sunnudagur, ágúst 29, 2004
Að norðan
Jæja þá er að skrifa smá.
Fór áætlun norður Kjöl í dag sem er í sjálfu sér ekkert merkilegt, en á Geysi fór ég í bílstjóra og fararstjórakompuna, og fékk mér kaffi og fletti gestabókinni sem er þar og sá að Ólafur nokkur Theódórsson hafði skrifað þar vísu en hún er svohljóðandi.
|
Fór áætlun norður Kjöl í dag sem er í sjálfu sér ekkert merkilegt, en á Geysi fór ég í bílstjóra og fararstjórakompuna, og fékk mér kaffi og fletti gestabókinni sem er þar og sá að Ólafur nokkur Theódórsson hafði skrifað þar vísu en hún er svohljóðandi.
Hér sinn nærði Bjarni belg
af brauði og súpu út sig tróð
Og að vanda óð hann elg
svo enginn vissi hvar hann stóð.
Á öðrum stað kvittaði hann svohljóðandi.
Ég kom í dag o´naf Kili
kveðjunni svo ég skili
Ég súpuna át
en svo varð ég mát
og segi því bless,í bili.
Kveðja ritstjóri.
miðvikudagur, ágúst 25, 2004
Frá ritstjórn
Bara minna einu sinni enn á GESTABÓKINA.
Kveðja ritstjóri.
GLÓÐVOLG FRÉTT
Höfum það eftir mjög áræðanlegum heimildum að Anna skrifstofumær sé farin að æfa Patrolkörfubolta með ungmennafélagi Hofsósinga, en það á eftir að fá nánari upplýsingar um það hverskonar íþrótt þessi Patrolkörfubolti sé, ekki hefur fundist neitt um þessa íþróttagrein á veraldarvefnum, og ekki hefur Anna viljað tjá sig um hana, en við munum halda áfram að grafast fyrir um þetta og segja frá ef eitthvað finnst um þessa íþrótt.
kv ritstjóri.
|
kv ritstjóri.
Að norðan
Jæja ekki er nú mikið um fréttir hér fyrir norðan, síðasta skipið kom í gær og skólakeyrslan að byrja á fullu.
Er að bæta inn myndum svona smá saman.
kv. ritstjóri
|
Er að bæta inn myndum svona smá saman.
kv. ritstjóri
mánudagur, ágúst 23, 2004
Vísnahornið
Það er mörgum þungur kross
að þurfa að keyra í Dettifoss
Á móti vega að vísu
villtar nætur hjá Dísu.
Aka Hrolli ýmsum finnst
eflaust skolli gaman
Svo ekki sé nú á það minnst
ef hann tollir saman
að þurfa að keyra í Dettifoss
Á móti vega að vísu
villtar nætur hjá Dísu.
Aka Hrolli ýmsum finnst
eflaust skolli gaman
Svo ekki sé nú á það minnst
ef hann tollir saman
sunnudagur, ágúst 01, 2004
Vísnahornið hans Óla Tedd
Var í skálaferð um daginn með tveim kvenkyns kokkum sem Mánárbakkaundrið var sífellt að ergja með sms skeytum. Sá ég að í óefni stefndi og sendi honum vísu þessa:
Hætta skaltu skratti nú
skeytasendingunum,
Því gagnast ekkert getur þú
grautarkerlingunum.
Önnur sem mér var að detta í hug útaf gífurlegum vexti SBA-Norðurleiðar undanfarið.
Fyrirtæki á fornum merg
fljótt hann breytti í risa úr dverg
Græðir fé í gríð og erg
Gunnar Magnús Klinkenberg.
Hætta skaltu skratti nú
skeytasendingunum,
Því gagnast ekkert getur þú
grautarkerlingunum.
Önnur sem mér var að detta í hug útaf gífurlegum vexti SBA-Norðurleiðar undanfarið.
Fyrirtæki á fornum merg
fljótt hann breytti í risa úr dverg
Græðir fé í gríð og erg
Gunnar Magnús Klinkenberg.
