<$BlogRSDUrl$>

miðvikudagur, mars 31, 2004

Að norðan 

Eflaust muna flestir eftir því þegar Ruth Reginalds gerði lagið Ég er Furðuverk vinsælt hér á árum áður. Og sennilega muna fleiri eftir því þergar hún lét lappa uppá útlitið í beinni á stöð tvö, nú er búið að breyta textanum og læt ég hann flakka hér.

Kveðja Ritstjóri


Furðuverk

Ég á augu, ég á eyru
ég á lítið brotið nef.
Ég á augabrúnir, augnalok
sem að krumpast er ég sef.
Ég á kinnar sem er'ei stinnar
og á höfði fáein hár
Ég þekki rosa fínan lækni
sem er obboslega klár

Ég á nett geggjaða mömmu
og appelsínuhúð.
Tvær hendur og tvo fætur
sem ég keypti út í búð.
Ég get hoppað , ég get dillað
Í brjóstum hef ég gel.
Ég á bakhlið, ég á framhlið
sem að strauja þarf víst vel.

Ég er furðuverk, algert furðuverk
Sem var lagað til
Ég er furðuverk, algert furðurverk
Lítið samt ég skil

|
Comments: Skrifa ummæli

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com