föstudagur, mars 11, 2005
Einn góður
Framsóknardjókur, helv. góður.
Þegar ungur framsóknarmaður kemur heim eitt kvöldið tekur konan á móti honum með því að hlaupa upp um háls honum og segja; Ástin ég er
kominn einn mánuð fram yfir. Ég er viss um að nú er ég ófrísk,
heimilislæknirinn okkar sagði að hann gæti ekki fullvissað mig um það
fyrr en hann fengi niðurstöðu úr rannsókninni á morgun og við skyldum
þegja yfir þessu þangað til.
Að morgni næsta dags kom maður frá Orkuveitunni til þess að loka
fyrir rafmagnið, þar sem ungu hjónin höfðu ekki greitt síðasta
reikning. Hann hringdi dyrabjöllunni og þegar unga frúin kom til dyra
sagði hann; "Þú ert kominn mánuð fram yfir". "Hvernig í ósköpunum
veist þú það?" spurði unga frúin. "Nú það er allt svona skráð kyrfilega í tölvukerfi Orkuveitunnar" var svarið. "Heyrðu þetta sætti ég
veist þú það?" spurði unga frúin. "Nú það er allt svona skráð kyrfilega í tölvukerfi Orkuveitunnar" var svarið. "Heyrðu þetta sætti ég
mig sko ekki við og ég ætla að tala við manninn minn í kvöld og hann mun
örugglega hafa samband við ykkur á morgun" sagði unga frúin og skellti hurðinni.
Þegar eiginmaðurinn kom heim fékk hann að heyra allt um
persónunjósnir Orkuveitunnar og hann fór vitanlega öskuvondur á fund
Alfreðs Þorsteinssonar morguninn eftir. "Heyrðu Alfreð þetta er nú
algjörlega út í hött. Hvað eiginlega í ósköpunum gengur að ykkur,
þið eruð með það í skrám ykkar að við séum komin mánuð fram yfir,
hvern andskotann kemur ykkur það við?".
"Slakaðu nú á þetta er ekkert mál, borgaðu okkur bara og þá tökum
við þetta úr skránni okkar."svaraði Alfreð.. "Borga ykkur, ertu ekki í
lagi, nú ef ég hafna því hvað þá?" "Nú þá klippum við bara á og tökum
lagi, nú ef ég hafna því hvað þá?" "Nú þá klippum við bara á og tökum
þig úr sambandi." "Og hvað á konan mín þá að gera?"
"Nú hún verður þá bara að nota kerti." Svaraði Alfreð.
Kv ritstjóri
Comments:
Skrifa ummæli
