sunnudagur, ágúst 01, 2004
Vísnahornið hans Óla Tedd
Var í skálaferð um daginn með tveim kvenkyns kokkum sem Mánárbakkaundrið var sífellt að ergja með sms skeytum. Sá ég að í óefni stefndi og sendi honum vísu þessa:
Hætta skaltu skratti nú
skeytasendingunum,
Því gagnast ekkert getur þú
grautarkerlingunum.
Önnur sem mér var að detta í hug útaf gífurlegum vexti SBA-Norðurleiðar undanfarið.
Fyrirtæki á fornum merg
fljótt hann breytti í risa úr dverg
Græðir fé í gríð og erg
Gunnar Magnús Klinkenberg.
Hætta skaltu skratti nú
skeytasendingunum,
Því gagnast ekkert getur þú
grautarkerlingunum.
Önnur sem mér var að detta í hug útaf gífurlegum vexti SBA-Norðurleiðar undanfarið.
Fyrirtæki á fornum merg
fljótt hann breytti í risa úr dverg
Græðir fé í gríð og erg
Gunnar Magnús Klinkenberg.
Comments:
Skrifa ummæli
