<$BlogRSDUrl$>

sunnudagur, október 28, 2007

MAN TGX og TGS eru ”Vörubíll ársins 2008“ 

MAN TGX og TGS eru ”Vörubíll ársins 2008“
Alþjóðlegur kviðdómur veitir nýju gerðunum frá MAN hin eftirsóttu verðlaun ”Truck of the Year 2008“
Á bílasýningunni “European Road Transport Show 2007” sem nú stendur yfir í Amsterdam í Hollandi voru MAN TGX og MAN TGS veittur titillinn “Vörubíll ársins 2008”. MAN er þar með fyrsti framleiðandi vörubíla, sem hlotið hefur þennan eftirsótta titil sjö sinnum.
Kviðdómur, sem samanstendur af 20 virtum evrópskum blaðamönnum fagtímarita, valdi þessar tvær nýju gerðir úr “Trucknology® Generation” línunni sem “Truck of the year 2008”.
MAN TGX og TGS fagna heimsfrumsýningu sinni á atvinnubílasýningunni í Amsterdam . Við þróun og hönnun þessara tveggja nýju gerða vörubíla í stærðarflokkunum 18 til 50 tonn, var sérstök áhersla lögð á áreiðanleika, hagkvæmni og þægindi. Með vali sínu á TGX og TGS hefur kviðdómurinn staðfest það að þessum markmiðum hefur í raun verið náð. Anton Weinmann, stjórnarformaður MAN Nutzfahrzeuge, tók við hinni eftirsóttu viðurkenningu í Amsterdam í dag 25. október. “Titillinn “vörubíll ársins 2008” er frábær viðurkenning fyrir alla starfsmenn hönnunar- og framleiðsludeildar MAN, sem innt hafa frábært verk af höndum, allt frá fyrstu hugmyndum um hönnun til framleiðslu hinna nýju gerða”. “Þessar nýju gerðir MAN vörubíla setja nýja staðla um áreiðanleika, hagkvæmni og þægindi í þeirra stærðarflokki. Þetta hefur kviðdómurinn staðfest með sínu atkvæði”, sagði Weinmann. “Við höfum hlotið einróma lof fyrir TGX og TGS, bæði frá blaðamönnum, sem og okkar eigin viðskiptavinum, sem nú þegar hafa haft tækifæri til að reyna báðar þessar gerðir. Ég er sannfærður um að verðlaunabílarnir okkar muni einnig hljóta mikið lof frá gestum sýningarinnar í Amsterdam ”.
MAN hlýtur “Truck of the Year“ titilinn í sjöunda skipti.
Eftir 1978, 1980, 1987, 1995, 2001 og 2006, er þetta í sjöunda skipti, sem MAN hlýtur hina eftirsóttu viðurkenningu “Truck of the Year“, sem búið er að veita síðan 1977. Enginn annar framleiðandi atvinnubíla hefur náð þessum áfanga fram að þessu. Með atkvæði sínu staðfesta sérfræðingar alþjóðlegs kviðdóms hátt stig tæknilegra framfara sett fram af MAN Trucknology® Generation.
Sigurvegarar “Truck of the Year“ bikarsins frá MAN Nutzfahrzeuge
1978 MAN 19.280
1980 MAN 19.321
1987 MAN F90
1995 MAN F2000
2001 MAN TGA
2006 MAN TGL
2008 MAN TGX og MAN TGS



Frekari upplýsingar má finna á www.man-mn.com/media

|
Comments: Skrifa ummæli

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com