fimmtudagur, júní 28, 2007
Ein góð saga
Þetta er saga af litlum dreng sem var afar geðvondur. Faðir hans gaf honum naglapakka og sagði honum að í hvert sinn sem hann misst stjórn á skapi sínu skyldi hann negla einn nagla í bakhlið grindverksins
Fyrsta daginn negldi drengurinn 37 naga í grindverkið. Næstu vikurnar lærði hann að hafa stjórn á reiði sinni og fjöldi negldra nagla minnkaði dag frá degi. Hann uppgövaði að það var auðveldara að hafa stjórn á skapi sínu heldur en að negla alla þessa nagla í girðinguna. Loksins rann upp sá dagur að einginn nagli var negldur í girðinguna of drengurinn hafði lært að hafa stjórn á sér. Hann sagði föður sínum þetta og faðirinn lagði til að nú drægi drengurinn út einn nagla fyrir hvern dag sem hann hefði stjórn á sér. Gadarnir liðu og loks gat drengurinn sagt föður sínum að allir naglarnir væru horfnir. Faðirinn tók soninn við hönd sér og leiddi hann að grindverkinu. “ Þú hefur staðið þig með prýði, en sjáðu öll götin á grindverkinu. Það verður aldrei eins og það var áður. Þegar þú segir einhvað í reiði, skilur það eftir sig ör eins og naglarnir. Þú getur stungið mann með hníf og dregið hnífinn aftur úr sárinu en það er alveg sama hve oft þú biðst fyrirgefningar, örin eru þarna samt áfram. Ör sem orð skilja eftir sig geta verið jafn slæm og líkamleg ör.
|