<$BlogRSDUrl$>

fimmtudagur, desember 25, 2003

Að norðan
Nú næstu daga mun ég birta dagbók úr Kárahnjúkum

Dagbók Kárahnjúkum Desember 2003
Mánudagur 15 desember
Dagur 1.

Lögðum af stað frá Akureyri um kl 07:20 að staðartíma, en með mér í för var Víkingur í gleri. Gekk ferðalagið bara ágætlega en þó nokkur snjór var á fjöllunum austanmenn eru ekkert að stressa sig að hreinsa vegina sáum fyrsta ruðningstækið þegar við vorum að koma í Jökuldalinn (Land Rover með tertuspaða) en þegar utar í dalinn kom mættum við loksins alvöru ruðningstæki. Svo var soppað í Shell á Egilsstöðum og drukkið kaffi og reykt með Ísak, því næst var haldið sem leið liggur upp í Kárahnjúka þar sem við hittum frændurna Markús og Sævar(skömbó) en ætlunin var að við tækjum við af þeim. Nú eftir smá fund með frændunum héldu þeir heim á leið (aumingja Kristrún að fá Sævar heim) en við Víkingur komum okkur fyrir og kynntum okkur fyrir hinum rútubílstjórunum svo var haldinn verkfundur (en það er þegar horft er á DVD) Þegar klukkan var 17:45 þurfti ég að vera mættur við verkstæðið til að keyra köllunum heim en flestir fóru út við aðalbúðirnar en ég hélt áfram með fimm kalla og fékk svo einn úr Austfjarðarleiðarbílnum en þeir komu frá ADIT 3 var svo keyrt sem leið liggur að ADIT 2 en þar sváfum við allir sjö.

|
Comments: Skrifa ummæli

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com