miðvikudagur, janúar 18, 2006
Sameining
Kynnisferðir og SBK í Keflavík sameinast
Kynnisferðir ehf. keyptu um áramótin 60% hlutafjár í SBK hf. í Keflavík, en fyrir áttu Kynnisferðir 40% hlutafjár í félaginu. Í tilkynningu frá Kynnisferðum segir að með sameiningu þessara tveggja félaga er þess vænst að sú góða þjónusta, sem SBK hafi veitt Suðurnesjabúum hingað til, verði ekki minni en hún hafi verið. SBK muni áfram annast akstur strætisvagna, skólabíla og sérleyfisbifreiða milli Keflavíkur og Reykjavíkur.
SBK var stofnað árið 1930, þegar áætlunarferðir hófust milli Keflavíkur og Reykjavíkur. Félagið annast rekstur strætisvagna á Reykjanesi, sérleyfisferða milli Reykjavíkur og Keflavíkur, leigu á rútum fyrir hverskonar hópferðir og skólaakstur fyrir Fjölbrautaskóla Suðurnesja.
Kynnisferðir voru stofnaðar árið 1968 og hafa sérhæft sig í rekstri dagsferða fyrir erlenda ferðamenn, sérleyfisakstri um Suðurland allt til Hafnar í Hornafirði og í rekstri Flugrútunnar til Keflavíkurflugvallar. Auk þess reka Kynnisferðir ýmis konar sérferðir og leigja út rútur fyrir stóra og smáa hópa.
Heimild mbl.is
Kv ritstjóri
