<$BlogRSDUrl$>

föstudagur, desember 26, 2003

Að norðan

Dagbók úr Kárahnjúkum
Þriðjudagur 16 desember 2003
Dagur2.

Vaknaði ógeðslega ferskur við helv.... klukkuna kl: 05:00 skreiðlaðist á fætur og dreif í morgun verkunum þ.e.a.s pissa, fara í sturtu og tannbursta, fór svo og setti í gang því næst í morgunmat svo þegar klukkan varð sex var keyrt sem leið liggur upp í main Camp ( með alla sex farþegana) fyrst stoppað við matsalinn og teknir fleiri kallar þar og svo var brunað með þá alla út að skemmunum en þeir eru að reisa þær. Svo dreif ég mig í morgunmat með hinum bílstjórunum,því næst upp á rútustæði þar var haldinn verkfundur en það lágu ýmis verkefni fyrir og þar sem takmarkaður tími er til viðhalds og viðgerða verður að skipuleggja hlutina mjög vel svo allt gangi upp, nú þegar verkfundurinn var loksins búinn var kominn tími til að ná í kallana og koma þeim í hádegismat en ég þurfti að vera mættur við skemmurnar kl 11:20 (það tók svona 2 mín að keyra þetta) svo að keyra þeim til baka kl 12:20. En við Víkingur fórum svo í mat klukkan rúmlega eitt en þá var farið að hægjast verulega í matsalnum, nú eftir matinn var farið upp á rútustæði á verkfund, svo urðum við að sýna smá lit og rölta í kringum bílana opna vélarrúmin og sitthvað fleira svona til að geta sagt að við hefðum gert eitthvað, svo skruppum við í kaffi til Landsvirkjunnar (mötuneytið okkar er nefnilega lokað utan matartíma). Nú eftir kaffisopann var spjallað um daginn og veginn, en kl 17:45 þurfti ég að vera kominn að skemmunum að ná í mína menn og skila þeim heim, en flestir fóru úr bílnum við Main og ég hélt svo áfram niður á ADIT 2 með mína sex kalla (á 53 manna rútu) en þangað var komið um sjöleitið og þá snæddur kvöldverður eftir matinn var farið inná herbergi að skrifa dagbókina og svo var horft á DVD.

|
Comments: Skrifa ummæli

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com