þriðjudagur, júní 29, 2004
Að norðan
Eftirfarandi er tekið af mbl.is.
KEA tilbúið að leggja allt að 100 milljónir til Vaðlaheiðarganga
Kaupfélag Eyfirðinga svf. (KEA) hefur kallað eftir stofnun framkvæmdafélags um gerð Vaðlaheiðarganga og er tilbúið að tryggja hlutafé allt að 100 milljónir króna til félagsins. Kom þetta fram á aðalfundi Greiðrar leiðar ehf. – undirbúningsfélags um gerð jarðganga undir Vaðlaheiði – á Akureyri í gær.
Greið leið ehf. var stofnuð 28. febrúar 2003, en að félaginu standa öll sveitarfélög, sem eiga aðild að Eyþingi – sambandi sveitarfélaga á Norðurlandi eystra - auk tíu fyrirtækja. Tilgangur félagsins er að standa fyrir nauðsynlegum undirbúningi fyrir stofnun félags um gerð og rekstur jarðganga undir Vaðlaheiði. Þar með talið er kynningarstarf, áætlanagerð og samningar við ríki og fjárfesta.
Á fyrsta aðalfundi Greiðrar leiðar á Akureyri í gær sagði stjórnarformaður félagsins, Pétur Þór Jónasson, að fyrir liggi að Vaðlaheiðargöng yrðu blönduð framkvæmd með þátttöku ríkisins – horft sé til þess að ríkið verði með sem næst 40-45% eignarhlut í verkefninu en 55-60% kostnaðar verði fjármögnuð með veggjöldum. Stjórn Greiðrar leiðar hefur kynnt verkefnið fyrir þingmönnum og samgönguyfirvöldum og haft náið samráð við stjórnendur Vegagerðarinnar. Þá hefur verkefnið verið kynnt fyrir samgönguráðherra.
Fram kom á aðalfundinum í gær að vonir eru bundnar við að við endurskoðun vegaáætlunar í haust verði Vaðlaheiðargöngum markaðir fjármunir til undirbúningsrannsókna, en ljóst er að næst þarf að ráðast í ýmsar undirbúningsframkvæmdir vegna ganganna. Kaupfélag Eyfirðinga hefur þegar samþykkt að leggja fram 5 milljónir króna til undirbúningsrannsóknanna, sem verði færðar sem hlutafé í framkvæmdafélagi um göngin.
Pétur Þór Jónasson sagði á aðalfundinum í gær að hann hefði þann 28. maí sl. átt fund með þingmönnum Norðausturkjördæmis þar sem í fyrsta lagi var óskað eftir stuðningi þingmanna við að Vegagerðin vinni rannsóknaráætlun fyrir Greiða leið vegna undirbúningsrannsókna, í öðru lagi að Vaðlaheiðargöng fari inn á vegaáætlun við endurskoðun hennar í haust og í þriðja lagi að þingmenn tryggi viðbótarfjármagn til undirbúningsrannsókna, allt að fimm milljónir króna, til viðbótar við framlag KEA.
Miðað við þá veglínu sem til þessa hefur verið til skoðunar yrðu Vaðlaheiðargöng um 7,2 km að lengd. Forskálar yrðu um 200 metrar, um 50 metrar vestan ganganna og um 150 metrar austan ganganna. Leggja þyrfti nýja vegi að göngunum, samtals um 2 km að lengd. Í samanburði við þjóðveg eitt um Víkurskarð yrði stytting leiðarinnar með tilkomu jarðganga á bilinu 15-16 km.
Meðaltalsumferð árið 2003 um Víkurskarð var 980 bílar á sólarhring en yfir sumarmánuðina júní, júlí og ágúst að meðaltali 1590 bílar. Áætlað er að heildarkostnaður við Vaðlaheiðargöng nemi um 5 milljörðum króna án fjármagnskostnaðar. Inni í þessari tölu er kostnaður vegna allra undirbúningsrannsókna, hönnunar, eftirlits og gerðar sjálfra ganganna, samkvæmt upplýsingum frá Greiðri leið.
|

laugardagur, júní 26, 2004
Að norðan
SBA kaupir 3 bifreiðar til viðbótar
Á síðast liðnum vikum hefur SBA keypt 3 bireiðar til viðbótar við flotann. Keyptir voru tveir Mercedes Benz O 404 RH frá Þýskalandi og einn Mercedes Benz O 350 Tourismo frá Hollandi. Ein eldri bifreið, VB 781, af gerðinni Mercedes Benz O 303 árgerð 1988 var seld í staðin til Þýskalands. Alls er búið að kaupa 9 hópferðabifreiðar á þessu ári og selja 3 eldri.
Það er fyrirsjáanleg veruleg aukning af erlendum ferðamönnum í sumar þannig að SBA er að reyna mæta þeirri aukningu með því að eignast fleiri bifreiðar.
Tekið af heimasíðu SBA
Kveðja ritstjóri

fimmtudagur, júní 24, 2004
Að norðan
Var að frétta að það stæðu yfir Sænskir dagar í HRÚTASTÍUNNI, en ekki mun vera æskilegt að koma þangað í hádeginu.
Kveðja ritstjóri
|
Kveðja ritstjóri
þriðjudagur, júní 22, 2004
Að norðan
Heyrðu þú þarna Gústi.
Það er miklu meiri blíða hér á Akureyri en er í Ósómaborginni
Kv ritstjórinn
|
Það er miklu meiri blíða hér á Akureyri en er í Ósómaborginni
Kv ritstjórinn
Að norðan
Hér er ekkert að frétta hitti nánast enga starfsmenn SBA allavegana ekki til að fá fréttir og ekki fær maður fréttir á síðu SBA, jú bíddu nú við það er ein ný frétt þar, búið að kaupa 9 bíla á þessu ári og selja 3 gamla, það mætti halda að það sé eitthvað að gera þarna.
Kveðja ritstjóri
|
Kveðja ritstjóri
mánudagur, júní 21, 2004
Að norðan
Miðað við skráningar í gestabókina koma mjög fáir á þessa síðu, þannig að það verður mjög lítið skrifað hér.
Kveðja ritstjóri
|
Kveðja ritstjóri
miðvikudagur, júní 02, 2004
Að norðan
Jæja þá er það smá slúður.
Aldrei þessu vant þá var ég að horfa á sjónvarpsfréttirnar um helgina, og sá þá að verið var að sleppa Pétri K. út af Litla Hrauni, ég hélt að hann hefði átt að vera miklu lengur þar, varla hefur hann verið náðaður vegna góðrar hegðunar.