<$BlogRSDUrl$>

mánudagur, febrúar 07, 2005

Já allt er nú hægt í Bandaríkjunum. 

Fjögurra ára snáði í ökuferð.

Fjögurra ára gamall drengur í bænum Sand Lake í Michigan í Bandaríkjunum ók bíl móður sinnar einsamall og um miðja nótt að myndbandaleigu í nágrenninu og heim til sín aftur.
Drengurinn náði ekki niður á bensíngjöfina en honum tókst að koma bílnum í gír og aka að myndbandaleigunni, um 400 metra frá heimili hans klukkan 1:30 aðfaranótt föstudagsins síðasta. Myndbandaleigan var lokuð og stráksi settist því aftur upp í bílinn og ók heim á leið.
Lögreglumaður, sem var á ferð um svæðið, tók eftir bílnum sem var ljóslaus og ökulagið var frekar einkennilegt. Lögreglumaðurinn kveikti á sírenum og elti bílinn þegar honum var ekið inn í innkeyrslu og rakst þar á tvo kyrrstæða bíla. Drengurinn setti bílinn síðan í afturábakgír og ók á lögreglubílinn.
Móðir drengsins sagði að pilturinn hefði reynt að aka bílnum nokkrum dögum fyrr en hún hefði nýlega leyft honum að sitja í fanginu og stýra.
Lögreglustjórinn í Sand Lake sagði að drengurinn geri sér væntanlega ekki grein fyrir því sem gerðist. Hvorki drengurinn né móðir hans verða ákærð vegna málsins.

tekið af mbl.is

|
Comments: Skrifa ummæli

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com