<$BlogRSDUrl$>

þriðjudagur, janúar 10, 2006

Fréttir af Birni flugmanni 

Já hann Bjössi reyndi fyrir sér í fluginu um daginn, en hann er nú stundum "dálítið" fljótfær eins og flestir sem hann þekkja vita, hann náttúrulega gleymdi að setja á sig vængi eða fallhlíf . En svona er nú sagan. Það var hérna um daginn að það var verið að malbika á Eskifirði og átti Bjössi að fara með malbik þangað og fer náttúrulega í malbikunarstöðina að ná í malbik, svo er hann eitthvað að bauka við seglið á vagninum(hann semsagt var uppá gaflinum að framan) eitthvað skrikaði honum fótur og hann dettur útaf vagninum og nær ekki neinu taki og féll því niður í BOTNI krækir öðrum fætinum í eitthvað járn rífur buxurnar og skrámar fótinn eitthvað (allavega var hann blár og marinn upp undir pung og draghaltur) svo vandast nú málið því móðir jörð nálgast óðfluga (enda maðurinn í BOTNI) hugsar því flugmaðurinn að best sé að hafa hausinn á undan því hann sé massífur, og ákveður hann því að prófa höfuðlendingu sem endaði með því að hann skrapaði af sér skinn frá hvirfli og niður á kinn og einnig eyranu. Því miður eru ekki til neinar myndir hvorki af fluginu né útlitinu á honum.
Guðjón ég vona að þú sért einhverju nær núna ?
.
Kveðja ritstjóri.

|
Comments: Skrifa ummæli

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com