þriðjudagur, apríl 13, 2004
Að norðan
Kíkti aðeins í Freyjunesið í dag, þar var einhver frekar lágvaxinn náungi á vappi og sagði Ólafur frá Skarði að þetta væri sýnishorn af starfsmanni, einnig tjáði hann mér að tveir starfsmenn væru búnir að vera með hiksta í nokkra klukkutíma (hann var nefnilega að vinna í OI 274 en sá bíll ætti að vera í Þýskalandi ef þessir tveir starfsmenn hefðu drullað sér til Seyðisfjarðar á sínum tíma) en að öðru leiti lá bara vel á þeim í Freyjunesinu.
Samkvæmt athugunum mínum þá virðist Gústi vera sá eini (fyrir utan mig) sem skoðar þessa síðu allavegana er hann sá eini sem kvittar í GESTABÓKINA, þannig að ég er að velta því fyrir mér að í staðin fyrir að skrifa hér eitthvað rugl þá sendi ég honum bara tölvupóst, en samkvæmt teljara eru talsvert fleiri heimsóknir en sjást í GESTABÓKINNI svo endilega kvitta í bókina ágætu gestir það þarf ekki að skrifa einhverja rullu bara hæ og nafn.
Ég held að sunnanmenn séu allir í fríi það fréttist allavega ekkert þaðan.
Kveðja Ritstjóri.
.
|

Comments:
Skrifa ummæli