sunnudagur, október 28, 2007
MAN TGX og TGS eru ”Vörubíll ársins 2008“

Alþjóðlegur kviðdómur veitir nýju gerðunum frá MAN hin eftirsóttu verðlaun ”Truck of the Year 2008“
Á bílasýningunni “European Road Transport Show 2007” sem nú stendur yfir í Amsterdam í Hollandi voru MAN TGX og MAN TGS veittur titillinn “Vörubíll ársins 2008”. MAN er þar með fyrsti framleiðandi vörubíla, sem hlotið hefur þennan eftirsótta titil sjö sinnum.
Kviðdómur, sem samanstendur af 20 virtum evrópskum blaðamönnum fagtímarita, valdi þessar tvær nýju gerðir úr “Trucknology® Generation” línunni sem “Truck of the year 2008”.
MAN TGX og TGS fagna heimsfrumsýningu sinni á atvinnubílasýningunni í Amsterdam . Við þróun og hönnun þessara tveggja nýju gerða vörubíla í stærðarflokkunum 18 til 50 tonn, var sérstök áhersla lögð á áreiðanleika, hagkvæmni og þægindi. Með vali sínu á TGX og TGS hefur kviðdómurinn staðfest það að þessum markmiðum hefur í raun verið náð. Anton Weinmann, stjórnarformaður MAN Nutzfahrzeuge, tók við hinni eftirsóttu viðurkenningu í Amsterdam í dag 25. október. “Titillinn “vörubíll ársins 2008” er frábær viðurkenning fyrir alla starfsmenn hönnunar- og framleiðsludeildar MAN, sem innt hafa frábært verk af höndum, allt frá fyrstu hugmyndum um hönnun til framleiðslu hinna nýju gerða”. “Þessar nýju gerðir MAN vörubíla setja nýja staðla um áreiðanleika, hagkvæmni og þægindi í þeirra stærðarflokki. Þetta hefur kviðdómurinn staðfest með sínu atkvæði”, sagði Weinmann. “Við höfum hlotið einróma lof fyrir TGX og TGS, bæði frá blaðamönnum, sem og okkar eigin viðskiptavinum, sem nú þegar hafa haft tækifæri til að reyna báðar þessar gerðir. Ég er sannfærður um að verðlaunabílarnir okkar muni einnig hljóta mikið lof frá gestum sýningarinnar í Amsterdam ”.
MAN hlýtur “Truck of the Year“ titilinn í sjöunda skipti.
Eftir 1978, 1980, 1987, 1995, 2001 og 2006, er þetta í sjöunda skipti, sem MAN hlýtur hina eftirsóttu viðurkenningu “Truck of the Year“, sem búið er að veita síðan 1977. Enginn annar framleiðandi atvinnubíla hefur náð þessum áfanga fram að þessu. Með atkvæði sínu staðfesta sérfræðingar alþjóðlegs kviðdóms hátt stig tæknilegra framfara sett fram af MAN Trucknology® Generation.
Sigurvegarar “Truck of the Year“ bikarsins frá MAN Nutzfahrzeuge
1978 MAN 19.280
1980 MAN 19.321
1987 MAN F90
1995 MAN F2000
2001 MAN TGA
2006 MAN TGL
2008 MAN TGX og MAN TGS
Frekari upplýsingar má finna á www.man-mn.com/media
|

fimmtudagur, október 18, 2007
Einn góður
Í sveitinni.
Þessi gerðist í afskekktri sveit á Austfjörðum ekki alls fyrir löngu.
Sighvatur, sem kominn var yfir miðjan aldur og Sóley, ung blómarósnæstum helmingi yngri en hann höfðu verið gift í nokkra mánuði og Sóley kvartaði yfir því að fá aldrei fullnægingu með manni sínum. Í sveitinni var ekki læknir en á næsta bæ bjó Sigurður dýralæknir og þau ákváðu að leita til hans með vandræði sín. Sigurður dýralæknir sagðist engin svör kunna við þessu en hann myndi þó eftir því að þegar hann var lítill drengur í þessari sömu sveit, þá hefði belja á bænum átt í erfiðleikum með að fæða kálf og foreldrar hans tekið til þess ráðs að veifa stóru handklæði framan í kúna til þess að kæla hana niður og hjálpa henni að slaka á. Þetta hefði virkað ágætlega.Dýralæknirinn sagði þeim því að fá hann Pál á Brekku, ungan og hraustan strák úr sveitinni til þess að koma og sveifla handklæði yfir þeim af krafti á meðan þau hefðu samfarir. Það gæti hjálpað Sóleyju til þess að kæla sig niður og slaka á.Þau fara að ráðum dýralæknisins og fá því Pál á Brekku til þess aðkoma og sveifa stóru handklæði yfir sér í hjónasænginni en eftir nokkrar tilraunir þá koma þau aftur til Sigurðar og segja að þetta sé ekkert að virka.Sigurður dýralæknir sest niður hugsi í smá stund og segir þeim þá að prófa að skipta, láta Sighvat sveifla handklæðinu en stráksa fara í rúmið með Sóleyju.Hjónin fóru heim og prófuðu þetta. Strákurinn fer í rúmið með Sóleyju og Sighvatur veifar handklæðinu af miklum krafti á meðan. Þá er eins og við manninn mælt að Sóley fær hverja fullnæginguna á eftir annarri með tilheyrandi öskrum og stunum og eftir rúma tvo tíma þá veltir strákurinn sér ofan af Sóleyju kófsveittur og úrvinda. Sighvatur er ekki síður sveittur eftir hamaganginn við að sveifla handklæðinu og horfir á strákinn hróðugur á svipinn og segir með áherslu: "Svooona á að sveifla handklæðinu Páll!".
þriðjudagur, október 16, 2007
Ótrúleg frétt
Veigrar fólk sér við að hringja í Neyðarlínuna?
UNG kona frá Vopnafirði, sem sat föst í bíl sínum í tvær klukkustundir í Víðidal á Möðrudalsöræfum eftir útafakstur, segir með ólíkindum að enginn þriggja vegfarenda, sem hún bað um að hringja fyrir sig í Neyðarlínu þegar þeir kæmu í farsímasamband, lét vita af óhappinu. Hrund Snorradóttir missti bíl sínn út af veginum í snjó og krapa á fimmtudagsmorgun. Bíllinn sat fastur í snjóskafli og Hrund gat ekki opnað neinar dyr. Bað um að hringt yrði í 112 Á rúmri klukkustund komu þrjár bifreiðir að og ökumenn buðu fram aðstoð. Hrönn bað fólkið að aka uns farsímasamband næðist og hringja þá í 112 og biðja um aðstoð. Fjórir til viðbótar óku fram á hana en þá þóttist hún örugg um að hjálp færi að berast og bað þá ekki sérstaklega að láta vita. Tveimur klukkustundum eftir óhappið komu menn frá Vopnafirði aðvífandi, gátu opnað bifreiðina og tóku Hrund með sér. Annar mannanna er í slökkviliðinu á Vopnafirði en hann kannaðist ekki við útkall vegna óhapps á þessum slóðum. Í tíu mínútna fjarlægð frá slysstaðnum náðist farsímasamband og hringdi annar mannanna í Neyðarlínu, sem kannaðist ekki við að tilkynning hefði komið um óhappið og ekkert slíkt væri skráð í gagnasafn. Honum var gefið samband við skiptiborð lögreglu á landsvísu og þar var heldur ekkert skráð um tilkynningu vegna útafakstursins. „Ég hef heyrt á fólki í kringum mig að það veigrar sér við að hafa samband nema kofinn sé hreinlega að brenna ofan af því eða fólki sé að blæða út. Að menn sjái þetta ekki sem hjálparlínu sem segir þér hvernig þú átt að bregðast við ef þú veist það ekki sjálfur. Kannski þarf
að kynna þjónustuna betur,“ segir Hrönn. Ekkert farsímasamband næst á leiðinni frá Svartfelli í Langadal og að Biskupshálsi og þar með í Víðidal, þar sem Hrönn fór út af. Nýbúið er þó að setja upp sendi sem hefur gjörbreytt sambandinu á Vopnafjarðarheiði og Vopnafirði. Þórhallur Ólafsson, forstjóri Neyðarlínunnar, segir að því miður sé nokkuð til í að fólk telji aðstæður þurfa að vera lífshættulegar til að hringja, en Neyðarlínan hafi mjög hvatt til að fólk hringdi ef það væri í vafa og efnt hafi verið til auglýsingaherferða um 112. „Það mega allir hringja í okkur út af öllu. Það hefur því miður kostað mannslíf þegar fólk hefur ekki viljað hringja og gert lítið úr hlutum sem voru í raun mjög alvarlegir,“ segir Þórhallur. Neyðarlínan fær nú að jafnaði um 800 símtöl á sólarhring.

Heimild. www.mbl.is