fimmtudagur, september 30, 2004
Að norðan
Jæja best að sýna smá lit, Á föstdaginn var þá skruppu nokkrir starfsmenn til Þýskalands, og tókst sú ferð í alla staði mjög vel þó að það kæmu nú ekki allir heim, en það verður fjallað nánar um þessa ferð síðar.
p.s setti inn nokkrar myndir úr ferðinni.
kveðja ritstjóri
|

þriðjudagur, september 21, 2004
Að norðan
Afskiptasemi.
Kona ein var að steikja egg handa sínum heitt elskaða eiginmanni.
Allt í einu ryðst bóndinn inn í eldhúsið.
Varlega varlega...! Settu meira smjör! Guð hjálpi mér...! Þú ert að steikja Of mörg egg í einu. OF MÖRG! Snúðu þeim! SNÚÐU ÞEIM NÚNA! Við þurfum meira Smjör. Guð minn góður! VIÐ ÞURFUM MEIRA SMJÖR! Eggin munu festast! Varlega...VARLEGA! Ég sagði VARLEGA! Þú hlustar aldrei á mig þegar þú eldar! ALDREI! Snúðu þeim! Drífðu þig! Ertu geggjuð! Ertu búin að tapa glórunni? Ekki gleyma að salta eggin. Þú gleymir alltaf að salta. Nota salt. NOTA SALT! S A L T! Konan horfði á hann og sagði. " Hvað er eiginlega að þér? Heldur þú virkilega að ég kunni ekki að steikja tvö egg?" Eiginmaðurinn svaraði rólega, "Mig langaði bara að leyfa þér að finna hvernig mér líður þegar ég er með þig í bílnum"

sunnudagur, september 19, 2004
Vísnahornið
Heyrt á verkstæði SBA við Skógarhlíð
Björgvin við Jens
Þig um fræða þetta ég vil
það er samkvæmt vananum
Að hér er ekki ætlast til
að eggið kenni hananum.
|
Björgvin við Jens
Þig um fræða þetta ég vil
það er samkvæmt vananum
Að hér er ekki ætlast til
að eggið kenni hananum.
hummmmmm
Reyndi að kæra konuna fyrir að vilja ekki kynmök
Karlmaður frá Seville á Spáni reyndi að fá eiginkonu sína ákærða fyrir heimilisofbeldi þar sem hún neitaði honum um kynmök fimm daga í röð, að því er fram kemur í spænska dagblaðinu El Sur. Maðurinn, sem er á miðjum aldri, segir að þráfaldleg neitun konunnar jafngildi „niðurlægjandi meðferð“ og heimilisofbeldi, en það hugtak er oftar notað um líkamlegt ofbeldi gegn maka. Dómarinn vísaði málinu frá.

sunnudagur, september 05, 2004
Síðasta kvöldferðin
Þann 31 Ágúst var farin síðasta kvöldferðin í Mývatnssveit.
Og bauð SBA starfsmönnum og mökum með, og skyldi farið í Jarðböðin.
Eitthvert veður fékk Pétur hótelstjóri í Reynihlíð af þessu og sá leið til að græða smá aur og bauð uppá GRILLVEISLU sem myndi kosta AÐEINS 1500 ísl kr pr. mann. Þessu rausnarlega tilboði hans var náttúrulega ekki hægt að hafna, og hugsuðu menn sér nú gott til glóðarinnar að fá nú loksins eitthvað gott að borða þarna. En eitthvað klikkaði nú, það var ekki nægur matur (boðið var uppá silung sem ábót eins og menn hafi nú ekki fengið nóg af honum í sumar) og það fengu bara sumir grillpinna, og maturinn hjá sumum var svo kryddaður að varla var hægt að borða hann. Eftir mat og DRYKK var liðinu smalað út í rútu til að fara í Jarðböðin. Ekki verður fjallað um þá heimsókn hér þar sem ritstjórinn réð sig sem sérlegan LESTARSTJÓRA og hefur því enga hugmynd um hvað fór fram þarna í pollinum ……………………………………………………………..
Kveðja Ritstjóri.

laugardagur, september 04, 2004
Vísnahornið hans Óla Tedd
Bæn rútubílstjóra á Fjallabaki sumarið 2004.
oh, Lord þú veist ég heiti Þorsteinsson Jens
þetta Scaniaræksni meikar ekki sens
Að los´ann úr læknum er ei nokkur séns
Oh Lord why don´t you buy me a Mercedes Benz.