<$BlogRSDUrl$>

laugardagur, október 29, 2005

Að austan 

Jæja þá er að sýna smá lit.
Héðan af austurvígstöðvunum er allt gott að frétta, nóg að gera unnið 10- 16 tíma á dag svo það er ekki mikill tími til að rugla hér. Sá á síðu SBA að búið er að ganga frá kaupum á nýrri BOVU og láta tvo gamla uppí, eins gott að Alli Kalli og Siddi verði ekki sendir með þá austur.
Frétti að Alli Kalli norðursins hefði gengið með húfu frá því í haustferðinni.
Svo eru starfsmenn SBA komnir í útlegð á Reyðarfirði.
Fór á skyndinámskeið hjá Bectel um daginn svo að ég mætti fara inná svæðið, námskeiðið tók 30-40 mín, en ég skil nú ekki alveg hvað fer fram á 6 daga námskeiðinu.það er alveg snilld að sjá sumt þarna t.d voru tveir að bera skrifborð út úr einu húsi þarna og báðir í öryggisskóm með hjálm og hlífðargleraugu.
Í gær fór ég með 20 stórsekki með sandi þangað og meðan vagninn var losaður var svæðinu í kring lokað með keilum og línu á milli og stóðu svo tveir menn við endan og pössuðu að það færi enginn innfyrir.

Endilega kíkið á bloggið hennar Tótu þar er fullt af myndum úr haustferðinni.

Kv ritstjórinn

|

mánudagur, október 10, 2005

Að norðan 














Jæja þá er haustferðin búin og tókst vel til og ég held að allir hafi skemmt sér vel. Nú Njúmann jeppakall stofnaði fyrirtæki í ferðinni en það sérhæfir sig í að kæla bjór inná herbergjum og einnig tekur hann að sér rakstur,klippingu og fleira þess háttar.
Ekki meira að sinni en það mun koma meira síðar.
Kv ritstjóri

|

föstudagur, október 07, 2005

Haustferð 2005 





Jæja þá er hausferðin að bresta á og verður nú fróðlegt að sjá hvert fara á en þetta er óvissuferð as júsúal þannig að maður hefur ekki hugmynd út í hvað maður er að fara. En ritstjórinn er búinn að kaupa nesti til margra daga en það samanstendur af...... 2. stk samlokur, HELLINGUR af THULE og að sjálfsögðu JAGERMEISTER (jagari) en það er nauðsynlegt í morgunsárið. Svo verður bara að treysta á að leigubílstjórinn mæti og með HARÐFISK. Svo verður bara að treysta á að nefndin standi sig með restina af matnum.
.
.

Kveðja og SKÁLLLLLLLLLLLLLLLLLLLLLLLLLLLLLLLLLLLLLLLLL
Ritstjórinn

|

fimmtudagur, október 06, 2005

Þvílík smámunasemi!!!!! 

Gripinn á 270 km hraða.
Lögregla í Frakklandi stöðvaði í dag mann, sem ók á 270 km hraða á hraðbraut þar sem hámarkshraði er 130 km. Myndir náðust af ökufantinum á eftirlitsmyndavél skammt frá borginni Bordeaux.
Ökumaðurinn, sem er 27 ára, var handtekinn og ákærður fyrir að valda öðrum lífshættu. Hann átti ekki bílinn sem hann ók.
.
Þetta er nú einum of mikil smámunasemi hann var BARA 140 km yfir hámarkshraða.

Kv ritstjóri

|

Haustferð 2005 

Hér að ofan er mynd af einum í ferðanefndinni,greinilega þungt hugsi yfir þessu öllu.
Jæja þá er haustferðin á morgun og vonandi eru allir þátttakendur tilbúnir með góða skapið og söngvatnið (en af tillitssemi við aðra í ferðinni þá ætlar ritstjórinn að syngja sem MINNST) en það er nauðsynlegt í svona ferðum sérstaklega hjá sumum ef við skyldum þurfa að fara KJALVEG en hann mun vera vinsæll hjá norðanmönnum í þessum ferðum, enda ekki hægt að ætlast til að malbiksbörnin í sunnandeildinni þoli að fara svona fjallvegi á þessum árstíma. En hvað um það það mun skýrast eftir hádegi á morgun hvert verður farið (Jói veist þú hvert á að fara ?).
Kv ritstjóri

|

miðvikudagur, október 05, 2005

Súkkulaði eða Kynlíf ?????? 

Súkkulaði eða kynlíf?
1. Þú getur fengið súkkulaði.
2. "Ef þú elskar mig þá gleypirðu þetta" hefur raunverulega merkingu með súkkulaði.
3. Súkkulaði fullnægir meira að segja þegar það er orðið mjúkt.
4. Þú getur hættulaust fengið þér súkkulaði meðan þú keyrir.
5. Þú getur látið súkkulaði endast eins lengi og þú vilt.
6. Þú getur fengið þér súkkulaði meira að segja fyrir framan mömmu þína.
7. Ef þú bítur og fast í hneturnar þá kvartar súkkulaðið ekki.
8. Tvær manneskjur af sama kyni geta fengið sér súkkulaði án þess að vera kölluð klúrum nöfnum.
9. Orðið "skuldbinding" hræðir súkkulaði ekki í burtu.
10. Þú getur fengið þér súkkulaði í vinnustólnum/við vinnuborðið á vinnutíma án þess að koma vinnufélugunum í uppnám.
11. Þú getur beðið ókunnugan um súkkulaði án þess að eiga það á hættu að vera löðrungaður.
12. Þú færð ekki hár í munninn af súkkulaði. 13. Með súkkulaði er engin þörf á að þykjast.
14. Súkkulaði gerir þig ekki ólétta.
15. Þú getur fengið þér súkkulaði á hvaða tíma mánaðarins sem er.
16. Það er auðvelt að finna gott súkkulaði.
17. Þú getur fengið þér eins margar tegundir af súkkulaði eins og þú ræður við.
18. Þú ert aldrei of ungur eða of gamall til að fá þér súkkulaði.
19. Þegar þú færð þér frábært súkkulaði þá heldur það ekki vöku fyrir nágrönnunum

|

þriðjudagur, október 04, 2005

R 4718 í Noregi 


















Setti hér nokkrar myndir af GAMLA R 4718, hann er nú búinn að breytast ansi mikið frá því að hann var í farþegaflutningum hérna á klakanum. Ef vel er að gáð þá stendur AKUREYRI á skiltinu í framglugganum og ef menn leggja saman tölurnar á númerinu þá er útkoman "18".
Kv ritstjóri

|

mánudagur, október 03, 2005

STOLINN BÍLL 

STOLINNBÍLLSTOLINNBÍLLSTOLINNBÍLLSTOLINNBÍLLSTOLINNBÍLLSTOLINNBÍLL
STOLINNBÍLLSTOLINNBÍLLSTOLINNBÍLLSTOLINNBÍLLSTOLINNBÍLLSTOLINNBÍLL
STOLINNBÍLLSTOLINNBÍLLSTOLINNBÍLLSTOLINNBÍLLSTOLINNBÍLLSTOLINNBÍLL

þESSUM BÍL VAR STOLIÐ Á AKUREYRI AÐFARANÓTT MÁNUDAGSINS 03,10,05 .
EF EINHVERJIR HAFA EINHVERJAR UPPLÝSINGAR UM BÍLINN ÞÁ LÁTIÐ LÖGREGLU ENDILEGA VITA.
.
.
Kv ritstjóri

|

Að utan 

11 ára gamall drengur ók BMW á Englandi:
Bannað að aka í heilt ár.
11 ára gömlum dreng hefur verið bannað að keyra bíl í heilt ár, eftir að hafa verið stöðvaður þar sem hann ók BMW bifreið í bænum Andover í Hampshire á Englandi í ágúst. Lögregla gaf bílstjóranum merki um að stöðva vegna þess að hann var ljóslaus, en við það fór hann yfir á öfugan vegarhelming og var næstum búinn að aka á ljósastaur, að því er fram kemur á fréttavef BBC.
Þegar lögreglumönnum hafði tekist að stöðva ferð drengsins sagðist hann eiga bílinn og að hann vissi ekki að hann þyrfti ökuskírteini til að keyra hann. Hann sagðist hafa skipt á litlu mótórhjóli og bílnum við mann sem hann hitti í Winchester.
Drengurinn viðurkenndi fyrir dómi að hafa keyrt án nægilegrar aðgæslu og án þess að hafa ökuskírteini og tryggingar. Hann fékk þrjá refsipunkta fyrir að keyra án ökuskírteinis og sex fyrir að vera án tryggingar.

|

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com