<$BlogRSDUrl$>

þriðjudagur, júní 21, 2005

AÐ norðan og sunnan 

Er ekki ökukennarinn vaknaður til lífsins.
.
Ég veit að ég hef verið lélegur að skrifa undanfarið.
.
Það hefur bara ekki gerst mikið undanfarið, en þó eitthvað. t.d fór ritstjórinn til Ósómaborgarinnar fyrir helgi sem er í sjálfu sér ekki svo merkilegt, en á fimmtudeginum var nú ekki útlit fyrir að það yrði mikið að gera og talaði Sæmi um að laga til á verkstæðinu, en rétt fyrir kaffi kom Gústi og bað okkur að fara að einu hóteli í bænum og kíkja á PL 792 það væri eitthvað lekavandamál á stýrinu á honum, nú við Sæmi drifum okkur þangað til að bjarga þessum leka, en þegar við komum þangað sáum við að þetta væri nú ekki neinn smá leki það var allt á floti, var nú hringt í Gústa og honum sagt hvað væri að og að það yrði að senda aðra rútu til að taka fólkið, því þessu yrði nú ekki reddað einn tveir og þrír á staðnum. Nú svo kom önnur rúta og Sæmi fór með PLið á verkstæðið og ég varð eftir til að þrífa planið (þurfti náttúrulega að fara og ná í tilheyrandi tól og tæki) ég verð nú að segja að þetta er nú ekki það skemmtilegasta sem ég hef lent í þvílíkt ógeð að hreinsa þennan stýrisvökva upp það tók um það bil 3 tíma að þrífa helv...... planið. En svona er lífið.

Kv ritstjóri

|
Comments: Skrifa ummæli

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com