sunnudagur, september 05, 2004
Síðasta kvöldferðin
Þann 31 Ágúst var farin síðasta kvöldferðin í Mývatnssveit.
Og bauð SBA starfsmönnum og mökum með, og skyldi farið í Jarðböðin.
Eitthvert veður fékk Pétur hótelstjóri í Reynihlíð af þessu og sá leið til að græða smá aur og bauð uppá GRILLVEISLU sem myndi kosta AÐEINS 1500 ísl kr pr. mann. Þessu rausnarlega tilboði hans var náttúrulega ekki hægt að hafna, og hugsuðu menn sér nú gott til glóðarinnar að fá nú loksins eitthvað gott að borða þarna. En eitthvað klikkaði nú, það var ekki nægur matur (boðið var uppá silung sem ábót eins og menn hafi nú ekki fengið nóg af honum í sumar) og það fengu bara sumir grillpinna, og maturinn hjá sumum var svo kryddaður að varla var hægt að borða hann. Eftir mat og DRYKK var liðinu smalað út í rútu til að fara í Jarðböðin. Ekki verður fjallað um þá heimsókn hér þar sem ritstjórinn réð sig sem sérlegan LESTARSTJÓRA og hefur því enga hugmynd um hvað fór fram þarna í pollinum ……………………………………………………………..
Kveðja Ritstjóri.
|

Comments:
Skrifa ummæli