<$BlogRSDUrl$>

föstudagur, febrúar 17, 2006

Fw: Um vegaeftirlitið og umferð þungaflutningabíla 

 
Subject: Um vegaeftirlitið og umferð þungaflutningabíla

FYRIRTÆKI og félög sem tengjast landflutningum hafa sent frá sér eftirfarandi greinargerð um vegaeftirlit og umferð þungaflutningabíla. Eftirtaldir aðilar skrifa undir greinargerðina:Alli geira hf. Húsavík, Austurpóll ehf. Eskifirði, Árni Helgason ehf. Ólafsfirði, Bás ehf Siglufirði Betriflutningar ehf. Egilsstöðum Fjörður ehf. Varmahlíð G.Hjálmarsson hf., Akureyri G.V.Gröfur ehf., Akureyri Hóll ehf. Húsavík, KNH ehf. Ísafirði, Króksverk, Sauðárkróki Malbikun KM, Akureyri Nesfrakt ehf. Ólafsvík Norðurfrakt ehf., Siglufirði Ragnar og Ásgeir ehf., Grundarfirði SBA-Norðurleið hf., Akureyri Steypustöðin Dalvík Víðimelsbræður, Sauðárkróki Vörumbílstjórafélagið Valur, Akureyri Þ S Verktakar ehf., Egilsstöðum Ævar og Bóas ehf., Dalvík. Fyrir Alþingi liggur nú frumvarp til breytinga á umferðarlögum sem felur í sér aukið vald umferðareftirlitsmanna Vegagerðarinnar úti á þjóðvegunum. Þetta atriði snertir mjög þá atvinnugrein sem undirrituð fyrirtæki starfa í, þ.e. rekstur þungaflutningabifreiða, og er óhjákvæmilegt að láta í ljósi skoðanir á þeirri breytingu sem frumvarpið boðar. Þess má geta hér að fjöldaundirskriftir gegn þessari breytingu eru nú fyrirliggjandi og verða afhentar samgöngunefnd Alþingis vegna umfjöllunar um frumvarpið. Auk þess gera eftirtalin fyrirtæki kröfu um að nefndin boði til sín fulltrúa eigenda þungaflutningabifreiða til að kynna þeirra hlið málsins.

Hvað þolir vegakerfið?
Í tengslum við umræðu um vegaeftirlitið er nauðsynlegt að víkja að vegakerfinu sjálfu. Það er fullkomlega ljóst að vegakerfið á Íslandi þolir illa þá auknu þungaumferð sem á það er lagt. Við Íslendingar erum einfaldlega á eftir hvað þetta varðar og þegar vöruflutningum er beint í vaxandi mæli af sjó á vegina sjá allir að það þýðir aukið álag. Við eigendur eða bifreiðastjóra getur ekki verið að sakast í þessum efnum. Hér er um að ræða þróun sem samfélagið verður að taka ábyrgð á og búa svo um hnútana að ekki hljótist aukin slysahætta af. Ástand vega snertir nefnilega ekki bara öryggi hins almenna vegfaranda heldur er ástand vega einmitt lykilatriði í öryggi okkar sem höfum okkar atvinnu úti á vegunum og það vill því miður stundum gleymast.

Fáein dæmi úr raunveruleikanum!
Eftirlitskerfi er nauðsynlegt að hafa. Við sem í atvinnugreininni störfum höfum engan áhuga á að svörtu sauðirnir komist upp með brot sín en höfum því miður alltof mörg dæmi um óeðlileg og á tíðum ósanngjörn vinnubrögð í vegaeftirliti. Dæmi eru um að 20.000 kr. sekt vegna bilaðs ökurita sem þó hafði staðist skoðun Frumherja í þrígang og bilunin hafði líka farið framhjá eftirlitsmönnum við skyndiskoðun. En þegar hún uppgötvaðist var farið með hana sem hvert annað ásetningsbrot eiganda bifreiðar.Dæmi eru um sektir í kjölfar þungamælingar malarflutningabíls þar sem þungi fór yfir mörk þrátt fyrir að rúmmál farmsins væri nákvæmlega það sama og mokað var á bílinn dag eftir dag. Ástæðan var að í ámokstrinum fyrir mælingu var efnið óvenju blautt og þar með mun þyngra, án þess að ökumaður ætti þess nokkurn möguleika að skynja þyngdina. Farið var með þetta mál sem hvert annað ásetningsbrot ökumanns og sektað eftir því um tugi þúsunda. Vissulega er þetta brot en hins vegar á ökumaður í þessu tilviki mjög erfitt með að meta þunga bílsins út frá samsetningu malarfarmsins og við þær aðstæður væru tilmæli eða ábendingar sanngjarnari og skiluðu líka árangri í stað þess að "góma" ökumenn með tugþúsunda sektum. Dæmi er um að vegaeftirlitsmaður hafi stöðvað bifreið með tengivagn innan þéttbýlis og sektað vegna þess að fylgibók með vagninum vantaði í bifreiðina en vagninn hafði verið færður milli bíla við athafnasvæði fyrirtækisins örskömmu áður. Þrátt fyrir boð um að eftirlitsmaður fylgdi bifreiðinni á athafnasvæðið skammt frá var því hafnað og sekt send út en felld niður þar sem refsiheimild fyrir slíku broti reyndist ekki til staðar í lögum! Og hinn meinti brotaþoli, fyrirtækið sjálft, sat uppi með lögfræðikostnað og mikla vinnu til að verja sína hagsmuni. Fjölmörg dæmi af sama toga má finna um hvernig umferðareftirlit birtist okkur í raun í daglegum rekstri. Oft spyrjum við okkur hvort eftirlitið hafi að markmiði að bæta umferðaröryggi, sem það ætti þó að gera. Því miður líkist umferðareftirlitið oft veiðiskap - að sekta fyrir atriði sem oft væri nægjanlegt að veita tiltal fyrir og sýna sem mesta hörku. Að góma menn og hætta ekki fyrr en eitthvað er hægt að finna til að sekta fyrir! Slíkt hugarfar er ekki til þess fallið að bæta ástandið á vegunum, samskipti og virðingu.

Rökin ekki sýnileg.
Vandséð er hvaða rök búa að baki umræddu frumvarpi. Með því er t.d. boðað að eftirlitsmenn Vegagerðarinnar fá aukna heimild til kyrrsetninga ökutækja úti á vegum þar til lögregla hefur verið send á staðinn! Tökum dæmi. Sjáum við fyrir okkur að slíkt gerist á miðjum Möðrudalsöræfum með tilheyrandi kostnaði lögreglu, vinnutapi ökutækis og ökumanns og þannig mætti áfram telja? Það er jafn gott að viðkomandi eftirlitsmenn kalli þá lögreglu á staðinn vegna raunverulegra og saknæmra brota en því miður höfum við orðið vitni að sektarboðum frá vegaeftirliti sem hefur þurft að afturkalla vegna þess að sektarheimild var ekki að finna í lögum.

Verkefni lögreglunnar fyrst og síðast.
Sú megin hugsun frumvarpsins að byggja upp tvöfalt kerfi í umferðareftirliti er að okkar mati mjög röng stefna stjórnvalda. Umferð þungabifreiða á að sjálfsögðu að vera mál lögreglunnar, eins og annarra ökutækja, og nær hefði verið að byggja upp sérstaka deild hjá lögreglunni til að sinna þessu verkefni. Eða getur verið að ástæðan fyrir þessu sé einmitt togstreita milli ráðuneyta um krónur og rekstur - útþenslu báknsins annað hvort hjá samgönguráðuneyti eða dómsmálaráðuneyti?

Litlar kröfur gerðar til vegaeftirlitsmanna.
Aukið umferðareftirlit og gott eftirlitskerfi er af hinu góða en það skiptir máli hvernig hlutirnir eru framkvæmdir. Og það hlýtur að vera eðlilegt að gera hæfis- og menntunarkröfur til vegaeftirlitsmanna á sama hátt og lögreglumanna. En svo er ekki. Í nýlegri auglýsingu frá Vegagerðinni í Morgunblaðinu um starf vegaeftirlitsmanns var eingöngu tekið fram að viðkomandi þurfi að hafa stúdentspróf, tölvu- og málakunnáttu, frumkvæði og góða samstarfshæfileika. Og þar með er upptalið. Slíkur einstaklingur getur ekki fengið starf í lögreglunni en á samt að fá heimild í lögum til að seilast ganga lengra inn á valdsvið lögreglunnar. Þetta er að okkar mati fullkomlega óeðlileg þróun.Auk þessa er staðfest að engar reglur hafa verið settar af hálfu samgönguráðherra eða samgönguyfirvalda um hæfi né starfsþjálfun umferðareftirlitsmanna, hvað þá mótaðar starfsreglur viðkomandi opinberra starfsmanna. Hefði ekki verið nær að slíkt hefði legið fyrir áður en starfssvið þeirra verður útvíkkað?

Sýnilegri lögregla skilar bættri umferð.
Síðastliðið sumar var eftirlit lögreglunnar úti á þjóðvegunum aukið í sérstöku átaki til að sporna við hraðakstri. Það skilaði árangri. Árangurinn af því að lögreglan tæki við umferðareftirlitinu og yrði þar af leiðandi sýnilegri í vinnu sinni úti á vegum yrði að sama skapi áhrifarík. Auk heldur hefði lögreglan með höndum mun fleiri þætti s.s. hraðaakstursmælingar, ölvunarakstur og önnur almenn umferðarlagabrot. Þess vegna er það okkar mat að ávinningurinn er mun meiri og skynsamlegri af því að fela lögreglunni aukin verkefni á þessu sviði fremur en umferðareftirliti Vegagerðarinnar. Það er skoðun okkar sem höfum reynsluna af þjóðvegunum í atvinnu okkar og um það vitna fyrirliggjandi mótmælalistar og beiðni til Alþingis um að láta skynsemina ráða en ekki kerfið!
.
Tekið af www.geirinn.is

|
Comments: Skrifa ummæli

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com