mánudagur, nóvember 22, 2004
FRÉTTIR
Að norðan.
Í fréttum er það helst að búið er að selja 2 bíla en það eru ZX 821 og Bóthildur (MA 167) , en í staðin er búið að kaupa 3 bíla, 1. 57 manna fjarka , 1. 44 manna Clubstar og 1. 20 manna super sprinter .Og eru fjarkinn og sprinterinn að koma til Seyðisfjarðar á morgun (23.11.04). Ekki er nú mikið annað að frétta, en jú skráningu á jólahlaðborðið er lokið og er mæting mjög góð eða um 50 manns.
Einhver umræða hefur orðið um að Gunnar M. skuldi starfsmönnum bjór fyrir selda bíla en ekki hefur verið haldið upp á sölu síðan 57 eða 58 var seldur, en síðan hafa MARGIR bílar verið seldir og því hlýtur að eiga eftir að drekka alveg ÓGURLEGA MIKINN BJÓR eða hvað GUNNAR MAGNÚS ???????????????????.
Ekki fleira að sinni kveðja ritstjóri.
|

föstudagur, nóvember 19, 2004
Að norðan
Nýsköpunarverðlaun veitt fyrir kúluskít og snjóhús.
Samtök ferðaþjónustunnar afhentu í dag í fyrsta skipti nýsköpunarverðlaun í ferðaþjónustu. Verðlaunin, 250 þúsund krónur og verðlaunaskjöld, fékk fyrirtækið Mývatn ehf. sem undanfarin ár hefur beitt sér fyrir margvíslegum nýjungum á sviði ferðaþjónustu, einkum utan háannar og er í forsendum dómnefndar sérstaklega vísað til kúluskítshátíðar, snjóhúss, jólasveinsins í Dimmuborgum og íshestakeppni.
Kúluskítur er hringlaga þörungur sem vex eingöngu í tveimur vötnum í heiminum. Það eru Mývatn og Akanvatn í Japan. Við Akan hefur verið haldin kúluskítshátíð frá 1950 og er ein þekktasta hátíð Japana í dag. Á Mývatni var fyrsta kúluskítshátíðin haldin árið 2003 og tókst vel.
Tekið af mbl.is

þriðjudagur, nóvember 16, 2004
Að norðan
Samkvæmt óáræðanlegum heimildum eru Sjóðríkur & Klinkenberg að fara erlendis að sækja 2 nýja bíla, einnig hefur frést að búið sé að kaupa nýtt húsnæði á Akureyri, og unnið sé að breytingum, en húsnæðið mun hýsa alla starfssemi SBA á Akureyri svo sem skrifstofur, verkstæði og sprautuaðstöðu, en ekkert af þessu hefur fengist staðfest, og ekkert um þetta á heimasíðu SBA.
kv ritstjóri
|
kv ritstjóri
mánudagur, nóvember 15, 2004
Að norðan
Úr dagbók einhvers.
12. Ágúst - Fluttum til Íslands að vinna. Settumst að fyrir austan.Ég er svo spenntur. Það er svo fallegt hérna, fjöllin eru dýrleg.Ég get ekki beðið eftir að sjá hvernig þau líta út í vetur þegar það fer að snjóa.
14. Október - Ísland er fallegasta land í heimi. Laufin eru öll rauð og appelsínugul. Sáum hreindýr í dag. Þau eru svo falleg. Það er svo kyrrlátt hérna, algjör paradís. Ég ætla sko að búa hérna það sem eftir er.
11. Nóvember - Bráðum byrjar hreindýra veiðitímabilið. Ég get ekki ímyndað mér að einhver vilji drepa þessi fallegu dýr. Vona að það fari að snjóa. Ég elska þetta land.
15. Nóvember - Það snjóaði í nótt. Þegar ég vaknaði var allt hvítt.Þetta er eins og póstkort. Við fórum út og hreinsuðum snjóinn aftröppunum og mokuðum innkeyrsluna. Fórum í snjóbolta slag (ég vann).Þegar snjóruðningstækið ruddi götuna, þurftum við að moka aftur. Ég elska Ísland!
22. Nóvember - Meiri snjór í nótt. Snjóruðningstækið lék sama leikinnmeð innskeyrsluna okkar. Fínt að vera hérna.
15. Desember - Enn meiri snjór í nótt. Komst ekki út úr innkeyrslunni og í vinnuna. Það er fallegt hérna, en ég er orðinn ansi þreyttur á að moka snjó.Helvítis snjóruðningstæki.
22. Desember - Meira af þessu hvíta drasli féll í nótt. Ég er kominn með blöðrur í lófana og illt í bakið af öllu þessu moki. Ég held að gaurinn á snjóruðningstækinu bíði við hornið þar til ég er búinn að moka innkeyrsluna.Helvítis asninn.
24. Desember - Gleðileg Jól, eða þannig! Enn meiri anskotans snjór.Ef ég næ í helvítis fíflið sem keyrir snjóruðningstækið, þá sver ég að ég drep helvítið. Af hverju salta þeir ekki helvítis göturnar hérna meira.
18. Janúar - Meiri hvítur skítur í nótt. Búinn að vera inni í þrjá daga.Bíllinn er fastur undir heilu fjalli af snjó sem fíflið á ruðningstækinu er búinn að ýta að innkeyrslunni okkar. Veðurfræðingurinn spáði 20 cm jafnföllnum snjó næstu nótt. Veistu hvað það eru margar skóflur?
19. Janúar - Helvítis veðurfræðingurinn hafði rangt fyrir sér. Viðfengum 35 cm af skít í þetta skipti. Ef það heldur svona áfram þá bráðnar þetta drasl ekki fyrr en um mitt sumar. Snjóruðningstækið festi sig í götunni og helvítis fíflið kom og spurði hvort ég gæti lánað honum skóflu.Eftir að hafa sagt honum að ég væri búinn að brjóta sex í vetur við að moka í burtu snjónum sem hann ýtti jafnóðum inn í innkeyrsluna, munaði engu að ég bryti eina enn á hausnum á honum.
4. Febrúar - Komst loksins út úr húsi í dag. Fór í búðina að versla og á leiðinni til baka hljóp hreindýr fyrir bílinn. Skemmdir upp á tugiþúsunda. Vildi að þessum kvikindum hefði verið útrýmt síðasta haust.
3. Maí - Fór með bílinn á verkstæði í bænum. Ótrúlegt hvað þetta ryðgar af öllu þessu saltdrasli sem þeir strá á vegina.
19. Maí - Flutti til Spánar. Skil ekki að nokkur maður með viti skuli vilja búa á skítaskeri eins og Íslandi!
Kv ritstjóri.

föstudagur, nóvember 12, 2004
Að norðan
Var að skoða heimasíðu SBA og ekki get ég nú sagt að það sé mikið að gerast hjá því fyrirtæki allavega ef maður skoða fréttalinkinn hjá þeim, þá er nú meira að gerast hjá samkeppnisaðilanum á Akureyri. Að vísu er búið að taka út sumar fréttir þar, enda kannski áttu þær ekki heima á heimasíðu þeirra ????????????
Kveðja ritstjóri
|
Kveðja ritstjóri
þriðjudagur, nóvember 09, 2004
GESTABÓK
MUNA EFTIR GESTABÓKINNI.
|
Að norðan
Fyrir helgi var auglýst kynning hjá Stoltís and Lottís, og var hún í gærkveldi og ekkert nema gott um það að segja nema það mætti aðeins einn starfsmaður SBA (Skömbó) fyrir utan þá sem búa með Stoltís og þykir okkur Stoltís það vera frekar lélegt, verð að viðurkenna að ég mætti ekki en ég og verkstæðisformaðurinn vorum á námskeiði í að afskræma myndir, svo að þið sem ekki mættuð skuluð vara ykkur.
Kveðja Ritstjóri
|
Kveðja Ritstjóri
Frá ritstjórn
Kæri Maggi.
Ég vil þakka þér innilega fyrir þessi málalok, að sjálfsögðu var alls ekki verið að tala um "kók í bauk". Heldur var verið að tala um þann "bláa". En þú talar um ritstuld og brot á höfundarrétti ?, ekki veit ég hvað þú ert að tala um, ég fann umrædda texta í reiðuleysi á verkstæðinu og voru engin merki um að þetta væri eitthvað höfundarréttarvarið, en það skiptir ekki máli núna þar sem sættir hafa tekist í þessari deilu :0). Og ekki meira um það, er að njóta miskagreiðslunnar þinnar núna og skál fyrir því. (þú veltir því fyrir þér hvort að ég væri eitthvað skyldur einhverjun Hannesi Hólm, samkvæmt Íslendingabók þá fer mjög lítið eða nánast ekkert fyrir skyldleika okkar).
Til Guðjóns!!!!
Þú vildir fá fréttir úr haustferð.
Í fáum orðum sagt gekk hún mjög vel, og skemmtu menn og konur sér bara vel, þó urðu einhverjir norðanmenn fúlir yfir því að þurfa að fara suður KJÖL, en allir lifðu þessa ferð af og flestir komu heilir heim þó misjafnlega vel á sig komnir.
Meira verður ekki gefið upp, menn verða bara að mæta til að sjá hvað um er að vera.

laugardagur, nóvember 06, 2004
Frá ritstjóra
Kæri Guðjón.
Sökum anna og tímaskorts þá hef ég ekki haft tíma til að skrifa um haustferðina, sá litli timi sem er aflögu hefur farið í samningaviðræður við Magga.
TIL Magga.
Varðandi þessa eingreiðslu og góða "summu" þá er það alveg á hreinu að ekki kemur til greina að greiða með peningum, hjá okkur tíðkast að greiða í baukum samanber ef menn hjálpa til við flutninga eða fá verkstæðisformanninn til viðgerða eftir vinnu þá er yfirleitt greitt í baukum.
Þannig að ég býð 6 bauka og málið er steindautt (er til í að klára baukana með þér) og er þetta fyrsta og seinasta boð frá ritstjórn. Ef þú ert ekki sáttur við það þá verðum við að fara dómstólaleiðina :o)