<$BlogRSDUrl$>

þriðjudagur, apríl 26, 2005

Að norðan 

Auðvitað verða veitt verðlaun, reiknað er með að afhenda þau í haustferðinni.

Ritstjóra bárust assskoti góðar myndir af Bjögga og er þær að finna í vorfagnaðar albúminu, en þær sýna hvað það getur stundum verið erfitt "morgunin eftir kvöldið áður".

Verst að eiga ekki myndir af Jóa morgunin eftir kvöldið áður.


ENDILEGA MUNA EFTIR GESTABÓKINNI
Kv ritstjóri

|

laugardagur, apríl 23, 2005

Að norðan 

Jæja þá er það smá pistill um vorfagnaðinn.

Ekki er vitað annað en þetta hafi allt farið mjög vel fram, þó svo að sumir hafi komið eitthvað útlitsgallaðir heim.
Nú reynt var eftir fremsta megni að sjá til þess að allir hefðu eitthvað fyrir stafni og var ákveðið að halda smá íþróttamót en eins og flestir vita þá eru starfsmenn SBA mjög íþróttamannslega vaxnir, svo segir í lögum félagsins að stuðla skuli að útiveru og íþróttum

3.gr.

Tilgangur félagsins er að víkka sjóndeildarhring félagsmanna og auka og efla kynni þeirra. Þessum tilgangi hyggst félagið, meðal annars, ná með:

a) Fræðslustarfsemi.
b) Íþróttaiðkun, og annari útiveru.
c) Fjölþættu skemmtanalífi.
d) Ferðalögum.
Á dagskrá voru eftitaldar íþróttir.
Spretthlaup en þar vann Jói Risi (Dvergur) Bjössa Jó.
Hindrunarhlaup en þar vann enginn en Óli Thedd komst þó lengst.
Glasalyftingar þar gekk flestum vel og var ansi jöfn keppni en Bjöggi vann á endanum.
Dvergakast ekki náðist í dverginn þar sem Jói vann spretthlaupið.
Svo stóð til að fara í leikinn YFIR en hann féll niður af sömu ástæðu og dvergakastið.
ekki meira að sinni.
kv ritstjóri

|

fimmtudagur, apríl 21, 2005

Að norðan 

VORFAGNAÐUR 2005
Jæja þá er vorfagnaðurinn að baki og tókst hann í alla staði mjög vel, en nánar verður fjallað um þessa ferð á morgun.
setti inn nokkrar myndir úr ferðinni.
Kv ritstjóri

|

mánudagur, apríl 18, 2005

Frá ritstjóra. 

Héðinsfjarðargöng og Vegakerfi Íslands.

Nú er mikil umræða um Héðinsfjarðargöng og gaman væri að koma af stað umræðu um göngin og vegakerfið almennt.Upplagt er að nota Comment til að segja sína skoðun á þessu máli.

Jæja ÖKUKENNARI láttu nú ljós þitt skína, og auðvitað allir hinir líka.
Kveðja Ritstjóri.

|

laugardagur, apríl 16, 2005

Frá ritstjóra 

Jamm Guðjón ég veit að þetta gengur ekki svona, en væntanlega veist þú hvað GEIRINN er mikill tímaþjófur.
Jæja smá fréttir það eru 3 bílar á leiðinni til landsins í fylgd Bjössa Jó.
Heyrði að bílasalar í Þýskalandi væru farnir að heilsa Sjóðríki og Klinkenberg með nafni þegar þeir mættu á svæðið, kannski ekki skrýtið þeir eru jú þar nánast í hverri viku.

Kveðja Ritstjóri

|

miðvikudagur, apríl 13, 2005

Að norðan 

Jæja þá eru þeir Klinkenberg og Sjóðríkur farnir erlendis og tóku Bjössa Jó með sér, en þeir eru að ná í þrjá bíla og koma þeim í ferjuna, og sjálfsagt að kaupa nokkra í viðbót. En hér á klakanum er nú ekki mikið að frétta. lífið gengur sinn vanagang. Mjög góð mæting er á vorfagnaðinn, og er ljóst að einhverjir verða sennilega að gista í tjöldum, en þetta er nú harðgert lið og lætur nú ekki svoleiðis smámuni stoppa sig.

Kv ritstjóri

|

sunnudagur, apríl 10, 2005

Að norðan 

Jæja nú er undirbúningur fyrir VORFAGNAÐ í fullum gangi og er allt að ganga upp nema það sem gengur bara alls ekki upp en það er nú ekki neitt sem skiptir máli. Og kæru félagsmenn munið að SKRÁNINGU LÝKUR Í HÁDEGINU Á MORGUN MÁNUDAG 11. APRÍL 2005.

Kveðja ritstjóri og formaður.


p.s Rabbi muna að gefa helv.... KETTINUM o:)

|

miðvikudagur, apríl 06, 2005

Að norðan 

Ég ætla nú ekki að segja að ég vorkenni Jens(Alla Kalla R) kallinum en það er alveg á mörkunum miðað við fjöleltið sem hann sætir í gestabókinni('eg held nú samt að honum leiðist nú ekki að vera í sviðsljósinu).

Ekki eru nú góðar fréttir úr Smálöndunum (Hrútastíunni) en þar geysar nú SPÁNSKA (SÆNSKA) veikin og er ástandið svo slæmt að Ásgeir er fluttur út fyrir fullt allt.

Af öðrum vígstöðvum er nú ekki mikið að frétta.

Kv ritstjóri

|

föstudagur, apríl 01, 2005

Að norðan 

Það kom upp hugmynd með þetta nafnavesen á þeim Allaköllunum, en það er að kalla Alla Kalla norðanmanna Aðalstein Sigurkarl (Alli Siggikalli).
ekki meira að sinni,

Kv ritstjóri

|

Að norðan 

Í fréttum er það helst að Ólafur "eldri" hefur verið alveg þversum síðustu daga og olli það vinnufélögum hans miklum heilabrotum hver djö... væri að honum, og fyrir rest komust þeir að þeirri niðurstöðu að Jói hefur verið í fríi síðan fyrir páska og sá "gamli" ekkert getað lagt hann í fjölelti.

Svo skemmtilega vildi til í dag að báðir Alla Kallarnir voru hér fyrir norða, þó svo að Aðalsteinn Karl Sigurjón sé ekki sáttur við að þessi tiltekni "sunnanmaður" sé kallaður Alli Kalli eins og hann.

Ekki meira að sinni.

Kveðja ritstjóri.

|

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com