<$BlogRSDUrl$>

föstudagur, maí 21, 2004

Að norðan  

Ökuritarnir sýndu minni hraða en ratsjáin

Héraðsdómur Vestfjarða hefur sýknað tvo ökumenn af ákæru fyrir umferðarlagabrot þar sem ökuritar í bílum þeirra sýndu, að bílunum hefði verið ekið mun hægar en ratsjármælingar lögreglunnar á Hólmavík á bentu til. Báðir ökumennirnir mótmæltu því að hafa ekið jafn hratt og lögreglan sagði og vísuðu á ökuritann strax og þeir voru stöðvaðir.
Annar ökumaðurinn var stöðvaður í apríl 2002 er hann ók vörubíl með tengivagni um Djúpveg í Hrútafirði þar sem hámarkshraði er 80 km á klukkustund. Lögreglan mældi bílinn á 104 km hraða á klst. en ökuritinn sýndi að bílnum hafði verið mest ekið á 89 km hraða áður en hann var stöðvaður.

Hinn ökumaðurinn ók á á þjóðvegi 1 um Holtavörðuheiði í júlí á síðasta ári þar sem hámarkshraði er 90 km á klst. Ratsjármælingar lögreglu bentu til þess að bílnum hefði verið ekið á 135 km hraða en ökuritinn sýndi að bíllinn hefði verið á um 100 km hraða.

Niðurstöður beggja dómanna eru svipaðar. Í öðrum segir, að löng reynsla sé af hraðamælingum með ratsjá hér á landi og venja að leggja þær til grundvallar dómum, að því tilskildu að ekki hafi verið rangt að mælingu staðið á einhvern hátt eða vegna ytri aðstæðna verði niðurstaða hennar dregin í efa. Ekki sé leitt í ljós l að svo hafi verið í þessu tilviki og er sönnunargildi mælingarinnar því mikið. Við það bætist skýr og eindreginn framburður beggja lögreglumannanna um að ákærði hafi ekið á 135 km/klst. er þeir héldu jöfnu bili milli bifreiðanna við eftirför og að ratsjá, hraðamæli lögreglubifreiðarinnar og GPS tæki hafi borið saman um þann hraða. Hafi ákæruvaldið þannig fært fram afar veigamikil sönnunargögn til stuðnings því að bílnum hafi verið ekið svo hratt sem honum er gefið að sök.

Fram hjá því verði þó ekki horft að ákærði framvísaði á vettvangi skráningarblaði úr tæki, sem honum sé skylt að hafa í bifreið sinni, yfirfarið var og prófað af faggiltum aðila í desember 2002 og á að sæta vissu eftirliti við almenna skoðun ökutækis. Þetta tæki, ökuritinn, eigi að skrá raunverulegan hraða bifreiðarinnar með 6 km/klst. mesta leyfilega fráviki. Skráningarblaðið sýni 100 km/klst. Ástæða hafi verið til að rannsaka betur þessa sterku vísbendingu um að ákærði hefði ekið miklum mun hægar en ratsjármælingin gaf til kynna. Verði hann ekki látinn bera hallann af því að svo var ekki gert.

Þá segir í dómnum að óútskýrt sé hvers vegna mismunandi mælingar hafi verið á ökuhraða ákærða með tækjum sem eigi að vera nákvæm mælitæki á ökuhraða. Leiði þessi mismunur til þess að vafi sé um sök ákærða sem verði að meta honum í hag.


|
Comments: Skrifa ummæli

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com