<$BlogRSDUrl$>

laugardagur, apríl 23, 2005

Að norðan 

Jæja þá er það smá pistill um vorfagnaðinn.

Ekki er vitað annað en þetta hafi allt farið mjög vel fram, þó svo að sumir hafi komið eitthvað útlitsgallaðir heim.
Nú reynt var eftir fremsta megni að sjá til þess að allir hefðu eitthvað fyrir stafni og var ákveðið að halda smá íþróttamót en eins og flestir vita þá eru starfsmenn SBA mjög íþróttamannslega vaxnir, svo segir í lögum félagsins að stuðla skuli að útiveru og íþróttum

3.gr.

Tilgangur félagsins er að víkka sjóndeildarhring félagsmanna og auka og efla kynni þeirra. Þessum tilgangi hyggst félagið, meðal annars, ná með:

a) Fræðslustarfsemi.
b) Íþróttaiðkun, og annari útiveru.
c) Fjölþættu skemmtanalífi.
d) Ferðalögum.
Á dagskrá voru eftitaldar íþróttir.
Spretthlaup en þar vann Jói Risi (Dvergur) Bjössa Jó.
Hindrunarhlaup en þar vann enginn en Óli Thedd komst þó lengst.
Glasalyftingar þar gekk flestum vel og var ansi jöfn keppni en Bjöggi vann á endanum.
Dvergakast ekki náðist í dverginn þar sem Jói vann spretthlaupið.
Svo stóð til að fara í leikinn YFIR en hann féll niður af sömu ástæðu og dvergakastið.
ekki meira að sinni.
kv ritstjóri

|
Comments: Skrifa ummæli

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com