mánudagur, nóvember 15, 2004
Að norðan
Úr dagbók einhvers.
12. Ágúst - Fluttum til Íslands að vinna. Settumst að fyrir austan.Ég er svo spenntur. Það er svo fallegt hérna, fjöllin eru dýrleg.Ég get ekki beðið eftir að sjá hvernig þau líta út í vetur þegar það fer að snjóa.
14. Október - Ísland er fallegasta land í heimi. Laufin eru öll rauð og appelsínugul. Sáum hreindýr í dag. Þau eru svo falleg. Það er svo kyrrlátt hérna, algjör paradís. Ég ætla sko að búa hérna það sem eftir er.
11. Nóvember - Bráðum byrjar hreindýra veiðitímabilið. Ég get ekki ímyndað mér að einhver vilji drepa þessi fallegu dýr. Vona að það fari að snjóa. Ég elska þetta land.
15. Nóvember - Það snjóaði í nótt. Þegar ég vaknaði var allt hvítt.Þetta er eins og póstkort. Við fórum út og hreinsuðum snjóinn aftröppunum og mokuðum innkeyrsluna. Fórum í snjóbolta slag (ég vann).Þegar snjóruðningstækið ruddi götuna, þurftum við að moka aftur. Ég elska Ísland!
22. Nóvember - Meiri snjór í nótt. Snjóruðningstækið lék sama leikinnmeð innskeyrsluna okkar. Fínt að vera hérna.
15. Desember - Enn meiri snjór í nótt. Komst ekki út úr innkeyrslunni og í vinnuna. Það er fallegt hérna, en ég er orðinn ansi þreyttur á að moka snjó.Helvítis snjóruðningstæki.
22. Desember - Meira af þessu hvíta drasli féll í nótt. Ég er kominn með blöðrur í lófana og illt í bakið af öllu þessu moki. Ég held að gaurinn á snjóruðningstækinu bíði við hornið þar til ég er búinn að moka innkeyrsluna.Helvítis asninn.
24. Desember - Gleðileg Jól, eða þannig! Enn meiri anskotans snjór.Ef ég næ í helvítis fíflið sem keyrir snjóruðningstækið, þá sver ég að ég drep helvítið. Af hverju salta þeir ekki helvítis göturnar hérna meira.
18. Janúar - Meiri hvítur skítur í nótt. Búinn að vera inni í þrjá daga.Bíllinn er fastur undir heilu fjalli af snjó sem fíflið á ruðningstækinu er búinn að ýta að innkeyrslunni okkar. Veðurfræðingurinn spáði 20 cm jafnföllnum snjó næstu nótt. Veistu hvað það eru margar skóflur?
19. Janúar - Helvítis veðurfræðingurinn hafði rangt fyrir sér. Viðfengum 35 cm af skít í þetta skipti. Ef það heldur svona áfram þá bráðnar þetta drasl ekki fyrr en um mitt sumar. Snjóruðningstækið festi sig í götunni og helvítis fíflið kom og spurði hvort ég gæti lánað honum skóflu.Eftir að hafa sagt honum að ég væri búinn að brjóta sex í vetur við að moka í burtu snjónum sem hann ýtti jafnóðum inn í innkeyrsluna, munaði engu að ég bryti eina enn á hausnum á honum.
4. Febrúar - Komst loksins út úr húsi í dag. Fór í búðina að versla og á leiðinni til baka hljóp hreindýr fyrir bílinn. Skemmdir upp á tugiþúsunda. Vildi að þessum kvikindum hefði verið útrýmt síðasta haust.
3. Maí - Fór með bílinn á verkstæði í bænum. Ótrúlegt hvað þetta ryðgar af öllu þessu saltdrasli sem þeir strá á vegina.
19. Maí - Flutti til Spánar. Skil ekki að nokkur maður með viti skuli vilja búa á skítaskeri eins og Íslandi!
Kv ritstjóri.
|

Comments:
Skrifa ummæli