föstudagur, nóvember 19, 2004
Að norðan
Nýsköpunarverðlaun veitt fyrir kúluskít og snjóhús.
Samtök ferðaþjónustunnar afhentu í dag í fyrsta skipti nýsköpunarverðlaun í ferðaþjónustu. Verðlaunin, 250 þúsund krónur og verðlaunaskjöld, fékk fyrirtækið Mývatn ehf. sem undanfarin ár hefur beitt sér fyrir margvíslegum nýjungum á sviði ferðaþjónustu, einkum utan háannar og er í forsendum dómnefndar sérstaklega vísað til kúluskítshátíðar, snjóhúss, jólasveinsins í Dimmuborgum og íshestakeppni.
Kúluskítur er hringlaga þörungur sem vex eingöngu í tveimur vötnum í heiminum. Það eru Mývatn og Akanvatn í Japan. Við Akan hefur verið haldin kúluskítshátíð frá 1950 og er ein þekktasta hátíð Japana í dag. Á Mývatni var fyrsta kúluskítshátíðin haldin árið 2003 og tókst vel.
Tekið af mbl.is
|

Comments:
Skrifa ummæli