<$BlogRSDUrl$>

miðvikudagur, janúar 26, 2005

Frá Magga (taka tvö) 

Gunni á eyrinni (Gvendur á eyrinni).

Hann Gunni á eyrinni ku vera ríkur kall,
enda er hann Klinkenberg.
Hann keypt hefur bílflota og gamlan kofahjall,
býsna gott hjá Gunna dverg.

Og alltaf sást Gunni greyið eyða fullt af fé,
af seðlum á hann nóg.
Evrur og dollara í mat- og kaffihlé
upp úr vasa sínum dró.

Hann er á eyrinni vikuna alla
með rútuútgerð ef vel er gáð.
Og ef í strand siglir með nokkra kalla
þá gefur Sjóðríkur honum ráð.

Og í Skógarhlíðinni á skrifstofunni hlær
rekstrarfíflið, Sjóðríkur.
Þar situr hann, nýkominn frá útlöndum í gær
og bumbuna strýkur.

þar rútunni glataði og rataði´ekki heim
en kom þó fyrir rest
‘I menningaráfalli hann hafði, sagði þeim,
næstum orðið fyrir lest.




‘Ut á lestarstöð.


‘Ut á lestarstöð ég keyri um með skjálft´í hendi.
‘A teinana ég álpaðist, á lest ég held ég lendi.
Hárin rísa af hræðslu um að bráðum komi lestin
ég gert hef nú í brækurnar og aukist hefur pestin.

Hæ góði Guð, ertu þarna kæri,
viltu hjálpa mér að komast raunum úr.
Það væri stuð, ef í kirkju loksins færi
ég ef þú myndir gæda mér í þessum túr.

En ekki finn ég rútustæði fyrir þennan fjarka,
nema í fjandans fjarlægð þó og verð ég þá að arka.
‘A hótelið ég stefni nú og strákana að hitta,
en rammvilltur í hringi fer eins og fyllibytta.

Hæ góði Guð...........



Mazdan (Pípan)
(1)

‘Eg sá hana fyrst fyrir fáum árum
óryðguð var hún þá,
og mengaði loftið og olli mér tárum
í reykmekki ekkert sá.

Síðla á kvöldin við vorum oft fegnir
að komast með hana í hlað.
Því oftar en ekki voru við dregnir
til að koma nú henni af stað.
Þeir ætluðu seinna að lagfæra hana
og héldu’ að það yrði létt.

Þeir gáfust loks upp og hringdu á krana,
það eina sem þeir gerðu rétt.
En saknaðartárin niður kinnarnar runnu
í brotajárnið hún fór,
og breyttist svo seinna í olíutunnu
þó ekki nú sé hún stór.


Það ætti að henda þér
(2)

Þú er ferlega asnaleg
og ljót ert´á litin.
Hjólkopparnir farnir af
og dekkin soldið slitin.
Húddið á þér bogið
og vélin öll í pati.
Húsið saman sogið
eins og í rassgati.
‘Eg held það ætti að henda þér.
Það ætti að henda þér.
Það ætti að henda þér.
Og endurvinna þig.
Og ef ég gái betur
þá minnir þú á Lödu,
með ryðbletti í gólfinu
svo sést þar niðrí götu.
Með aksturseiginleika
sem hross á heljar brokki
með hurðarhúna veika
og boddí allt í fokki.
‘Eg held það ætti.......
Svo varstu aum í gangi
með handónýta geyma.
‘I bílapressu áttu
svo sannarlega heima.
En skemmd að innan? ójú
og skottið fullt af riði
ei sakna þín en segi nú,
farvel og hvíld’ í friði.
‘Eg held það ætti......


Bestu þakkir til Magga.

|
Comments: Skrifa ummæli

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com