<$BlogRSDUrl$>

miðvikudagur, maí 04, 2005

Textar eftir Magga.(birtir með leyfi höfundar) 

Lag: Minning um mann
---
Nú ætla ég að syngja þetta þokkalega ljóð,
um Þjóðverja sem fallinn er nú frá.
En hann var alltaf fyrir, sama hvar hann stóð
nú steindauður, hann rútu lenti á.
---
Í borg í Þýskalandi keyrði Bjössi Jó,
brjálaður við stýrið vitum öll.
Í malbikið hann smurði mann og mannræfillinn dó,
ég man nú ekki um önnur eignaspjöll.
---
En sástu þennan mann,
við hinir sáum hann.
Engan, held ég, sársauka hann fann.
---
Nú gekk manngreyið aftur og sál hans fór á kreik,
á klóið þurfti að komast heyrt ég hef.
Þar hitti hann hurðaskelli, en komst við illan leik,
með glóðarauga blátt og brotið nef.
---
En sástu þennan mann,
við hinir sáum hann.
Engan, held ég, sársauka hann fann.
-----------
Lag: Álfar
---
Í gömlum sögum segir svo frá
er Allakallar hér voru þá.
Saman þeir unnu og slógust um völd
sögurnar minntu á Sturlungaöld.
---
Og segir ein sagan sem fór á kreik
að suður einn flýði við íllan leik.
Frá kúgun og kvíða hann sneri nú frá
og kom aldrei aftur eyrina heim.
Eru Allakallar hér ?
er einn Allakalli í þér ?
---
Hátt upp í Breiðholti búa þeir enn
álfar sem minna á stóra menn.
Þeir sjá um að kúra með konunni hjá
ef kallinn er ekki landinu á.
Fá þeir fyrirgefið
fá þeir öllu gleymt
fá þeir snúið aftur í kallana ból.
Eru álfar kannski menn
eru álfar kannski menn.
----------
Lag: Spenntur
---
Soldið skrýtin, soldið löng
samt ekkert mikið, ekki svöng.
Góð í holdum sýnist mér
líkist hún mörgum innihér.
---
Kannski ólétt, kannski smá
með bumbu góða framaná.
Kannski með kálfi inn í sér
það harla líklegt þykir mér.
Það hjálpar ekkert að þú ert DAF
---
Ég er ekki mikið spenntur fyrir þér,
og reyndar held ég enginn inni hér.
Skil ekki hvað Gunni við þig sér
að hrífast svo af Bóvum eins og þér.
--------
Lag: Stál og Hnífur
---
Þegar ég vaknaði um morguninn
fór ég fljótlega til þín.
Varð að segja þér drauminn
því það blotnuðu lökin mín..
---
Við verkstæðið vin minn loksins finn
við húsbíl sem hann ann.
Got er að hafa þig Haffi minn
sem draumráðningarmann.
---
Ef ég sofna, sofna í nótt
ef mig svo dreymir
að finna lausnir svo undurskjótt
stundum þetta streymir.
---
Volvo er merki mitt,
merki stórra draumamanna.
Hroturnar hafa drauma stytt
því ég vek oft næstu granna.
--------
SBA - Syrpa vor 2005
---
-
Lag: Flagarabragur

---
Ég heiti Jenni hænuegg og kann að keyra rútur
en kysi að eiga ær í kró og vera kátur hrútur.
Því konur alveg kreisí eru í mig þessar stundir
ef klæddar eru í pils ég vildi komast þar inn undir.
---
Einn tveir, nú allir gólum saman.
Allir þeir sem hafa af skál og kvennafari gaman.
Gráti væli og grenjutón ei gegni nokkur kjaftur.
Syngjum dátt og og höfum hátt, helltu í glasið aftur.
---
Og ein var sú sem heillaði hann meir en nokkuð annað,
að keyra og káfa á bílfreyjunum ætti að vera bannað.
Svo ertu líka giftur Jenni gleymdu því nú ekki
með gráa fiðringinn á fullu ferðu bara í hlekki.
---
Einn tveir, nú allir gólum saman.
Allir þeir sem hafa af skál og kvennafari gaman.
Gráti væli og grenjutón ei gegni nokkur kjaftur.
Syngjum dátt og og höfum hátt, helltu í glsið aftur.
--------
Lag: Reyndu aftur
---
Þú reyndir allt til þess að káfa á mér.
Í gegnum ferðina var augnaráð á þér.
Það gekk ílla hjá þér að reyna finna gírstöng hér,
þú reyndir aftur með lúkurnar á lærum mér.
---------
Lag: Sjúddirarirei, sjúddirarira
---
Á skrifstofu í Skógarhlíð er kona,
Agga bara finnst það betra svona.
Hún er ofsa sæt og alger skotta
og á það til að krjúpa á hné og
sjúddirarirei, sjúddirarira
krjúpa á hné og taka nál í hönd.
---
Ef þú hefur hendurnar í vösum
í drullugalla og fingurnar í nösum.
Og þykist hafa stund milli stríða
þá kemur skvísan fram til þess að
sjúddirarirei, sjúddirarira
sauma fyrir alla vasana.
-----------
Lestarferð á Spáni
Lag: Minkurinn í hæsnakofanum
---
Það var einu sinni bossi sem átti margan Bens,
og Scaniur og Ford og fleira og einnig lítinn Jens.
En langaði í fleiri, og fimm því fóru þeir
til útlanda þeir þustu til að kaupa meir og meir.
---
Á lestarstöð á Spáni þeir spáðu mikið í
að spara aur og not´­ann frekar á næsta fyllerí.
Í lest þeir þurftu að komast og laumuðust því þeir
framhjá lestarverðinum en eftir urðu tveir.
---
Kallarnir æptu sjá sjá
sjábossinn veinaði vá vá vá.
Vörður vinur vakna þú
og ver þitt lestarbú.
---
Og brátt var bossinn orðinn eftir bara einn
og lestin brátt að fara, hann var orðinn alltof seinn.
Kallarnir hvöttu hann nú að hafa hraðann á
en ekki vildi betur til en vörður einn hann sá.
---
Kallarnir æptu sjá sjá sjá
og ráku sig í konu
konan svaraði sí sí sí
bossinn veinaði vá vá vá
Vörður vinur vakna þú
og ver þitt lestarbú.
---
Bossinn varð nú bara að hlaupa burtu fljótt
með lögguna á hælunum var ástandið nú ljótt.
Til félaganna sinna hann reyndi nú að ná
hann kallaði og hrópaði en engan þeirra sá.
---
Kallarnir æptu sjá sjá sjá
og ráku sig í konu
konan svaraði sí sí sí
og missti þar með köttinn
Kötturinn mjálmaði mjá mjá mjá
Bossinn veinaði vá vá vá
Vörður vinur vakna þú
og ver þitt lestarbú.
---
Og nú var bossinn búinn að hlaupa sig í spreng
með brjálað lið á h´lunum að elta þennan dreng.
Þeim tókst nú loks með látum að leggjast oná hann
með látbragði hann útskýrði því enga spænsku kann
---
Kallarnir æptu sjá sjá sjá
og ráku sig í konu
konan svaraði sí sí sí
og missti þar með köttinn
Kötturinn mjálmaði mjá mjá mjá
og æsti þar með hundinn
hundurinn gelti voff voff voff
Bossinn veinaði vá vá vá
Vörður vinur vakna þú
og ver þitt lestarbú.
---
Þeir báðu hann um fötin og færðu hann úr þeim
og leituðu í öllu, nakinn vildi komast heim.
Með hanskana að vopni varð að gera nána leit
og eftir það einn vörðurinn bauð bossanum á deit.
---
Kallarnir æptu sjá sjá sjá
og ráku sig í konu
konan svaraði sí sí sí
og missti þar með köttinn
Kötturinn mjálmaði mjá mjá mjá
og æsti þar með hundinn
hundurinn gelti voff voff voff
og vakti þar með vörðinn.
Vörðurinn sagði frá frá frá
og setti svo sig hanska á
Bossinn veinaði Á Á Á
og upp á borði lá
--------
VOR 2005

|
Comments: Skrifa ummæli

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com