<$BlogRSDUrl$>

laugardagur, september 24, 2005

Að norðan 

Fékk eftirfarandi sent í tölvupósti en það er tekið af abus.is
Velkomin til Abus.is                 

Góðir viðskiptavinir og aðrir!  Abus.is hefur ákveðið að hætta alfarið allri starfsemi sinni á hópferðasviði sem aðallega hefur verið norðanlands og þá á Akureyri.  Abus.is hefur í gegnum tíðina notið þeirrar mestu óvildar á Akureyri sem nokkurt fyrirtæki getur orðið fyrir og starfsmenn hafa jafnvel orðið fyrir aðkasti og skítkasti, bæði frá óvinveittum nágrönnum og einhverju fólki úti í bæ. Mest var um þetta í byrjun. Fjölmörg stórfyrirtæki, bæjarstofnanir og einstaklingar gerðu það sem þau gátu til að setja fót fyrir þessa starfsemi og þá sérstaklega með því að skipta ekki við það eða gefa nein færi á að það fengi að gera tilboð.  Má hér nefna fyrirtæki,  stofnanir og félög sem aldrei leituðu til Abus.is um tilboð eða sendu fyrirspurnir um verð,t.d Verkmenntaskólinn, Háskólinn, Menntaskólinn utan einu sinni en aftur á móti áttum við alveg stórkostlegt samstarf við nemendafélagið þar, félags- og skóladeild Akureyrarbæjar, fjórðungssjúkrahúsið, akstur með aldraða og starfsfólk t.d í Skjaldarvík og Kristnes, félag aldraðra, Skautafélagið, KA  hand-og knattspyrnudeild, ofl,ofl  allar deidir þórs nema Handboltinn um tíma en þó styrkti Abus.is Þórshandbolta um á aðra milljón króna sem ekki var einu sinni þakkað fyrir ofl, þó var margsinnis eftir því leitað að fá að gera tilboð, ekki annað, engin forréttindi.

Nú þurfa þessir aðilar ekki að hafa áhyggjur af því að við troðum þeim um tær.  Að sjálfsögðu þurfum við ekki að þakka þessum aðilum fyrir neitt. Það er ekki með neinum hlýleika eða söknuði sem fyrirtækið kveður Akureyri, fjarri því!

Og ánægjan af brotthvarfi fyrirtækisins hlýtur að vera enn meiri þegar ljóst  er að það skuli vera komin full einokun á allan hópferðaakstur m.a með aðstoð þessara aðila og þá hljóta verðin að verða lægri! ekki satt. Aftur á móti viljum við þakka þeim fjölmörgu sem skiptu við okkur og voru okkur vinsamlegir, vildu m.a forðast einokun á þessu sviði.  Þessari síðu mun því verða lokað bráðlega. Bestu kveðjur!

Farvel Akureyri  

 

Kveðja ritstjóri


|
Comments: Skrifa ummæli

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com