<$BlogRSDUrl$>

miðvikudagur, júlí 21, 2004

Andlát 

Mazda Sbadóttir

Mazda Sbadóttir fæddist í Japan á seinni hluta síðustu aldar. Hún lést að Skógarhlíð 10 Reykjavík í júlí 2004.
 
Já hún Mazda er farin yfir móðuna miklu, þó er ekki víst að margir muni sakna hennar, en alltaf fór hún með okkur þangað sem við vildum, þegar við vildum og aldrei mótmælti hún(allavega ekki mikið), hún þjónaði okkur mjög dyggilega eftir að sba ættleiddi hana en það var einhvern tíman á síðustu öld. Ætt Mözdu er það stór að það er ekki nokkur leið að rekja hana hér.
Útför Mözdu fór fram í kyrrþey þann 19 júlí að ósk hinnar látnu.
 
Megi guð varðveita þig
Kveðja
Starfsmenn SBA-NORÐURLEIÐAR



|

þriðjudagur, júlí 13, 2004

AÐ norðan 

Já það verður nú ekki sagt að Þorvaldur (Emil í Kattholti) hugsi ekki um farþegana, búinn að vera með þá í þrjá daga á þremur bílum geri aðrir betur :o) (hann segist vera að kynna bíla SBA fyrir fólkinu en ég held að hann þurfi þá að taka sig á því enn eru eftir rúmlega fimmtíu bílar og ferðin er bara ellefu eða tólf dagar) einnig eru miklar líkur á að hann fari þennan hring keyrandi en ekki ......... sei no mor en grunur leikur á að það hafi eitthvað með kokkin að gera.

p.s Emil var að frétta af miklum flóðum í smálöndum í Svíþjóð er ekki Kattholt þar ??????


Kveðja ritstjóri

|

mánudagur, júlí 12, 2004

AÐ norðan og sunnan 

Þar sem ritstjórinn er að dóla sér hringinn með nokkra Ítala þá er ekki mikið skrifað þessa dagana, en eitthvað slúður er nú til staðar, Emil í Kattholti er að glíma við einhver vatnsvandamál á 22. Nú samkvæmt áræðanlegum heimildum er búið að hafa Gústaskipti á skrifstofunni í Ósómaborginni.

Ekki meira að sinni

kveðja ritstjóri

|

sunnudagur, júlí 04, 2004

Að sunnan 

Nú er hann Gústi farinn
hann fór um miðjan dag
Strákarnir segj´ann
hafa fegið betra starf

Já hann Smágúst nei fyrirgefið Ágúst (Vals) er hættur hjá SBA.
Ekkert hefur fengist staðfest með starfslokasamning en verið er að vinna í málinu.
Nánar um þetta síðar.

Kv ritstjóri

|

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com