<$BlogRSDUrl$>

þriðjudagur, október 16, 2007

Ótrúleg frétt 

Veigrar fólk sér við að hringja í Neyðarlínuna?

UNG kona frá Vopnafirði, sem sat föst í bíl sínum í tvær klukkustundir í Víðidal á Möðrudalsöræfum eftir útafakstur, segir með ólíkindum að enginn þriggja vegfarenda, sem hún bað um að hringja fyrir sig í Neyðarlínu þegar þeir kæmu í farsímasamband, lét vita af óhappinu. Hrund Snorradóttir missti bíl sínn út af veginum í snjó og krapa á fimmtudagsmorgun. Bíllinn sat fastur í snjóskafli og Hrund gat ekki opnað neinar dyr. Bað um að hringt yrði í 112 Á rúmri klukkustund komu þrjár bifreiðir að og ökumenn buðu fram aðstoð. Hrönn bað fólkið að aka uns farsímasamband næðist og hringja þá í 112 og biðja um aðstoð. Fjórir til viðbótar óku fram á hana en þá þóttist hún örugg um að hjálp færi að berast og bað þá ekki sérstaklega að láta vita. Tveimur klukkustundum eftir óhappið komu menn frá Vopnafirði aðvífandi, gátu opnað bifreiðina og tóku Hrund með sér. Annar mannanna er í slökkviliðinu á Vopnafirði en hann kannaðist ekki við útkall vegna óhapps á þessum slóðum. Í tíu mínútna fjarlægð frá slysstaðnum náðist farsímasamband og hringdi annar mannanna í Neyðarlínu, sem kannaðist ekki við að tilkynning hefði komið um óhappið og ekkert slíkt væri skráð í gagnasafn. Honum var gefið samband við skiptiborð lögreglu á landsvísu og þar var heldur ekkert skráð um tilkynningu vegna útafakstursins. „Ég hef heyrt á fólki í kringum mig að það veigrar sér við að hafa samband nema kofinn sé hreinlega að brenna ofan af því eða fólki sé að blæða út. Að menn sjái þetta ekki sem hjálparlínu sem segir þér hvernig þú átt að bregðast við ef þú veist það ekki sjálfur. Kannski þarf
að kynna þjónustuna betur,“ segir Hrönn. Ekkert farsímasamband næst á leiðinni frá Svartfelli í Langadal og að Biskupshálsi og þar með í Víðidal, þar sem Hrönn fór út af. Nýbúið er þó að setja upp sendi sem hefur gjörbreytt sambandinu á Vopnafjarðarheiði og Vopnafirði. Þórhallur Ólafsson, forstjóri Neyðarlínunnar, segir að því miður sé nokkuð til í að fólk telji aðstæður þurfa að vera lífshættulegar til að hringja, en Neyðarlínan hafi mjög hvatt til að fólk hringdi ef það væri í vafa og efnt hafi verið til auglýsingaherferða um 112. „Það mega allir hringja í okkur út af öllu. Það hefur því miður kostað mannslíf þegar fólk hefur ekki viljað hringja og gert lítið úr hlutum sem voru í raun mjög alvarlegir,“ segir Þórhallur. Neyðarlínan fær nú að jafnaði um 800 símtöl á sólarhring.

Heimild. www.mbl.is

|
Comments: Skrifa ummæli

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com