laugardagur, febrúar 25, 2006
Verktakar í vandræðum eftir að öxulþungi var lækkaður
Verktakar í vandræðum eftir að öxulþungi var lækkaður
EFtir Margréti Þóru Þórsdóttur maggath@mbl.is
Guðmundur segir að hann hafi nú á dögunum fengið stórt verkefni fyrir Búseta í Naustahverfi, verk upp á um 35 milljónir króna og það sé nú í uppnámi vegna þessa. "Ég lendi í verulegum vandræðum með þetta verkefni ef ég kemst ekki með bílana í námurnar, þeir hjá Vegagerðinni lokuðu veginum svo að segja á okkur daginn eftir að ég fékk þetta verkefni," segir hann og að engar upplýsingar hafi fengist frá Vegagerðinni um hvort öxulþungi á veginum yrði hækkaður aftur og þá hvenær. "Þetta getur allt eins orðið svona fram á vor," segir hann.
Verkefnið fyrir Búseta á að vinna á rúmum mánuði. "Eins og staðan er nú veit ég bara ekki hvað ég á að gera, það hvarflaði aldrei að mér þegar ég bauð í verkið að ég kæmist ekki í malarnámurnar suður í sveit," segir Guðmundur. "Ég stólaði auðvitað algerlega á að komast í mína eigin námu," bætir hann við.
Nafni hans Gunnarsson framkvæmdastjóri hjá GV-gröfum tekur í sama streng, fyrirtæki hans er með mjög stórt verkefni í gatnagerð í Naustahverfi sem skila á 1. júlí næstkomandi. "Það er erfitt að reka fyrirtækið þegar ástandið er með þessum hætti," segir hann. "Mér sýnist að ef fram heldur sem horfir stefnir þessi lokun á umferð malarflutningabílanna í það að við getum ekki staðið við okkar samninga. Þeir eru við það að komast í uppnám."
Nú síðustu daga hefur efni verið sótt að Björgum í Hörgárdal, mun lengri leið að fara, kostnaður verður fyrir vikið meiri, aka þarf í gegnum allan bæinn og það skapar aukna hættu í umferðinni, en fyrirtækin eru með 7-8 bíla í þessum verkefnum hvort. "Ef við þurfum í Hörgárdalinn eftir efni þá er alveg ljóst að við munum tapa á þessu verkefni, það er morgunljóst, en okkur eru eiginlega allar bjargir bannaðar," segir Guðmundur Gunnarsson.
Þeir nafnar telja báðir að unnt sé að laga umræddan veg til bráðabirgða svo hægt verði að hleypa á hann umferð stórra bíla, en eru síður en svo vissir um að vilji sé til þess hjá yfirvöldum vegamála. Vegurinn hafi verið lélegur fyrir og menn því átt að sjá í hvað stefndi. "Það er bara eins og þetta sé svo seinvirkt kerfi."