<$BlogRSDUrl$>

laugardagur, febrúar 28, 2004

Að norðan 

Jæja kominn úr hjúkunum stoppaði frekar stutt þar,en mér sýndist allt vera við það sama þar allt skipulagt út í ystu æsar og dagurinn þéttsetinn hjá rútubílstjórunum, en meira um það síðar.


|

mánudagur, febrúar 23, 2004

Að norðan 

Frá Akureyri.
Kæru lesendur þar sem ritstjórinn er að fara í Íllviðrahnjúka (Kárahnjúka) þá mun lítið gerast hér nema þá að Gústi sunnanmaður væri fáanlegur til að sinna þessu tímabundið það versta við það er að ég er hræddur um að hann verði hliðhollur sunnanmönnum í skrifum sínum en eitt af aðalsmerkjum þessarar síðu algjört hlutleysi hvað varðar atarfsmenn hvort sem þeir eru norðan eða sunnanmenn.
Aldrei þessu vant þá brugðu Von Klinkenberg Greifi og hans aðstoðarmaður Sjóðríkur sér til Þýskalands í bílaleiðangur þegar síðast fréttist þá voru þeir í gistivandræðum í Frankfurt og ekki í fyrsta skipti og örugglega ekki síðasta.

Frá Reykjavík.
EKKERT

Að Eystan
Helvítis skítaveður sjáum ekki einu sinni rúðuþurrkurnar á rútunum sögðu strákarnir, og Bjarni var að æfa listdans á tuttuguogþremur,og sumir komnir með heimþrá og segja að konunni leiðist að vera einni heima (það getur nú varla verið mikið vandamál að hafa ofan af fyrir henni, eða hvað sunnanmenn ?)


Kveðja Ritstjóri.

.

|

Að norðan 

Frá Ósómanum.
Samkvæmt mjög áræðanlegum heimildum þá er varnarliðið á Keflavíkurflugvelli farið af landi brott og mun ástæðan vera sú að starfsmenn Ósómadeildar (Reykjavíkurdeildar) SBA-NORÐURLEIÐAR fóru í heimsókn þangað á Laugardaginn var, og munu dátarnir hafa hoppað beint upp í næstu flugvél og haft sig af landi brott þeir hafi ekki viljað taka séns á að fá svona rumpulýð aftur það væri ekki leggjandi á nokkurn mann. En okkur tókst að redda nokkrum myndum af þessari heimsóknen þar sem ekki vannst tími til að vinna og yfirfara myndirnar þá munum við birta þær seinna í dag.

Frá Akureyri.
Þar sem ritstjórinn hefur verið í fríi síðan um hádegi á föstudag hef ég ekki hugmynd um hvað hefur verið að gerast um helgina.

Frá Kárahnjúkum.
Ekki eru nú miklar fréttir að eystan, þó var eitthvert loftvesen á þeim en allt reddaðist enda hafa þeir Bjarna þarna og þá eru þeir á grænni grein hvað viðgerðir snertir.

Kveðja ritstjóri

|

miðvikudagur, febrúar 18, 2004

Að norðan 

Ekki hefur nú frést mikið úr Kárahnjúkum,þó fréttist að Von Villeroy & Boch hafi verið að hugsa um að skilja eitthvað af hjólum GS 607 eftir á ADIT 1 en hætt við á síðustu stundu. Vaktaskipti urðu í Hnjúkunum í dag en þangað fóru Doddi, Bjarni Belgur, Sigurjón Togga og Þórður en hann mun vera nánast glænýr starfsmaður sunnandeildar og vitum við ekkert meira um hann en munum reyna að bæta úr því, þar sem Belgurinn er þarna fyrir eystan þá verður örugglega hægt að fá fréttir af austurvígstöðvunum en meira um það síðar. Frá Akureyri eru nú ekki miklar fréttir enn er unnið við kaffistofuna í Freyjunesi og Víkingur í Gleri er nánast fluttur í Mývó fær rétt að koma í bæinn til að ná í nafna sinn þó ekki í gleri. Úr Ósómaborginni (Reykjavík) fréttist EKKERT, höldum þó að þeir séu flestir á lífi en lesum þó dánarfregnirnar í mogganum svona til öryggis.

Kveðja Ritstjóri


.

|

Að norðan 

Í fréttum er það helst að það er voðalega lítið að frétta. Þó eru fréttir að sambýlingunum Arnari og Ásgeir en ég þori ekki fyrir mitt litla líf að segja þær hér ég er í nógu slæmum málum hvað þá félaga varðar, Arnar hættur að heilsa mér og svo framvegis en ekki veit ég hvað ég hef gert þeim, ég kom bara með lausn á húsnæðisvanda þeirra og það meira að segja bara helvíti góða lausn ekki bara fyrir þá heldur alla (flesta) aðra starfsmenn SBA.

Kveðja ritstjóri



.

|

mánudagur, febrúar 16, 2004

Að norðan 

Hvernig er það með þig Ágúst Guðbjörn Valsson ertu alveg hættur að sinna heimasíðu þinni ?????????

Nýtt á síðu Sigga: Mynd af Ding Dong (Skömbó)

Kveðja Ritstjóri


,

|

Að norðan 

Þessa dagana (Þessar vikurnar) er unnið að byggingu nýrrar kaffistofu á verkstæðinu í Freyjunesi, eitthvað gengur það nú rólega og eru leikur grunur á að Gunnar M hafi samið við IMPREGILO að fá slatta af RÚMENUM til verksins alla vegana er framkvæmdahraðinn svipaður og hjá þeim í Kárahnjúkum og samkvæmt MJÖG ÁRÆÐANLEGUM heimildum er ekkert vitað um verklok.

Kveðja Ritstjóri

.

|

Að norðan  

Samkvæmt mjög áreiðanlegum heimildum hafa tveir sunnanmenn hafi verið aðlaðir í Kárahnjúkum nú á dögunum, en Það munu vera Haukur og Jens og ganga þeir nú undir nöfnunum Von Gustafsberg og Von Villeroy & Boch óskum við þeim til hamingju með þessa öðlun. Annars er það helst að frétta að ritstjórinn skellti sér á helvíti góða tónleika á Laugardaginn en þeir voru með Kvartettinni Út í Vorið en það eru Einar Clausen og félagar, aumingja Einar að þurfa að vera svona alvarlegur í langan tíma að vísu gekk það nú frekar ílla hjá honum.

Nýtt á síðu Sigga: helvíti góð mynd af Eini.

|

föstudagur, febrúar 13, 2004

Að norðan 

Það er nú ekki mikið að frétta hér norðan heiða nema þá helst það að Ásgeir er að drífa í að klára SJ 042 svo að hann geti farið í Sæluhnjúka, en hann heldur að hann fái ekki að fara fyrr en hann erbúinn með hann.

Kveðja ritstjóri

|

miðvikudagur, febrúar 11, 2004

Að norðan

Héðan er það helst að frétta að keyptur var patrol handa Víkingi, en ekkert hefur frést af utanför Klinkenbergs og Sjóðríks.
Úr Kárahnjúkum er það helst að frétta að nú hringja menn heim og biðja um þeim verði send stígvél því það sé allt á kafi í drullu.

Kveðja ritstjóri

.

|

mánudagur, febrúar 09, 2004

Að norðan
Seinnipart Janúar þá dvaldi ritstjóri í Sæluhnjúkum og hélt smá dagbók og munum við birta hér smá brot úr henni, þá geta menn séð þvílík erfiði þetta er þarna fyrir austan og ekki mikið um frístundir.

Dagbók Kárahnjúkum Janúar 2004
Rituð af Sigga Hjartar
Fimmtudagur 22 Janúar 2004
Dagur 1.
Mætti á umferðarmiðstöðina á Akureyri kl 06:50 setti á kaffikönnuna svo var ZS 494 settur í gang, því næst var farið í kaffi og beðið eftir Ólafi Karlssyni frá Skarði en hann átti að fara með mér í SÆLUNA. Stundvíslega rétt rúmlega sjö var lagt af stað first var farið út á verkstæði og ná í drasl sem átti að fara með í hnjúkana því næst var Akureyri yfirgefin og stefnan tekin austur á land ,þegar við vorum allveg að verða komnir á Egilsstaði hringdi Torfi (en við áttum að skipta við hann og Sæmund) og spurði hvort ég væri ekki á leiðinni til sín, sagði ég honum að ég kæmi ekki fyrr en á morgun það hefði verið talað um að við færum austur á FÖSTUDAG, ekki vildi hann nú samþykkja það nú ég sagði honum að ég væri á leiðinni fram í Hrafnagil að keyra krakkana heim og vissi ekkert meira um þetta mál, fór nú að þykkna í Torfa og sagði hann ýmislegt um stjórnendur fyrirtækisins þau hefðu lofað að hann kæmi heim á FIMMTUDAG og sagðist ætla að hringja á skrifstofuna og lesa þeim pistil, ég rétt náði að stoppa hann áður er hann skellti á og bað hann að vera aðeins rólegan því við Óli ætluðum að fá okkur kaffi í rólegheitum á Egilsstöðum, ég æltla ekki að hafa það eftir sem Torfi sagði við mig en hann var pínu reiður við mig eða eiginlega dálítið mikið reiður því hann var farinn að trúa því að við kæmum ekki fyrr en á morgun. Svo var stoppað í kaffipásu á Egilsstöðum því næst var ekið sem leið liggur upp í Kárahnjúka first á ADIT 2 til Torfa á afleggjaranum þangað keyrðum við fram á einn vörubíl á hliðinni utan vegar (ekki bill frá Ítölunum) svo þegar við vorum að renna í hlað hjá Torfa týndum við loftinu úr hægra framdekkinu, en það gerði ekkert til við létum Torfa skipta um dekk meðan við fórum í mat, því næst var ekið upp í Main Camp þar sem við hittum Sæmund og ég tók við af honum.
Ekki er nú hægt að segja að það sé rólegt að vera hópferðabifreiðarstjóri í Kárahnjúkum ég þurfti að vera mættur við trésmíðaverkstæðið kl 17:45 og taka kallana þar og keyra þeim að matsalnum en allur þessi akstur var samanlagt 2 km og samanlagður akstur dagsins hjá mér og Sæmundi var 11km.
Föstudagur 23 Janúar 2004
Dagur 2.

Vaknaði við helv…. Klukkuna kl:05:30 allveg ótrúlega ferskur dreif í morgunverkunum svo út að setja í gang og niður að matsal fékk mér kaffisopa með Óla, svo tók alvara lífsins við kl 06:45 keyra kallana alla leið út á verkstæði en það tók ca 10 mín (báðar leiðir) svo var farið í morgunmat því næst upp á rútustæði og eyða tímanum fram til 11:15 en þá á að ná í kallana í mat og keyra þeim úr mat kl 12:20. Þá dreif ég mig í mat eftir matin var farið í að græja rafmagn fyrir inverterin en hann er 12 volt ekki var nú mikið vandamál að finna 12 volt en þá vantaði snúru þannig að ég hringdi í Eirík en hann var út á verkstæði í dekkjabrasi og reddaði hann snúru, var þá hægt að hefjast handa að tengja breiðtjaldsgræjurnar í rútuna en þegar átti að tengja græjuna við hljóðkerfi bílsins kom í ljós að kasettutækið virkaði ekki og ekki var það nú gott því ekki nennum við að horfa á þöglar myndir (það er löngu liðin tíð) nú við drifum græjuna yfir í rútuna til Eiríks og tengdum þar en ekki var það nú mikið betra rétt heyrðum smá óm í hljóðkerfi bílsins. Þannig að við ákváðum eftir mikil og stíf fundarhöld að far bara að leggja okkur aðeins, en ekki var nú tíminn mikill því að ég þurfti að vera mættur við verkstæðið kl 17:45 og keyra kallana heim að matsal og leggja kagganum á rútustæðið og fara að skrifa dagbókina svo í mat með Óla í kvöldmat.
Samanlagður akstur dagsins eru heilir 13 kílómetrar.

Laugardagur 24 Janúar 2004
Dagur 3.

Vaknaði að venju kl: 05:30 dreif í morgunverkunum fór svo að setja í gang og í morgunsopann með Óla svo þetta venjulega keyra kallana í vinnuna, þá var komið að morgunmat , því næst upp á rútustæði að hvíla eftir erfiði morgunsins, hringdi í Óla til að athuga hvernig honum gengi tjáði hann mér að það væri ekkert ferðaveður það væri eina vitið að loka veginum. Því næst fór ég til Eiríks og ræddum við málin svo þurfti nú að hvíla sig dálítið meira en þá kom Joseph og vildi senda Eirík til Egilsstaða ekki leist okkur nú vel á það því það væri örugglega mjög þungfært ef ekki ófært og alls ekkert ferðaveður eftir símtöl hingað og þangað var ákveðið að hætta við, en ekki leið löng stund þá var hringt í Eirík og honum sagt að hann ætti að fara það mundi bíða hefill eftir honum við ADIT 3 og fylgja honum þannig að það var farið af stað, ekki sá nú Eiríkur þennan hefil og var hann 3 klst niður í fljótsdal ca 70 km og sagði að þetta væri nú ljóta heimskan að gera þetta. Nú af Ólafi frá Skarði er það að frétta að hann er sennilega búinn að finna kellingu á ADIT 2 alla vegana þvertók hann fyrir að koma uppeftir í kvöld bar því við að það væri kolvitlaust veður og allt ófært. Þannig að ég er eini Íslenski rútubílstjórinn hér efra því að Eiríkur hefur sennilega fundið kellingu á Egilsstöðum allavega ætlar hann að vera þar í nótt.
Samanlagður akstur dagsins eru heilir 11 kílómetrar.

Sunnudagur 25 janúar 2004
Dagur 4.
Vaknaði að venju kl:05:30 sinnti þessum föstu morgunverkum, fór svo að setja í gang, ekki var nú mikill afgangur á að bíllinn færi í gang. Það er skítaveður og ekki lýst mér nú á að það verði farið til Egilsstaða en það er allt í lagi mín vegna ekki eru þessar ferðir svo spennandi. Nú ég keyrði köllunum í vinnuna kl: 06:45 eitthvað var nú léleg mæting það vantaði ca helminginn, svo var farið í morgunmat svo þetta vanalega upp á stæði og slappa af. En ég var einn þar því Óli var veðurtepptur á ADIT 2 og Eiríkur veðurtepptur á Egilsstöðum, svo var náð í kallana í mat og svo beðið eftir ákvörðun um Egilsstaðaferð á endanum kom svar ekki skyldi farið þannig að ég fór og lagði rútunni á stæðið, svo hafði ég samband við Ólaf frá Skarði en hann átti í vandræðum með loftið á bílnum enda helvítis gaddur og vorum við að velta því fyrir okkur að ég færi til hans og tæki kallana þannig að þeir kæmust allavegana heim en svo talaði Óli við Eirík og töluðu þeir um að hann færi ekki framhjá ADIT 2 nema að hafa samband, en að lokum vann Skarðsbóndinn orustuna um loftið og komst af stað. Því næst fór ég og lagði mig eftir allt erfiði dagsins en heildarakstur dagsins var hvorki meira né minna en 6 KM.

|

laugardagur, febrúar 07, 2004

Að norðan
Nýjar þorrablótsmyndir á síðu Sigga Hjartar

Kveðja ritstjóri


.

|

föstudagur, febrúar 06, 2004

Að norðan

Á ýmsu hefur nú gengið í Kárahnjúkum síðustu daga og sér bæði á mönnum og bílum,ekki hefur frést neitt að gærdeginum og vonum að hann hafi sloppið við skakkaföll,en það er aldrei að vita hvað gerist þarna á þessum "yndislega" stað.

Kveðja ritstjóri




.

|

þriðjudagur, febrúar 03, 2004

Að norðan
héðan er nánast allt gott að frétta Arnar á Útistöðum er bara nokkuð góður þrátt fyrir hrottalega líkamsárás nú nýlega, samt er nú rætt um að setja kauða í einangrun því það hlýtur að koma að því að þetta endi með ósköpum.

Kveðja ritstjóri

|

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com