fimmtudagur, janúar 27, 2005
Frá ritstjóra
Jæja verð nú að viðurkenna að ég hef verið frekar slappur við að skrifa en ég held að það sé Magga að kenna ég hef nefnilega verið að klára höfundarlaunin og það getur nú tekið dálítið á. En síðast liðið laugardagskvöld þá hélt SBA árshátíð á KEA sem tókst í alla staði mjög vel, og skemmtu menn og konur sér að ég held bara mjög vel, meira seinna.
Var að setja inn tengil á bloggið hans Sidda.
Kv ritstjóri
|
Var að setja inn tengil á bloggið hans Sidda.
Kv ritstjóri
miðvikudagur, janúar 26, 2005
Frá Magga (taka tvö)
Gunni á eyrinni (Gvendur á eyrinni).
Hann Gunni á eyrinni ku vera ríkur kall,
enda er hann Klinkenberg.
Hann keypt hefur bílflota og gamlan kofahjall,
býsna gott hjá Gunna dverg.
Og alltaf sást Gunni greyið eyða fullt af fé,
af seðlum á hann nóg.
Evrur og dollara í mat- og kaffihlé
upp úr vasa sínum dró.
Hann Gunni á eyrinni ku vera ríkur kall,
enda er hann Klinkenberg.
Hann keypt hefur bílflota og gamlan kofahjall,
býsna gott hjá Gunna dverg.
Og alltaf sást Gunni greyið eyða fullt af fé,
af seðlum á hann nóg.
Evrur og dollara í mat- og kaffihlé
upp úr vasa sínum dró.
Hann er á eyrinni vikuna alla
með rútuútgerð ef vel er gáð.
Og ef í strand siglir með nokkra kalla
þá gefur Sjóðríkur honum ráð.
Og í Skógarhlíðinni á skrifstofunni hlær
rekstrarfíflið, Sjóðríkur.
Þar situr hann, nýkominn frá útlöndum í gær
og bumbuna strýkur.
þar rútunni glataði og rataði´ekki heim
en kom þó fyrir rest
‘I menningaráfalli hann hafði, sagði þeim,
næstum orðið fyrir lest.
‘Ut á lestarstöð.
‘Ut á lestarstöð ég keyri um með skjálft´í hendi.
‘A teinana ég álpaðist, á lest ég held ég lendi.
Hárin rísa af hræðslu um að bráðum komi lestin
ég gert hef nú í brækurnar og aukist hefur pestin.
Hæ góði Guð, ertu þarna kæri,
viltu hjálpa mér að komast raunum úr.
Það væri stuð, ef í kirkju loksins færi
ég ef þú myndir gæda mér í þessum túr.
En ekki finn ég rútustæði fyrir þennan fjarka,
nema í fjandans fjarlægð þó og verð ég þá að arka.
‘A hótelið ég stefni nú og strákana að hitta,
en rammvilltur í hringi fer eins og fyllibytta.
Hæ góði Guð...........
Mazdan (Pípan)
(1)
‘Eg sá hana fyrst fyrir fáum árum
óryðguð var hún þá,
og mengaði loftið og olli mér tárum
í reykmekki ekkert sá.
Síðla á kvöldin við vorum oft fegnir
að komast með hana í hlað.
Því oftar en ekki voru við dregnir
til að koma nú henni af stað.
Þeir ætluðu seinna að lagfæra hana
og héldu’ að það yrði létt.
Þeir gáfust loks upp og hringdu á krana,
það eina sem þeir gerðu rétt.
En saknaðartárin niður kinnarnar runnu
í brotajárnið hún fór,
og breyttist svo seinna í olíutunnu
þó ekki nú sé hún stór.
Það ætti að henda þér
(2)
Þú er ferlega asnaleg
og ljót ert´á litin.
Hjólkopparnir farnir af
og dekkin soldið slitin.
Húddið á þér bogið
og vélin öll í pati.
Húsið saman sogið
eins og í rassgati.
‘Eg held það ætti að henda þér.
Það ætti að henda þér.
Það ætti að henda þér.
Og endurvinna þig.
Og ef ég gái betur
þá minnir þú á Lödu,
með ryðbletti í gólfinu
svo sést þar niðrí götu.
Með aksturseiginleika
sem hross á heljar brokki
með hurðarhúna veika
og boddí allt í fokki.
‘Eg held það ætti.......
Svo varstu aum í gangi
með handónýta geyma.
‘I bílapressu áttu
svo sannarlega heima.
En skemmd að innan? ójú
og skottið fullt af riði
ei sakna þín en segi nú,
farvel og hvíld’ í friði.
‘Eg held það ætti......
Bestu þakkir til Magga.
Frá Magga (taka eitt)
Bíllinn minn og ég.
Taka taka taka taka taka ta
taka taka taka taka taka ta
taka taka taka taka taka taka taka ta.
Búmm saka búmm búmm búmm
Nú ég ek inn á Runó
Búmm saka búmm búmm búmm
ég hafði ei grænan grunó,
að gólfið var sundur sagað
bara vissi það ekki.
En nú gat ég smurt og lagað
allt hjá vinstra afturdekki.
Hér er enginn sem getur skilið
hvað það munaði minnstu
að færum við oní gilið
og fengjum stundina hinnstu.
Taka taka taka......
Búmm saka búmm búmm búmm
Ekki hafði hann Haffi,
Búmm saka búmm búmm búmm
unnið nema fram að kaffi.
Varir hans hóf´að stækka
,sagði hann þetta dellu
og kinnar og nef að smækka,
minnti á miðaldra mellu.
Hér er enginn sem vitað getur
hvernig er að vera svona,
og miklu mér líður betur
að líta út eins og kona.
Taka taka taka.....
Búmm saka búmm búmm búmm
Býsna klár er hann Beggi.
Búmm saka búmm búmm búmm
blöðum dreifir á veggi.
En þrátt fyrir nýja kúnna
eru rúturnar tómar.
Fær kúnna í gegnum trúnna
hlæilegt það nú hljómar.
Hér er listin að keyra landann
og í kúnnana krækja,
og í heilmikið fólk að handan
þurfum einnig að sækja.
Taka taka taka.......
Taka taka taka taka taka ta
taka taka taka taka taka ta
taka taka taka taka taka taka taka ta.
Búmm saka búmm búmm búmm
Nú ég ek inn á Runó
Búmm saka búmm búmm búmm
ég hafði ei grænan grunó,
að gólfið var sundur sagað
bara vissi það ekki.
En nú gat ég smurt og lagað
allt hjá vinstra afturdekki.
Hér er enginn sem getur skilið
hvað það munaði minnstu
að færum við oní gilið
og fengjum stundina hinnstu.
Taka taka taka......
Búmm saka búmm búmm búmm
Ekki hafði hann Haffi,
Búmm saka búmm búmm búmm
unnið nema fram að kaffi.
Varir hans hóf´að stækka
,sagði hann þetta dellu
og kinnar og nef að smækka,
minnti á miðaldra mellu.
Hér er enginn sem vitað getur
hvernig er að vera svona,
og miklu mér líður betur
að líta út eins og kona.
Taka taka taka.....
Búmm saka búmm búmm búmm
Býsna klár er hann Beggi.
Búmm saka búmm búmm búmm
blöðum dreifir á veggi.
En þrátt fyrir nýja kúnna
eru rúturnar tómar.
Fær kúnna í gegnum trúnna
hlæilegt það nú hljómar.
Hér er listin að keyra landann
og í kúnnana krækja,
og í heilmikið fólk að handan
þurfum einnig að sækja.
Taka taka taka.......
þriðjudagur, janúar 25, 2005
Að handan
Lag: tíu litlir negrastrákar.
Tíu litlir Portúgalar unnu á Kárahnjúkum
Ofsalega varð þeim kalt á sínum litlu búkum.
Níu litlir Portúgalar sinntu vinnu sinni
Einn þeirra varð úti þótt hann væri inni.
Átta litlir Portúgalar fengu lítil laun
Þeir kvörtuðu við Ítala sem skildi ekki baun.
Sjö litlir Portúgalar fóru í jólafrí
Hvað skildu nú margir þeirra aftur snúa úr því.
Sex litlir Portúgalar vildu koma aftur
En verkalýðsforystan var ekkert nema kjaftur.
Fimm litlir Portúgalar greiddu engan skatt
Svo sveitarfélög austanlands þau fóru ansi flatt.
Fjórir litlir Portúgalar sögðu “þetta er nóg”
Þá hló og hló og hló og hló og hló Impregíló
Og sagði “ Farið fjandans til það er sko bættur skaðinn
Við fáum bara þúsund gula Kínverja í staðin
Því þúsund gulir Kínverjar, þeir kosta minna í krónum
Þeir lifa bara á grjónum og éta þau með prjónum".
SALTKJÖT OG BAUNIR TÚKALL
|
Tíu litlir Portúgalar unnu á Kárahnjúkum
Ofsalega varð þeim kalt á sínum litlu búkum.
Níu litlir Portúgalar sinntu vinnu sinni
Einn þeirra varð úti þótt hann væri inni.
Átta litlir Portúgalar fengu lítil laun
Þeir kvörtuðu við Ítala sem skildi ekki baun.
Sjö litlir Portúgalar fóru í jólafrí
Hvað skildu nú margir þeirra aftur snúa úr því.
Sex litlir Portúgalar vildu koma aftur
En verkalýðsforystan var ekkert nema kjaftur.
Fimm litlir Portúgalar greiddu engan skatt
Svo sveitarfélög austanlands þau fóru ansi flatt.
Fjórir litlir Portúgalar sögðu “þetta er nóg”
Þá hló og hló og hló og hló og hló Impregíló
Og sagði “ Farið fjandans til það er sko bættur skaðinn
Við fáum bara þúsund gula Kínverja í staðin
Því þúsund gulir Kínverjar, þeir kosta minna í krónum
Þeir lifa bara á grjónum og éta þau með prjónum".
SALTKJÖT OG BAUNIR TÚKALL
föstudagur, janúar 21, 2005
Að norðan
Jæja þá er allt að gerast um helgina, sunnanliðið að koma norður í menningarreisu og fá andlega upplyftingu (ekki veitir þeim nú af) en meira um það síðar. En útibússtjórinn í Reykjavík gat náttúrulega ekki komið með þeim óbreyttu norður í rútu og mætti löngu á undan þeim.
En meira um allt þetta eftir helgi.
kveðja og skál frá ritstjóra.
|
En meira um allt þetta eftir helgi.
kveðja og skál frá ritstjóra.
fimmtudagur, janúar 20, 2005
Frá ritstjóra
Jæja nú er allt að gerast , og enginn andskot... tími til að skrifa. En lofa að fara að bæta úr þessu fljótlega.
Kv. ritstjóri
|
Kv. ritstjóri
mánudagur, janúar 10, 2005
Að norðan
Gleðilegt ár allir saman og takk fyrir allt gamalt og gott.
Hér gerist bara ekki neitt sökum leti ritstjóra en það stendur til bóta, og verið nú duglegri að skrifa í GESTABÓKINA.
Kveðja ritstjóri.
|
Hér gerist bara ekki neitt sökum leti ritstjóra en það stendur til bóta, og verið nú duglegri að skrifa í GESTABÓKINA.
Kveðja ritstjóri.
