<$BlogRSDUrl$>

miðvikudagur, febrúar 18, 2004

Að norðan 

Ekki hefur nú frést mikið úr Kárahnjúkum,þó fréttist að Von Villeroy & Boch hafi verið að hugsa um að skilja eitthvað af hjólum GS 607 eftir á ADIT 1 en hætt við á síðustu stundu. Vaktaskipti urðu í Hnjúkunum í dag en þangað fóru Doddi, Bjarni Belgur, Sigurjón Togga og Þórður en hann mun vera nánast glænýr starfsmaður sunnandeildar og vitum við ekkert meira um hann en munum reyna að bæta úr því, þar sem Belgurinn er þarna fyrir eystan þá verður örugglega hægt að fá fréttir af austurvígstöðvunum en meira um það síðar. Frá Akureyri eru nú ekki miklar fréttir enn er unnið við kaffistofuna í Freyjunesi og Víkingur í Gleri er nánast fluttur í Mývó fær rétt að koma í bæinn til að ná í nafna sinn þó ekki í gleri. Úr Ósómaborginni (Reykjavík) fréttist EKKERT, höldum þó að þeir séu flestir á lífi en lesum þó dánarfregnirnar í mogganum svona til öryggis.

Kveðja Ritstjóri


.

|
Comments: Skrifa ummæli

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com