föstudagur, september 30, 2005
Frá ritstjóra
Og vil ég þakka öllum hjá SBA fyrir samstarfið á liðnum árum.
Ég mun væntanlega reyna að rugla eitthvað hér áfram þó að það verði kannski eitthvað öðruvísi rugl.
Kær kveðja ritstjóri.
fimmtudagur, september 29, 2005
Frá Austurlandi


Fékk þessar myndir sendar frá Kárahnjúkum, ekki er nú Bjössi Jó laus við rúturnar þó hann sé farinn frá SBA.
sunnudagur, september 25, 2005
Að norðan
Ritstjóra áskotnaðist mynd af skrifstofustjóranum okkar, en hún er tekin fyrir tíu árum.Kv ritstjóri
laugardagur, september 24, 2005
Að norðan
Góðir viðskiptavinir og aðrir! Abus.is hefur ákveðið að hætta alfarið allri starfsemi sinni á hópferðasviði sem aðallega hefur verið norðanlands og þá á Akureyri. Abus.is hefur í gegnum tíðina notið þeirrar mestu óvildar á Akureyri sem nokkurt fyrirtæki getur orðið fyrir og starfsmenn hafa jafnvel orðið fyrir aðkasti og skítkasti, bæði frá óvinveittum nágrönnum og einhverju fólki úti í bæ. Mest var um þetta í byrjun. Fjölmörg stórfyrirtæki, bæjarstofnanir og einstaklingar gerðu það sem þau gátu til að setja fót fyrir þessa starfsemi og þá sérstaklega með því að skipta ekki við það eða gefa nein færi á að það fengi að gera tilboð. Má hér nefna fyrirtæki, stofnanir og félög sem aldrei leituðu til Abus.is um tilboð eða sendu fyrirspurnir um verð,t.d Verkmenntaskólinn, Háskólinn, Menntaskólinn utan einu sinni en aftur á móti áttum við alveg stórkostlegt samstarf við nemendafélagið þar, félags- og skóladeild Akureyrarbæjar, fjórðungssjúkrahúsið, akstur með aldraða og starfsfólk t.d í Skjaldarvík og Kristnes, félag aldraðra, Skautafélagið, KA hand-og knattspyrnudeild, ofl,ofl allar deidir þórs nema Handboltinn um tíma en þó styrkti Abus.is Þórshandbolta um á aðra milljón króna sem ekki var einu sinni þakkað fyrir ofl, þó var margsinnis eftir því leitað að fá að gera tilboð, ekki annað, engin forréttindi.
Nú þurfa þessir aðilar ekki að hafa áhyggjur af því að við troðum þeim um tær. Að sjálfsögðu þurfum við ekki að þakka þessum aðilum fyrir neitt. Það er ekki með neinum hlýleika eða söknuði sem fyrirtækið kveður Akureyri, fjarri því!
Og ánægjan af brotthvarfi fyrirtækisins hlýtur að vera enn meiri þegar ljóst er að það skuli vera komin full einokun á allan hópferðaakstur m.a með aðstoð þessara aðila og þá hljóta verðin að verða lægri! ekki satt. Aftur á móti viljum við þakka þeim fjölmörgu sem skiptu við okkur og voru okkur vinsamlegir, vildu m.a forðast einokun á þessu sviði. Þessari síðu mun því verða lokað bráðlega. Bestu kveðjur!
Farvel Akureyri
Kveðja ritstjóri
|
þriðjudagur, september 20, 2005
Útboð sérleyfa niðurstöður
Lesin eru upp nöfn bjóðenda ásamt tilboðsfjárhæðum..
Athugasemd frá Þingvallaleið: Hafði komið athugasemdum sínum og kröfum til
kærunefndar varðandi útboðið.
Athugasemd frá Teiti Jónassyni: Of stuttur tími frá kynningu vegna umfangs
verks og óþægilegur tími vegna þess að þettta er háannatími.
Athugasemd frá Austfjarðarleið: Telur of miklar upplýsingar vera gefnar
væntanlegum bjóðendum í útboðsgögnum um fjárhæðir og upplýsingar vegna fyrri
samninga.
1. Þingvallaleið ehf.
skólaakstur á Suðurlandi kr. 54.600.000.-
skólaakstur á Suðurnesjum kr. 21.840.000.-
leið S1 kr. 4.920.000.-
leið S2 kr. 0.-
2. Icelanx Excursion / Allrahanda ehf.
skólaakstur á Suðurnesjum kr. 21.840.000.-
leið S2 kr. mínus 103.425.000.-
3. Hópbílaleigan ehf.
skólaakstur á Suðurlandi kr. 42.000.000.-
skólaakstur á Suðurnesjum kr. 16.800.000.-
leið S1 kr. 107.571.000.-
leið S2 kr. mínus 23.232.000.-
4. Torfi Elís Andrésson
leið F32 kr. 9.526.500.-
5. Hópferðamiðstöðin og Vestfjarðaleið
skólaakstur á Suðurlandi kr. 129.662.582.-
skólaakstur Snæfellsbær-
Grundarfjörður - Snæfellsbær kr. 15.954.554.-
skólaakstur Stykkishólmur -Grundarfj.-Stykkish. kr. 16.234.374.-
skólaakstur á Suðurnesum kr. 49.566.314.-
leið S1 kr. 108.587.179.-
leið S2 kr. mínus 468.931.021.-
leið S3 kr. 230.105.128.-
leiðS4 kr. 21.020.604.-
leið F31 kr. 8.601.962.-
leið F32 kr. 14.472.692.-
leið F36 kr. 16.387.890.-
leið F37 kr. 17.020.537.-
leið F38 kr. 19.807.203.-
leið F39 kr. 19.448.842.-
leið F40 kr. 18.298.657.-
6. Bílar og fólk ehf.
skólaakstur á Suðurlandi kr. 136.145.711.-
skólaakstur Snæfellsb.-Grundarfj.-Snæfellsbær kr. 16.752.282.-
skólaakstur Stykkish. -Grundarfj. - Stykkish. kr. 17.046.093.-
skólaakstur á Suðurnesjum kr. 52.440.630.-
leið S1 kr. 128.061.113.-
leið S2 kr. mínus 438.839.572.-
leið S3 kr. 261.210.284.-
leið S4 kr. 22.639.084.-
leið F31 kr. 9.212.060.-
leið F32 kr. 15.277.702.-
leið F36 kr. 17.285.960.-
leið F37 kr. 17.979.564.-
leið F38 kr. 21.087.138.-
leið F39 kr. 20.500.484.-
leið F40 kr. 19.313.340.-
7. Austfjarðarleið ehf.
leið F38 kr. 25.272.000.-
leið F39 kr. 15.288.000.-
8. Dodds ehf.
skólaakstur Snæfellsbær -Grundarfj. - Snæfellsbær kr. 20.160.000.-
skólaakstur Stykkish.-Grundarfj. - Stykkish. kr. 19.320.000.-
9. SBA Norðurleið
skólaakstur Stykkish. - Grundarfj. - Stykkish. kr. 19.320.000.-
leið S3 kr. 309.206.880.-
10. Sæmundur Sigmundsson ehf.
skólaakstur Stykkish. -Grundarfj. - Stykkish. kr. 18.480.000.-
11. Stjörnubílar ehf.
leið S4 kr. 7.036.848.-
leið F31 kr. 11.404.536.-
12. F &S Hópferðabílar ehf.
leið S4 kr. 8.821.800.-
13. Sérleyfisferðir Hauks Elíssonar ehf.
leið F40 kr. 14.820.000.-
14. Hópferðarbílar Svans Kristófers ehf.
skólaakstur Snæfellsb. -Grundarfj. - Snæfellsb. kr. 18.984.000.-
skólaakstur Stykkish. -Grundarfj. - Stykkish. kr. 18.984.000.-
15. Valdimar L. Gíslason
leið F31 kr. 4.767.048.-
16. Ferðaþjónusta Austurlands
leið F37 kr. 9.981.504.-
17. Kynnisferðir ehf.
skólaakstur á Suðurlandi kr. 65.520.000.-
skólaakstur á Suðurnesjum kr. 30.475.200.-
leið S1 kr.149.860.950.-
leið S2 kr. mínus 27.312.708.-
Fleiri tilboð bárust ekki.
Áætlun verkkaupa vegna sérleyfisleiða:
S1 kr. 124.437.000.-,
S2 kr. 1.332.000.- ,
S3 kr. 211.443.000.-,
S4 kr. 7.722.000.-,
F31 kr. 3.432.000.-,
F32 kr. 9.855.000.-,
F36 kr. 5.460.000.-,
F37 kr. 9.360.000.-,
F38 kr. 26.208.000.-,
F39 kr. 19.500.000.-,
Athugasemd frá Þingvallalelið: Um að ekki hafi borist nægjanlega skýr svör
varðandi mínus tilboð.
Athugasemd frá Teiti Jónassyni: Hvort þessi áætlun sé í samræmi við fjárlög.
fimmtudagur, september 15, 2005
Útboð á sérleyfum

Hátt boðið í fólkslflutninga áReykjanes.
6 fólksflutningafyrirtæki skiluðu inn
tilboðum í sérleyfi á 4 akstursleiðum á Reykjanesi,
meðal annars milliReykjavíkur og Leifsstöðvar.
Sérleyfið gildir næstu 3 ár.
1 fyrirtæki er tilbúið að borga Vegagerðinni 470 miljónir fyrir einkaleyfið.
Lægsta tilboðið hljóðaði upp á 0 krónur.
Yfirleitt greiðir Vegagerðin með sérleyfum og hljóðaði áætlun hennar upp á 1,3 miljóna króna meðgjöf með þessum leiðum.
.
Samkvæmt þessu þá hlýtur þetta sérleyfi að vera gríðarleg gullnáma fyrst þetta fyrirtæki er tilbúið að borga 150-160 millur á ári fyrir að fá að keyra þetta ja maður spyr sig.
Kv ritstjóri
þriðjudagur, september 13, 2005
Að norðan
Kv ritstjóri
Spurning dagsins 13,09,05


............................................Hvað eiga þessir tveir sameiginlegt ?..............
Rétt svar: Þeir eru aðalkallarnir annar í SÓMANUM (Akureyri) hinn í ÓSÓMANUM (Reykjavík).
Að norðan
Kv ritstjóri
mánudagur, september 12, 2005
Spurning dagsins 12,09,05
sunnudagur, september 11, 2005
Frá ritstjóra
Er annars búinn að sjá það að til að fá einhverja til að skrifa í gestabókina þá er bara að hætta að skrifa eitthvað hér.
Kv ritstjóri.
föstudagur, september 09, 2005
Að norðan
Kv ritstjóri.
Að norðan
Bensín eða Diesel það er spurning sem einn bílstjóri SBA fékk þegar hann renndi upp að dælunni hjá Shell í Skógarhlíð.
Já það mætti halda að bensíntitturinn væri ekki starfi sínu vaxinn, en það er til eðlileg skýring á þessu en hún er sú að þessi bílstjóri var Bjössi Jó.
Það er sennilega best að byrja á byrjun þessa máls, en það var þannig að einkabíll Bjössa bilaði og sennilega hefur hann hringt í Kára bifvélavirkja í Mývó sem hefur sagt honum að þetta væri greinilega tímareimin sem væri farin. Nú Bjössi semur við Hafþór um að hjálpa sér við að skipta um reimina, svo er nú farið að skoða bílinn og kemur þá í ljós að það er ekkert að reiminni.Vandast nú málið hvað getur eiginlega verið að bílnum hann bara fer alls ekki í gang. Fer nú Bjössi að lýsa því fyrir Hafþór hvernig þetta gerðist (þetta gerðist nefnilega þegar Bjössi var rétt búinn að taka bensín) dettur hafþór þá í hug hvort það gæti verið að hann hafi sett DIESEL á bílinn, ekki vildi nú Bjössi kannast við það enda með áratuga reynslu í þessum málum. Segist meira að segja hafa skoðað kvittunina úr sjálfsalanum og á henni hefði staðið BENSÍN. Jæja drífur nú Bjössi í því að kaupa annan bíl handa konunni, einnig ræðir hann við hina ýmsu spekinga hvað gæti verið að gamla bílnum og er honum bent á að það gæti verið ónýtur einhver nemi eða eitthvað svoleiðis og hann kosti ekki nema 45 þúsund (Bjössi keypti bílinn á 30 þúsund). Nú svo var farið að skoða bílinn betur og prófað að tappa af bensíntanknum og setja HREINT og ÓBLANDAÐ BENSÍN á tankinn jú vitir menn kagginn datt í gang.
Ekki meira að sinni.Kv ritstjóri
Spurning dagsins 09,09,05
fimmtudagur, september 08, 2005
Spurning dagsins 08,09,05
miðvikudagur, september 07, 2005
Spurning dagsins 07,09,05
Að norðan
Hér má sjá Ólaf skítframleiðanda að störfum á verkstæðinu, hann er örugglega að framleiða eitthvað skítkast þarna. Annars hefur framleiðslan ekki verið mikil hjá honum upp á síðkastið, þar sem hann er svo önnum kafinn við að hugsa um einn frænda ritstjórans(það er jafnvel álitið að hann sé að fara að ættleiða hann þ.e.a.s frændann ekki ritstjórann)..
Ekki gat framkvæmdastjórinn svarað okkur í gær hvað hann ætti marga bíla, hann sagðist vera að uppfæra bílalistann. Kannski veit Sjóðríkur útibússtjóri hvað bílarnir eru margir ?.
.
Að sunnan fréttist ekki neitt þannig að það hlýtur allt að vera í góðu þar undir stjórn Aðalsteins Karls Ósómans.
.
.
.
Bjöggi, Katla og Sæmi, fer ekki að koma að haustferð ?.
kv ritstjóri og formaður.
laugardagur, september 03, 2005
Greiði Kynnisferðum tíund.
.
Greiði Kynnisferðum tíund.
Rútubílaeigendur gera alvarlegar athugasemdir við útboð ríkisins á sérleyfisakstri. Í skilmálum er gert ráð fyrir að Kynnisferðir fái í sinn hlut tíu prósent af sölu farmiða og að sérleyfishafar greiði Vegagerðinni 70 milljónir króna í aðstöðugjald.
Vegagerðin auglýsti fyrir tíu dögum útboð á sérleyfisleiðum á Íslandi næstu þrjú ár. Þórir Garðarsson, markaðsstjóri Allrahanda hf., segir að svo virðist sem Kynnisferðir, sem sé mjög stórt fyrirtæki í þessari þjónustu í dag, hafi fengið upp í hendurnar eins konar einokunarsamning við Vegagerðina um rekstur samgöngumiðstöðvar í Reykjavík í húsnæði Umferðarmiðstöðvarinnar.
Hann segir aðra rútubílaeigendur furða sig á ákvæðum útboðsins um að Kynnisferðir eigi að fá í sinn hlut 10 prósent af sölu farmiða sérleyfishafans, að sala farmiða í húsi Umferðarmiðstöðvarinnar verði alfarið í höndum Kynnisferða og að óheimilt verði fyrir aðra aðila að selja miða í eða við húsið.
Þá segir Þórir nýja skattheimtu felast í útboðinu og það hafi komið flatt upp á menn. Á samningstímanum, sem sé áætlaður þrjú ár, beri þeim sérleyfishöfum sem vilji bjóða í út frá Reykjavík að gera ráð fyrir því í tilboðið sínu að þurfa að greiða 70 milljónir í aðstöðugjald til Vegagerðarinnar.
Spurður hvort hann telji líklegt að menn kanni réttarstöðu sína, t.d. gagnvart samkeppnislögum, svarar Þórir því játandi og segist einnig telja líklegt að alþingismenn, sem samþykki fjárveitingar til þess að styrkja almenningssamgöngur á Íslandi, velti fyrir sér hvort fullkomin sátt sé um það að stór hluti af þeim fjármunum sem þeir séu hugsanlega að ráðstafa til þess að niðurgreiða almenningsvagnaþjónustu á Íslandi fari til greiðslu aðstöðugjalda hjá Vegagerðinni. Menn skilji ekki fyrir hvað sé verið að borga.
.
Heimild visir.is
.
Kv ritstjóri
föstudagur, september 02, 2005
Að norðan
.
Upp frá Rauðasandi ekur rútan rjóð
þar við stýri stóð
Kári í jötunmóð
þannig fór að lokum ekki komst hann heim
bilar tímareim
búið geim.
.
.
Þetta mun vera ort um Kára nokkurn bifreiðastjóra og bifvélavirkja í Mývatnssveit. En þannig er að ef eitthvað bilar þá vill hann gjarnan kenna tímareim um, svo er hann mjög gjarn á að "GLEYMA" að taka olíu á bílana (og jafnvel gleymt að svissa á áður en reynt er að starta og skilur ekkert í því að bíllinn skuli ekki starta) og hefur því þó nokkrum sinnum þurft að færa honum olíu hingað og þangað um landið en þó aðallega þangað.
.
Svo stóð til að skrifa risastóra grein um eldsneytiskaup Bjössa Jó en ekki mun það ganga þar sem fyrstu fregnir voru rangar, og ekki förum við nú að skrifa einhverja vitleysu hér.
Kv ritstjóri
fimmtudagur, september 01, 2005
TILKYNNING
|GESTABÓK
Skrifa
TENGLAR
- Feitasti kallinn
- Sighj
- Lundarbrekkublogg
- Maggi malbiksgutti
- Trausti Planki
- Garðar Þrándur
- Gústi Vals
- Expressferðir
- Héraðsverk
- Myllan
- Trukkur.is
- Bilexport
- Geirinn
- Fassi
- Tyllis
- Trukkamyndir
- Vegagerðin
- Veðurstofan
- MOGGINN
- Glitnir
- Samgöngusafnið Ystafelli
- Setrið hans Sidda
- Sba Norðurleið
- Agnar Sigurðarson
- Kári Sigurðsson
- Leit.is
- Skarpur.is
- Neyðarlínan
- Siminn.is
- Senda SMS
MYNDIR
- Ýmsar myndir 1
- Ýmsar myndir 2
- Ýmsar myndir 3
- Ýmsar myndir 4
- nóvember 2003
- desember 2003
- janúar 2004
- febrúar 2004
- mars 2004
- apríl 2004
- maí 2004
- júní 2004
- júlí 2004
- ágúst 2004
- september 2004
- október 2004
- nóvember 2004
- desember 2004
- janúar 2005
- febrúar 2005
- mars 2005
- apríl 2005
- maí 2005
- júní 2005
- júlí 2005
- ágúst 2005
- september 2005
- október 2005
- nóvember 2005
- desember 2005
- janúar 2006
- febrúar 2006
- apríl 2006
- maí 2006
- desember 2006
- janúar 2007
- apríl 2007
- maí 2007
- júní 2007
- ágúst 2007
- september 2007
- október 2007
- desember 2007
- apríl 2008
- september 2008
- október 2008
- ágúst 2009
- júní 2010
- júlí 2011
Eldri fréttir




