<$BlogRSDUrl$>

laugardagur, október 29, 2005

Að austan 

Jæja þá er að sýna smá lit.
Héðan af austurvígstöðvunum er allt gott að frétta, nóg að gera unnið 10- 16 tíma á dag svo það er ekki mikill tími til að rugla hér. Sá á síðu SBA að búið er að ganga frá kaupum á nýrri BOVU og láta tvo gamla uppí, eins gott að Alli Kalli og Siddi verði ekki sendir með þá austur.
Frétti að Alli Kalli norðursins hefði gengið með húfu frá því í haustferðinni.
Svo eru starfsmenn SBA komnir í útlegð á Reyðarfirði.
Fór á skyndinámskeið hjá Bectel um daginn svo að ég mætti fara inná svæðið, námskeiðið tók 30-40 mín, en ég skil nú ekki alveg hvað fer fram á 6 daga námskeiðinu.það er alveg snilld að sjá sumt þarna t.d voru tveir að bera skrifborð út úr einu húsi þarna og báðir í öryggisskóm með hjálm og hlífðargleraugu.
Í gær fór ég með 20 stórsekki með sandi þangað og meðan vagninn var losaður var svæðinu í kring lokað með keilum og línu á milli og stóðu svo tveir menn við endan og pössuðu að það færi enginn innfyrir.

Endilega kíkið á bloggið hennar Tótu þar er fullt af myndum úr haustferðinni.

Kv ritstjórinn

|
Comments: Skrifa ummæli

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com