miðvikudagur, janúar 18, 2006
Betra er seint en aldrei...................

Fékk bílinn sinn eftir 37 ár
Fyrir 37 árum var Alan Poster 26 ára og stoltur eigandi nýrrar Corvette bifreiðar. Hann hafði einungis átt bílinn í nokkra mánuði þegar honum var stolið úr bílastæðahúsi í New York. Þann dag var lögreglunni í New York tilkynnt um 215 stolna bíla og það árið voru rúmlega 78 þúsund bílar tilkynntir stolnir. Posters var því nokkuð hissa þegar lögreglan í Carson í Kaliforníu tilkynnti honum að bíllinn væri fundinn.
Fréttavefur New York Times greindi frá því að eigandi og bíll væru nú sameinaðir á ný. Bíllin hefur allur verið yfirfarinn og var á leið úr landi til kaupanda í Svíþjóð. Af einhverjum ástæðum vantaði skiptinguna í bílinn en að öðru leyti var hann í fullkomnu ástandi.
1968 árgerð af Corvette í toppstandi kostar í dag á bilinu 20 til 60 þúsund Bandaríkjadali (1,2 til 3,6 milljónir kr.), en það fer eftir vélarstærð og ýmsu öðru, sum eintök hafa farið á 100 þúsund dali (6,1 milljónir kr.).New York Times
.
Kv ritstjóri
Comments:
Skrifa ummæli
