<$BlogRSDUrl$>

föstudagur, september 09, 2005

Að norðan 

Bensín eða Diesel.
Bensín eða Diesel það er spurning sem einn bílstjóri SBA fékk þegar hann renndi upp að dælunni hjá Shell í Skógarhlíð.
Já það mætti halda að bensíntitturinn væri ekki starfi sínu vaxinn, en það er til eðlileg skýring á þessu en hún er sú að þessi bílstjóri var Bjössi Jó.
Það er sennilega best að byrja á byrjun þessa máls, en það var þannig að einkabíll Bjössa bilaði og sennilega hefur hann hringt í Kára bifvélavirkja í Mývó sem hefur sagt honum að þetta væri greinilega tímareimin sem væri farin. Nú Bjössi semur við Hafþór um að hjálpa sér við að skipta um reimina, svo er nú farið að skoða bílinn og kemur þá í ljós að það er ekkert að reiminni.Vandast nú málið hvað getur eiginlega verið að bílnum hann bara fer alls ekki í gang. Fer nú Bjössi að lýsa því fyrir Hafþór hvernig þetta gerðist (þetta gerðist nefnilega þegar Bjössi var rétt búinn að taka bensín) dettur hafþór þá í hug hvort það gæti verið að hann hafi sett DIESEL á bílinn, ekki vildi nú Bjössi kannast við það enda með áratuga reynslu í þessum málum. Segist meira að segja hafa skoðað kvittunina úr sjálfsalanum og á henni hefði staðið BENSÍN. Jæja drífur nú Bjössi í því að kaupa annan bíl handa konunni, einnig ræðir hann við hina ýmsu spekinga hvað gæti verið að gamla bílnum og er honum bent á að það gæti verið ónýtur einhver nemi eða eitthvað svoleiðis og hann kosti ekki nema 45 þúsund (Bjössi keypti bílinn á 30 þúsund). Nú svo var farið að skoða bílinn betur og prófað að tappa af bensíntanknum og setja HREINT og ÓBLANDAÐ BENSÍN á tankinn jú vitir menn kagginn datt í gang.

Ekki meira að sinni.Kv ritstjóri

|
Comments: Skrifa ummæli

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com