föstudagur, september 02, 2005
Að norðan
Ein frá Óla Thedd.
.
Upp frá Rauðasandi ekur rútan rjóð
þar við stýri stóð
Kári í jötunmóð
þannig fór að lokum ekki komst hann heim
bilar tímareim
búið geim.
.
.
Þetta mun vera ort um Kára nokkurn bifreiðastjóra og bifvélavirkja í Mývatnssveit. En þannig er að ef eitthvað bilar þá vill hann gjarnan kenna tímareim um, svo er hann mjög gjarn á að "GLEYMA" að taka olíu á bílana (og jafnvel gleymt að svissa á áður en reynt er að starta og skilur ekkert í því að bíllinn skuli ekki starta) og hefur því þó nokkrum sinnum þurft að færa honum olíu hingað og þangað um landið en þó aðallega þangað.
.
Svo stóð til að skrifa risastóra grein um eldsneytiskaup Bjössa Jó en ekki mun það ganga þar sem fyrstu fregnir voru rangar, og ekki förum við nú að skrifa einhverja vitleysu hér.
Kv ritstjóri
|

Comments:
Skrifa ummæli