<$BlogRSDUrl$>

þriðjudagur, maí 25, 2004

Að norðan  

Mánárbakka mörvömbin
að mörgu þarf að hyggja
Vafra kringum vorlömbin
og varg úr korni styggja

Enga þörf ég á því tel
um það neitt að ræða
Hvað Bjarna fer það firnavel
fuglana að hræða

Kveðja ritstjóri


|

mánudagur, maí 24, 2004

FRÁ RITSTJÓRN STAFFSBA 

HALLO HALLO einu sinni enn og aftur og örugglega oft í viðbót, MUNA EFTIR AÐ KVITTA Í GESTABÓKINA það er gamall og góður siður að skrifa í gestabók og við skulum halda þeim góða sið við. Það þarf ekki að skrifa meira en nafn, en það er guðvelkomið að skrifa meira, endilega látið heyra í ykkur það eru þó nokkrir sem kíkja á þessa síðu á hverjum degi og það væri gaman að fá eitthvað frá ykkur um þessa síðu. Ég nenni ekki að vera að þessu bara fyrir mig, svo endilega látið heyra í ykkur, ef engin viðbrögð verða þá mun þessi síða lognast útaf og deyja drottni sínum AMEN.

Með von um góð viðbrögð ritstjórn staffsba :o)

|

Að norðan  

Ekki finnst mér nú gerast mikið á heimasíðu SBA, eins og þetta lofaði nú góðu á tímabili, það voru nú reglulega settar inn fréttir, með von um viðbrögð.

Kveðja Ritstjóri staffsba

|

Frá ritstjóranum 

SKÁL EINIR B

|

Að norðan  

Arnar alls ekki setja hjólið við blómabeð.

Elgur stal reiðhjóli

Elgur nokkur galt fjölskyldu í Vuoggatjalme í Norður-Svíþjóð rauðan belg fyrir gráan þegar hann hafði reiðhjól fjölskyldunnar á brott með sér.
Elgurinn hefur í tæpan áratug verið árviss gestur á vorin hjá Björn og Monicu Helamb og ruðst inn í garðinn þeirra og gætt sér á rósum og öðrum blómum. Í þetta skipti ákváðu þau að gera ráðstafanir og stilltu hjólinu upp framan við rósabeðið.

En elgskýrin, sem kölluð hefur verið Eyrnabeygla vegna þess að annað eyra hennar lafir niður, skeytti engu um þessa frumlegu varnargirðingu. Hún stakk hausnum gegnum grind hjólsins og hámaði rósirnar í sig.

„Síðan hvarf hún með hjólið fast á hausnum," sagði Björn. Hann fann hjólið síðar í um hálfs kílómetra fjarlægð frá húsinu en það var þá allt beyglað og sennilega ónýtt.

Eyrnabeygla kom aftur í heimsókn um helgina og ætlaði að fá sér eftirrétt en þau hjónin ráku hana á brott.

Ég fann þetta á mbl.is og ákvað að birta það öðrum til varnaðar.

Kveðja Ritstjóri


|

Að norðan  

Jæja þá eru það fréttirnar.
Í fréttum er það helst að keyptur var bíll fyrir helgi og samkvæmt heimildum frá Útistöðum var það MAN, en eftir á að fá það staðfest, því einhvera hluta vegna finnst ritstjóranum það frekar ólíklegt að Klinkenberg og Sjóðríkur hafi keypt MAN en meira um það síðar.

Nú Útistaða bóndinn var að fjölga sér og fékk dreng og stúlku.

Ekki meira að sinni
Kveðja Ritstjóri

|

föstudagur, maí 21, 2004

Að norðan  

Ökuritarnir sýndu minni hraða en ratsjáin

Héraðsdómur Vestfjarða hefur sýknað tvo ökumenn af ákæru fyrir umferðarlagabrot þar sem ökuritar í bílum þeirra sýndu, að bílunum hefði verið ekið mun hægar en ratsjármælingar lögreglunnar á Hólmavík á bentu til. Báðir ökumennirnir mótmæltu því að hafa ekið jafn hratt og lögreglan sagði og vísuðu á ökuritann strax og þeir voru stöðvaðir.
Annar ökumaðurinn var stöðvaður í apríl 2002 er hann ók vörubíl með tengivagni um Djúpveg í Hrútafirði þar sem hámarkshraði er 80 km á klukkustund. Lögreglan mældi bílinn á 104 km hraða á klst. en ökuritinn sýndi að bílnum hafði verið mest ekið á 89 km hraða áður en hann var stöðvaður.

Hinn ökumaðurinn ók á á þjóðvegi 1 um Holtavörðuheiði í júlí á síðasta ári þar sem hámarkshraði er 90 km á klst. Ratsjármælingar lögreglu bentu til þess að bílnum hefði verið ekið á 135 km hraða en ökuritinn sýndi að bíllinn hefði verið á um 100 km hraða.

Niðurstöður beggja dómanna eru svipaðar. Í öðrum segir, að löng reynsla sé af hraðamælingum með ratsjá hér á landi og venja að leggja þær til grundvallar dómum, að því tilskildu að ekki hafi verið rangt að mælingu staðið á einhvern hátt eða vegna ytri aðstæðna verði niðurstaða hennar dregin í efa. Ekki sé leitt í ljós l að svo hafi verið í þessu tilviki og er sönnunargildi mælingarinnar því mikið. Við það bætist skýr og eindreginn framburður beggja lögreglumannanna um að ákærði hafi ekið á 135 km/klst. er þeir héldu jöfnu bili milli bifreiðanna við eftirför og að ratsjá, hraðamæli lögreglubifreiðarinnar og GPS tæki hafi borið saman um þann hraða. Hafi ákæruvaldið þannig fært fram afar veigamikil sönnunargögn til stuðnings því að bílnum hafi verið ekið svo hratt sem honum er gefið að sök.

Fram hjá því verði þó ekki horft að ákærði framvísaði á vettvangi skráningarblaði úr tæki, sem honum sé skylt að hafa í bifreið sinni, yfirfarið var og prófað af faggiltum aðila í desember 2002 og á að sæta vissu eftirliti við almenna skoðun ökutækis. Þetta tæki, ökuritinn, eigi að skrá raunverulegan hraða bifreiðarinnar með 6 km/klst. mesta leyfilega fráviki. Skráningarblaðið sýni 100 km/klst. Ástæða hafi verið til að rannsaka betur þessa sterku vísbendingu um að ákærði hefði ekið miklum mun hægar en ratsjármælingin gaf til kynna. Verði hann ekki látinn bera hallann af því að svo var ekki gert.

Þá segir í dómnum að óútskýrt sé hvers vegna mismunandi mælingar hafi verið á ökuhraða ákærða með tækjum sem eigi að vera nákvæm mælitæki á ökuhraða. Leiði þessi mismunur til þess að vafi sé um sök ákærða sem verði að meta honum í hag.


|

miðvikudagur, maí 19, 2004

Að norðan  

þar sem ritstjórinn er í fríi þá á hann svolítið erfitt með að fylgjast með öllu sem gerist hjá fyrirtækinu, og ekki eru nú vinnufélagarnir duglegir að segja frá því fréttnæma, það er yfirleitt tilviljun ef ritstjórinn kemst að einhverju. Svo endilega verið dugleg að hafa samband síminn er 8695010 og netfangið sighj@simnet.is það þar náttúrulega ekki að taka það fram að fyllsta trúnaðar og nafnleyndar er gætt, og allt sem er birt er kannað og þess gætt að ekki sé verið að birta eitthvað rugl sem engin fótur er fyrir.

Kveðja Ritstjórinn

|

|

mánudagur, maí 17, 2004

Að norðan  

Var að setja inn tengil með Skemmtiferðaskipum sem koma til Akureyrar 2004, hann er að vísu ekki alveg tibúinn en þetta kemur.

Kveðja ritstjóri

|

laugardagur, maí 15, 2004

------- TILKYNNING ------- 

Því miður þá hef ég engin egg til sölu lengur, en ég hef GÆSIR til sölu, ástæðan fyrir því,jú hún er að eggin unguðust út, og hvað haldiði þetta voru þá GÆSAEGG, en hvað um það ef ykkur vantar gæs þá endilega hafið samband.

Virðigarfyllst.
Þorvaldur Rafn Kristjánsson
Rabbi
Víkingur
Víkingur í gleri
Stolti
og fleiri


|

fimmtudagur, maí 13, 2004

Að norðan 

Jæja þá eru það skipin í sumar.

Sorry hef engan adsk.....tíma í þetta núna græjum þetta á morgun, þarf að fara að sinna konunni klára þetta á morgun.

Kveðja ritstjóri

|

Að norðan 

Var að setja inn nýja tengla.

Kveðja ritstjóri

|

Að norðan 

Var að setja inn nýtt myndaalbúm með myndum sem hafa ekki sést opinberlega og líka gömlum myndum njótið vel.

Kveðja ritstjóri

|

miðvikudagur, maí 12, 2004

Að norðan 

Jæja allt á fullu hér.
það hefur alveg gleymst að segja frá því að í síðustu viku þá smalaði Gunni öllum föstu starfsmönnunum saman í rútubíl, og var byrjað á að bjóða koníak því næst var stefnan tekin austur á bogin (auðvitað í Þingeyjarsýsluna) og fórum við á Samgönguminjasafnið Ystafelli, en þar kennir ýmissa hluta og mæli ég hiklaust með því að menn stoppi þar ef þeir eiga þess kost. Því næst var haldið til baka til Akureyrar með tilheyrandi pissu stoppum, þegar til Akureyrar kom var farið á Greifan og áttum við þar notalega stund.
Ekki veit ég nú um annað fréttnæmt nema þá það að það stendur til að fara til Þýskalands í haust á rútusýningu, og erum við byrjaðir að taka við pöntunum í ferðina, en allar nánari upplýsingar gefa Ásgeir í síma 8487118 og Siggi í síma 8695010.

Kveðja ritstjóri

|

laugardagur, maí 08, 2004

Að norðan 

Jæja hér gerist nú ekki mikið, en það stendur til bóta verið bara dugleg að gylgjast með. OG MUNA EFTIR GESTABÓKINNI.

Kveðja ritstjóri

|

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com