<$BlogRSDUrl$>

þriðjudagur, mars 29, 2005

Frá ritstjóra 

Kæru lesendur þið verðið að afsaka hvað ég er lélegur að sinna þessu hér, en nánast allur minn frítími fer í að ritskoða myndir sem NJÚMANN jeppakall sendir mér, og svo fer helv... mikill tími þessa dagana í að skoða http://www.geirinn.is en það er alveg snilldar síða með fullt að flottum myndum.
Kv ritstjóri

|

sunnudagur, mars 27, 2005

Frá ritstjórn 

Kæru lesendur ritstjórnin eins og hún leggur sig óskar lesendum gleðilegra páska, og hafið það sem allra best.sjáumst hress og kát eftir páskana.

Páskakveðja frá ritstjórn.

|

þriðjudagur, mars 22, 2005

Frá ritstjóra 

Það er naumast hvað þeir félagar Óli gamli og Maggi eru viðkvæmir,en það er þeirra vandamál, en það má örugglega finna eitthvað hjá þeim báðum sem aðrir ættu ekki að taka sér til fyrirmyndar, ég ætla ekki að telja það upp hér, en annars var þetta alls ekki ílla meint.
En ég er sammála Magga að Óli ætti nú að fara að semja einhvern skít (samkvæmt nýjustu könnun Uppgal er hann ekki skítadreyfari heldur framleiðandi, það er víst annar sem hefur séð um að dreyfa skítnum) og mun honum örugglega verða dreyft ef hann kemst í hendur skítadreyfarans.


kv. ritstjóri

|

Að norðan 

Laumaði inn nokkrum myndum.
Ýmislegt 2005 - Vinnan og Verkstæðiskvöld Jeppamanna.


Kv ritstjóri

|

föstudagur, mars 18, 2005

Að norðan 

Góð athugasemd hjá Magga í gestabókinni, það mættu fleiri taka hann og Óla sér til fyrirmyndar með að skrifa í gestabókina þó svo menn og konur taki þá ekki til fyrirmyndar í öðru.


Kv ritstjóri.

|

fimmtudagur, mars 17, 2005

ÁRÍÐANDI TILKYNNING 

MUNA EFTIR AÐ SKRIFA Í GESTABÓKINA.
MUNA EFTIR AÐ SKRIFA Í GESTABÓKINA.
MUNA EFTIR AÐ SKRIFA Í GESTABÓKINA.
MUNA EFTIR AÐ SKRIFA Í GESTABÓKINA.
MUNA EFTIR AÐ SKRIFA Í GESTABÓKINA.
MUNA EFTIR AÐ SKRIFA Í GESTABÓKINA.
MUNA EFTIR AÐ SKRIFA Í GESTABÓKINA.
MUNA EFTIR AÐ SKRIFA Í GESTABÓKINA.
MUNA EFTIR AÐ SKRIFA Í GESTABÓKINA.
MUNA EFTIR AÐ SKRIFA Í GESTABÓKINA.

MUNA EFTIR AÐ SKRIFA Í GESTABÓKINA.
MUNA EFTIR AÐ SKRIFA Í GESTABÓKINA.
MUNA EFTIR AÐ SKRIFA Í GESTABÓKINA.
MUNA EFTIR AÐ SKRIFA Í GESTABÓKINA.
MUNA EFTIR AÐ SKRIFA Í GESTABÓKINA.

|

Að norðan 

Samkvæmt vörutalningu sem Sjóðríkur framkvæmdi þann 17,03,2005 kl.09:12:04 þá á SBA 57 rútur, þannig að þeir félagar eiga eftir að kaupa "nokkrar" fyrir sumarið.En þeir verða nú varla lengi að því.

Frést hefur norður að það sé komin ný tegund af göllum á verkstæðið í Reykjavík, en þeir munu vera vasalausir svo að menn séu ekki að ganga um gólf með hendur í vösum. (ef þetta er vitlaust endilega látið mig vita)

Kv ritstjóri

|

Að norðan 

Ekki svo vitlaus hugleiðing hjá Óla, kannski Alli Kalli hafi skorað "ÞRENNU".

En svona smá hugleiðing hjá ritstjóra ætli þeir félagar Klinkenberg og Sjóðríkur hafi einhverja hugmynd um hvað SBA eigi marga bíla núna (17 mars 2005 klukkan 07:12)??????


Kv ritstjóri.

|

mánudagur, mars 14, 2005

Að norðan 

Bílakaup Klinkensberg og Sjóðríks.

Já þeir slá ekki slöku við félagarnir, einn bíll að koma til landsins á morgun (þriðjudag). og þeir brugðu sér "aðeins" til Þýskalands fyrir helgi og keyptu tvo bíla og segjast ekki vera hættir. Þannig að þeir hljóta að fara að fara bráðum aftur enda búnir að vera hér á skerinu í einn dag.
Það kom upp sú hugmynd að þeir leigðu sér sumarhús í Þýskalandi og væru þar í tvær til þrjár vikur, nú eða það sem væri nú allra hentugast fyrir þá væri að kaupa bara húsbíl þá gætu þeir flakkað um Evrópu og leitað að bílum og þyrftu ekki að hafa áhyggjur af gistingu og þess háttar.

Ekki meira að sinni.
Kv ritstjóri.

|

föstudagur, mars 11, 2005

Einn góður 

Framsóknardjókur, helv. góður.

Þegar ungur framsóknarmaður kemur heim eitt kvöldið tekur konan á móti honum með því að hlaupa upp um háls honum og segja; Ástin ég er
kominn einn mánuð fram yfir. Ég er viss um að nú er ég ófrísk,
heimilislæknirinn okkar sagði að hann gæti ekki fullvissað mig um það
fyrr en hann fengi niðurstöðu úr rannsókninni á morgun og við skyldum
þegja yfir þessu þangað til.
Að morgni næsta dags kom maður frá Orkuveitunni til þess að loka
fyrir rafmagnið, þar sem ungu hjónin höfðu ekki greitt síðasta
reikning. Hann hringdi dyrabjöllunni og þegar unga frúin kom til dyra
sagði hann; "Þú ert kominn mánuð fram yfir". "Hvernig í ósköpunum
veist þú það?" spurði unga frúin. "Nú það er allt svona skráð kyrfilega í tölvukerfi Orkuveitunnar" var svarið. "Heyrðu þetta sætti ég
mig sko ekki við og ég ætla að tala við manninn minn í kvöld og hann mun
örugglega hafa samband við ykkur á morgun" sagði unga frúin og skellti hurðinni.
Þegar eiginmaðurinn kom heim fékk hann að heyra allt um
persónunjósnir Orkuveitunnar og hann fór vitanlega öskuvondur á fund
Alfreðs Þorsteinssonar morguninn eftir. "Heyrðu Alfreð þetta er nú
algjörlega út í hött. Hvað eiginlega í ósköpunum gengur að ykkur,
þið eruð með það í skrám ykkar að við séum komin mánuð fram yfir,
hvern andskotann kemur ykkur það við?".
"Slakaðu nú á þetta er ekkert mál, borgaðu okkur bara og þá tökum
við þetta úr skránni okkar."svaraði Alfreð.. "Borga ykkur, ertu ekki í
lagi, nú ef ég hafna því hvað þá?" "Nú þá klippum við bara á og tökum
þig úr sambandi." "Og hvað á konan mín þá að gera?"
"Nú hún verður þá bara að nota kerti." Svaraði Alfreð.
Kv ritstjóri

|

þriðjudagur, mars 08, 2005

NJÚMANN og fleira 

Jæja loksins tókst Njúmanni jeppakalli að kvitta í gestabókina á Kaldbak.
(setti inn myndir hjá Njúmanni)

Annars er nú ekki mikið að frétta lífið gengur sinn vanagang, Njúmann er annað hvort í símanum eða útsendingum, og Siddi með sín kvennavandamál en tölum ekki meira um það svona opinberlega.

Hafin er undirbúningur að vorfagnaði, en meiningin er að norðan og sunnan menn og konur hittist og eigi saman notalega kvöldstund en það verður auglýst nánar með auglýsingum á vinnustað.

Kv ritstjóri

|

mánudagur, mars 07, 2005

Einn góður 

Sturtaði möl á veginn þegar átti að vigta bílinn.

Ökumaður vörubíls á leið um Sólheimaveg í Grímsnesi sturtaði malarfarmi sem hann var með á palli bifreiðarinnar út í vegkantinn. Eftirlitsmenn Vegagerðarinnar höfðu haft afskipti af ökumanninum og þegar þeir hugðust vigta bílinn greip ökumaðurinn til þessa ráðs á meðan eftirlitsmennirnir voru að sækja vogina.
Að sögn lögreglunnar á Selfossi fór ökumaðurinn úr vörubílnum eftir að hafa sturtað malarhlassinu, læsti bílnum og yfirgaf vettvang og spurðist ekki til hans í nokkra daga á eftir.

tekið af mbl.is

|

Frá ritstjóra 

Ég er sammála því sem Ólafur "eldri" skrifar í gestabókina, Var reyndar búin að gleyma þessu með Markús og Hafþór. En öllu svona þarf að halda til haga, því eins og Óli segir þá getur verið gott að eiga svona gullkorn og mistök/mismæli þegar þarf að ofsækja einhvern t.d í haustferð eða á árshátíð. Óli talar um einelti ég hélt að það væri ekki stundað einelti á okkar vinnustað, heldur viðgengist þar "fjölelti" í stórum stíl.
Ekki meira að sinni.

Kv ritstjóri.

|

fimmtudagur, mars 03, 2005

Að norðan 

Jæja þá er að sýna smá lit og bulla dálítið.

Hef alveg gleymt að minnast á það að Sævar Skömbó er FLUTTUR til Ósómaborgarinnar.(aumingja þeir fyrir sunnan, en gott fyrir norðanmenn).

ekki meira að sinni.

kveðja ritstjóri

|

þriðjudagur, mars 01, 2005

NJÚMANN 

Já það getur verið vissara að passa hvað maður segir í vinnunni.
Njúmann kallinn var að tala um að það gengi frekar rólega hjá sér að þrífa PO 600 og Ásgeir spurði hann hvað hann væri búinn að vera gera, Njúmann svaraði um hæl "ég er búinn að vera í útsendingum í allan morgun". Og þá velti Ásgeir því fyrir sér hvort það hefði verið útsending á "TRADER".



Var að bæta við myndum hjá Njúmanni jeppakalli.

Kveðja ritstjóri

|

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com