sunnudagur, mars 28, 2004
Að norðan
Já mikið hefði nú verið gaman að hafa falda myndavél í gær. Það var nefnilega umhverfisdagur í Brekkugötu þ.e.a.s tiltekt í götunni en það fólst í því að Arnar og Ásgeir voru fluttir í annað hverfi semsagt tilflutningur á .......... sei no more. En þetta tókst allt mjög vel enda einvala lið á ferð (Arnar,Ásgeir,Ég,Siggi Már, Sævar og Þorvaldur) svo kom Guðrún til að redda þessu. Það kom ýmislegt fróðlegt fram við þessa framkvæmd t.d hvernig tvíburar verða til, það er spurning um "miðjufótinn" og margt fleira sem er ekki hægt að hafa eftir opinberlega en margt á örugglega eftir að ræða í góðra vina hóp. Nú fljótlega eftir að búið var að bera búslóðina inn á nýja heimilið (hrútastíuna) þá hvarf einn íbúinn (ekki gefið upp hver en fyrsti stafurinn er A) uppábúinn í jakkafötum og neitaði að gefa upp hvert hann væri að fara en við munum komast að því það er ekki spurning.
Meira síðar
Kveðja Ritstjóri
.
|
Meira síðar
Kveðja Ritstjóri
.
Comments:
Skrifa ummæli
