föstudagur, nóvember 28, 2003
Halló allir.
Ef þið farið inná myndasíðuna héðan þá þætti mér VOÐALEGA vænt um ef þið mynduð skrifa í gestabókina.
Kv. Vefsíðustjóri.
|

Að norðan.
Þau leiðu mistök urðu í greininni um Víking í gleri að þar var sagt að atburðurinn hefði átt sér stað í Dimmuborgum en það rétta er að þetta gerðist við Grjótagjá. Beðist er velviringar á þessum mistökum.
p.s Fyrirgefðu Víkingur í gleri.

Hallo.
Nú er kominn nýr tengill "Myndir" ef þið klikkið á hann þá komist þið á myndasíðu
sem er í vinnslu, og eru mjög fáar myndir þar nú, en verið er að vinna í því Solahringurinn er bara ekki
allveg nógu langur eins og er.
KV Siggi

miðvikudagur, nóvember 26, 2003
Fréttir að norðan.
Það er nú fokið í flest skjól þegar starfsmenn eru farnir að skemma bílana viljandi, en þannig er að Víkingur
var í mývatnstúr í gær á NE og sýndi náttúrulega túristunum sveitina eins og áætlun segir til um (vonandi) en
þegar yfirgefa átti Dimmuborgir var helv.... bíllinn læstur og lyklarnir í svissinum, svo nú voru góð ráð dýr og Víkingur
greyið vissi ekki hvern andskotan hann ætti að gera, eftir miklar vangaveltur og samtal við framkvæmdastjóran var ákveðið að brjóta fremri rúðuna í hægri framhurð, ekki leyst nú túristunum á þetta og spurðu hvort hann ætlaði virkilega að brjóta rúðuna og tjáði Víkingur þeim að annað hvort væri að gera það eða ganga. Svo nú heitir Víkingur, Víkingur í gleri.

þriðjudagur, nóvember 25, 2003
Bréf frá Suðulandsdeild.
Til hamingju með þessa síðu, mér líst vel á þetta framtak.
Það er mikið rétt að starfsmenn SBA-Norðurleiðar í Reykjavík fóru á
jólahlaðborð á föstudagskvöld út í Viðey. Alls vorum við 21 sem mætti,
bílstjórar, bílfreyjur, sumarstarfsmenn og auðvitað makar. Fallegur hópur
hér á ferð. Við tókum bátinn kl. 20.00. Allir mættu með passann sinn þar
sem við fórum út úr landi. Við vorum öll sammála því að Gunnar hefði ekki
fengið brottfararleyfi þar sem hann er ekki vanur að ganga með slíka hluti
með sér þegar það á við, ekki nema passinn sé útrunnin. En við sunnanmenn
létum ekki svona hluti klikka og fengum öll stimpil í passana okkar. Hinum
megin á bakkanum var munkur nokkur sem tók á móti okkur með heitum snafs
sem ég veit ekki heitið á en var nú samt skellt í sig. Þá lá leiðin í
messu með séra Hjálmari Jónssyni. Kveikt var á kertum, sungið, hlegið,
klappað og dansað ... kannski ekki dansað en það lítur vel út í þessari
talningu. Eftir að við kvöddum séra Hjálmar með handabandi ... margir sögðu
"takk fyrir messuna flokksbróðir" ... þá var haldið inn á veitingastaðinn
og sest að borðum. Þjónninn mætti með blað og penna til að taka niður þá
drykki sem við ætluðum okkur að sötra á. Á mínu borði var mikið um vatn,
vatn, kók, kók og appelsín. En Jón Ágúst bætti það upp og fékk sér vodka í
appesínusafa með matnum og ég fékk mér rauðvín. Á hinu borðinu var allt
fljótandi í áfengi, Rögnvaldur og Haukur sátu þar .. say no more ...
Spaugstofa SBA-Norðurleiðar var mætt á svæðið, Magnús og Einar Clausen. Ég
var svo heppinn að sitja á móti þessum herramönnum og var vitni að alls
konar svipbrigðum, kunnulegum röddum og öðru gríni. Gíraffinn var bara
góður og fallegur.
Jæja, forrétturinn var tilbúinn og fór fyrsti hluti hópsins af stað og komu
með mjög girnilegan mat til baka, en þegar seinni hluti hópsins ætlaði að
fá sér þá var ekki mikið eftir og var fótur og fit hjá þjónunum og fyllt
var á bakkana. Á milli rétta gátum við bætt á glösin, vatni, kóki eða
vodka. Svo kom að aðalréttinum sem var dásamlegur og fóru flestir fleiri en
tvær ferðir. Ekki var eftirrétturinn verri, kökur og kræsingar, kaffi og
koníak á eftir eða meira vodka og bjór handa sumum. Það má segja að allir
hafi farið saddir og sáttir heim eftir þetta kvöld. En ekki fóru allir heim
því að tveir ungir herramenn kíktu á lífið í miðbæ Reykjavíkurborgar og var
fátt um manninn, en góðmennt. Það má segja að þetta kvöld hafi bara tekist
vel. Taka skal fram að þessir tveir ungu herramenn sem fóru á ölhús
Reykjavíkur voru ekki í akstri næsta dag.
Hér hef ég stiklað á því helsta sem fór fram þetta kvöld hjá starfsmönnum
SBA-Norðurleiðar í Reykjavík.
Kv. Ágúst

mánudagur, nóvember 24, 2003
Þetta er smá vísir að heimasíðu Starfsmannafélags SBA-NORÐURLEIÐAR og mun ég leitast við að birta hér allar helstu fréttir um leið og þær berast, svo endilega látið mig vita ef eitthvað er um að vera.
Kv. Siggi
|
Kv. Siggi
Í fréttum er það helst að SUNNANMENN fjölmenntu á jólahlaðborð á föstudagskveldið var, en ekkert hefur frést af því svo það hefur varla verið mjög merkilegt. En NORÐANMENN ætla að mæta á jólahlaðborð þann sjötta Desember næstkomandi og mun örugglega eitthvað fréttast af því.
Kveðja Siggi
|
Kveðja Siggi
Hallo þetta er heimasíða staffs sba
|