<$BlogRSDUrl$>

miðvikudagur, júlí 20, 2005

Úr heimi vísindanna. 

Japanskir vísindamenn segjast hafa komist að því hvers vegna sumt fólk þolir lítið af áfengi og verður drukkið undir eins en aðrir geta drukkið ótæpilega án þess að verða ofurölvi. Telja þeir uppgötvun sína geta nýst til að þróa lyf og skoða virkni þeirra.
Tæknirisinn Hitachi og Osaka háskóli tóku höndum saman og rannsökuðu málið. Niðurstaðan var sú að blóðflæði er mismunandi til ákveðinna stöðva heilans hjá þeim sem þola mikið og þeim sem þola lítið áfengi.
Í rannsókninni kom í ljós að eftir nokkra drykki var blóðflæði til þeirra stöðva heilans sem stjórna sjónrænni skynjun var meira hjá fólki sem þolir lítið áfengi en hjá þeim sem þola lítið. Lítil breyting varð á þessu svæði heilans hjá þeim sem þola áfengi mjög vel.
Áfengi breytist í acetaldehýð í líkamanum en vitað er að það efni veldur timburmönnum. Ensímið ALDH2 breytir hins vegar acetaldehýði í skaðlausa sýru í líkamanum. Hjá þeim sem þoldu áfengi vel var mikil virkni ALDH2 en hjá þeim sem urðu auðveldlega drukknir virkaði ALDH2 hægar en það gerir það að verkum að þeir hinir sömu eiga á hættu að fá timburmenn.
Hitachi lagði til sérstaka tækni sem felst í því að kortleggja stöðvar heilans og kalla mætti sjónræna staðfræðitækni. Sagði fyrirtækið að nota mætti tæknina til að skoða viðbrögð heilans bæði við áfengi og öðrum efnum.

|
Comments: Skrifa ummæli

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com