þriðjudagur, apríl 13, 2004
Að norðan
Lögð var fram á þingi í síðustu viku, þingsályktunartillaga um hálendisveg milli Borgarfjarðar og Skagafjarðar. Myndi sú leið stytta veginn milli Reykjavíkur og Akureyrar um 42 kílómetra. Gert er ráð fyrir að framkvæmdirnar verði boðnar út, utan vegaáætlunar og að innheimt verði veggjöld. Áætlaður kostnaður við framkvæmdina er um 4,5 milljarðar króna. Fyrsti flutningsmaður tillögunnar er Halldór Blöndal forseti Alþingis. Leggur hann tillöguna fram ásamt þingmönnum úr Sjálfstæðisflokki, Framsóknarflokki og Samfylkingu.
Gert er ráð fyrir að vegur verði lagður upp úr Borgarfirði um Hallmundarhraun, yfir Stórasand sunnan Blöndulóns niður í Norðurárdal. Hefur Halldór sagt að slíkur vegur myndi stytta leiðina til Akureyrar um 42 kílómetra og ef vegur yrði lagður um Kaldadal, eins og gert væri ráð fyrir á vegaáætlun, myndi leiðin styttast alls um rúma 80 kílómetra. Þessi tillaga hefur verið forgangsmál Halldórs í samgöngumálum hin seinni ár og vonandi verður þetta brátt að veruleika. Í febrúar 2002 flutti Halldór ítarlega ræðu um hugmyndir sínar og fór þá ítarlega yfir tillögur sínar.
Sjálfstæðisflokkurinn í Norðausturkjördæmi telur mikilvægt að ná fram sem mestri styttingu á leiðinni milli Akureyrar og Reykjavíkur. Það er nauðsynlegt að lækka flutningskostnað milli Akureyrar og Reykjavíkur og ekki síður milli Norðausturlands og Austfjarða til Reykjavíkur. Hér er um mikið forgangsmál að ræða fyrir okkur á landsbyggðinni og mikilvægt að hefjast handa og sameinast um að koma þessu máli í gegn sem fyrst.
|

Comments:
Skrifa ummæli