var hann fyrir margt löngu skírður Agnar Hlynur og er Daníelsson, hann er útibússtjóri útibús SBA-NORÐURLEIÐAR í ÓSÓMABORGINNI Reykjavík.

kv ritstjórn


|

Að norðan 


Ég held að þessi mynd þarfnist ekki nánar útskýringar.

|

föstudagur, júlí 22, 2005

Að norðan 

Sjóðríkur á sínum yngri árum.

|

fimmtudagur, júlí 21, 2005

Frá ritstjóra 

Tóta það segir mér ENGINN hvaða myndir ég má birta og hvaða myndir ég má ekki birta. ég einfaldlega birti þær myndir sem mig langar að birta, þó innan skynsamlegra marka (að mínu mati)

Samanber myndina hér að ofan. Sjóðríkur að drekka í vinnunni.

Varðandi dugnað í skriftum og hvort það sé ekkert að gera, þá á það ekki svo mikla samleið. En það styttist í að það skipti mig ekki máli hvort það sé mikið að gera hjá SBA eða ekki, ég mun reyna að halda áfram einhverju rugli hérna.

.

Kv ritstjóri


|

Að norðan 


SBA kaupir Sigga Björns.
og er búið að merkja hann
SBA-NORÐURLEIÐ.
.
.
.
.
Kv ritstjóri.

|

miðvikudagur, júlí 20, 2005

Úr heimi vísindanna. 

Japanskir vísindamenn segjast hafa komist að því hvers vegna sumt fólk þolir lítið af áfengi og verður drukkið undir eins en aðrir geta drukkið ótæpilega án þess að verða ofurölvi. Telja þeir uppgötvun sína geta nýst til að þróa lyf og skoða virkni þeirra.
Tæknirisinn Hitachi og Osaka háskóli tóku höndum saman og rannsökuðu málið. Niðurstaðan var sú að blóðflæði er mismunandi til ákveðinna stöðva heilans hjá þeim sem þola mikið og þeim sem þola lítið áfengi.
Í rannsókninni kom í ljós að eftir nokkra drykki var blóðflæði til þeirra stöðva heilans sem stjórna sjónrænni skynjun var meira hjá fólki sem þolir lítið áfengi en hjá þeim sem þola lítið. Lítil breyting varð á þessu svæði heilans hjá þeim sem þola áfengi mjög vel.
Áfengi breytist í acetaldehýð í líkamanum en vitað er að það efni veldur timburmönnum. Ensímið ALDH2 breytir hins vegar acetaldehýði í skaðlausa sýru í líkamanum. Hjá þeim sem þoldu áfengi vel var mikil virkni ALDH2 en hjá þeim sem urðu auðveldlega drukknir virkaði ALDH2 hægar en það gerir það að verkum að þeir hinir sömu eiga á hættu að fá timburmenn.
Hitachi lagði til sérstaka tækni sem felst í því að kortleggja stöðvar heilans og kalla mætti sjónræna staðfræðitækni. Sagði fyrirtækið að nota mætti tæknina til að skoða viðbrögð heilans bæði við áfengi og öðrum efnum.

|

Að norðan 

Jæjajá.
Ég hef komist að þeirri niðurstöðu að SBA ætti að hætta að kaupa allt þetta Benzdót og snúa sér frekar að BOVU. Ég nefnilega fór á SBK 110 til Egilsstaða í dag og ég verð að segja að þetta er sú BESTA rúta sem ég hef keyrt .
Kveðja ritstjóri

|

Að norðan 




Jæja þetta gengur ekki lengur, var að skoða heimasíðu SBA og þar er verið að telja upp bíla sem fyrirtækið hefur verið að kaupa að undanförnu, en ekkert er minnst á R 4725 né Sigga Björns og neitar ÚTIBÚSSTJÓRINN í ÓSÓMAHREPP (reykjavík) að setja það á heimasíðu SBA, þetta er nú þvílíkur dónaskapur að það nær ekki nokkurri átt, að segja ekki frá þegar SCANIURNAR hrúgast inn og meirihluti Benz gamla er á hröðu undanhaldi, en ég held að Útibússtjórinn sé orðinn hræddur um að Benzinn sé á hröðu undanhaldi(enda er nú til margt sem er MIKLU betra).
....................................................................................................................
TILKYNNING
..............................



Í dag 20 Júlí á AÐALSTEINN KARL NORÐURSINS (Arnar S.Árnason) afmæli og verður hann þrjátíuogeitthvað.
Þannig að ég bið ykkur lesendur góðir að vera nú dugleg að senda honum heillaóskir í síma 8936098.

..............................................................................

Kveðja ritstjóri




|

sunnudagur, júlí 17, 2005

Að norðan 

Samkvæmt mjög áræðanlegum heimildum þá er ökukennarinn búinn að fastráða sig í öll skip sumarsins með sama leiðsögumanninn og aldrei á sama bílnum, en hann mun hafa farið fram á þetta eftir að hafa haft sama leiðsögumanninn í tveim síðustu skipum.
.
Jæja þá er Klinkenberg komin á skrið í bílakaupum aftur og eru nú keyptir bílar í hverri viku, og samkvæmt lauslegri talningu ritstjóra þá eru bílarnir tæplega sjötíu og ca 24 vikur eftir af árinu.
.
.
.
Kv ritstjóri.

|

föstudagur, júlí 15, 2005

Að norðan 

Þar sem ritstjórinn hefur orðið fyrir MIKLU skítkasti að undanförnu. þá verð ég að sýna smá lit og skrifa eitthvað smá hérna.
í dag 15 júli komu tveir bátar til Akureyrar með fólk sem við þurftum að keyra hér um svæðið, að sjáfsögðu þurfti að fara með fólkið í ÞINGEYJARSÝSLU til að sýna því eitthvað fallegt og til þess þurfti c.a 49 rútubíla.
Setti inn nokkrar myndir. skip og fleira 2005.

KV RITSTJÓRI

|

sunnudagur, júlí 10, 2005

Að norðan 

Jæja þá er að sýna smá lit.

Var að enda mjög skrautlega hringferð og jafnframt erfiða þó sérstaklega fyrir leiðsögumanninn, en hún er búin en ekki gleymd.
.
.
Var að frétta að SBA hefði verið að kaupa einn eðalvagn til að nota í Mývatnsútlegðina.
.
.
Jú eitt enn, hitti leiðsögumann(konu) sem var kasólétt sem er í sjálfu sér ekkert skrítið þ.e.a.s að konur verði ófrískar en þessi tiltekna kona talaði mikið um þá BROSBRÆÐUR (Ólaf yngri & Eini) og samkvæmt mjög áræðanlegum heimildum þá hafa þeir bræður ferðast mikið með þessum leiðsögumanni(konu) ?????????.
.
.
Kveðja ritstjóri.

|

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com